Fréttablaðið - 26.01.2010, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
ÞRIÐJUDAGUR
26. janúar 2010 — 21. tölublað — 10. árgangur
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
FERÐAÞJÓNUSTA BÆNDA gaf nýlega út bækl inginn The Ideal Holiday 2010 sem ætlaður er til dreifingar í Evrópu. Bæklingurinn er fyrsti prent-gripurinn sem framleiddur er hjá Odda sem ber svansmerkið, norræna umhverfismerkið. www.sveit.is
„Þetta var alveg ótrúlegt ævin-týri. Við heimsóttum alls kyns skemmtilega staði og kynntumst mörgu áhugaverðu fólki,“ segir Guðjón Svansson, framkvæmda-stjóri Kettlebells á Íslandi, sem fór með fjölskylduna, eiginkonuna Völu Jóhannesdóttur og þrjá syni, Viktor Gauta, Arnar Ingimund og Patrek Orra, í árslangt ferðalag um Suður-Ameríku í ágúst 2008.Í upphafi ætlaði fjölskyldan í heimsreisu en plönin breyttust þegar kreppan skall á. „Ferðasjóð-urinn rýrnaði eitthvað þar semhluti hans var í í lÍ
rækt og af þeim sökum segir Guð-jón annað ekki hafa komið til greina en að stunda hana áfram meðan á ferðalaginu stóð. „Við tókum með einföld tæki, handlóð og hringi og poka sem við settum sand í. Síðan leituðum við uppi alls kyns gúrú sem voru til dæmis á kafi í ketil-bjöllum og jiu-jitstu í þessum lönd-um sem við heimsóttum og lærðum ýmislegt nýtt af þeim.“Guðjón segir margt af því sem fyrir augu bar mjög frábrugðið þvísem Íslendingar eiga aðS ð
það upp á híbýli sín eftir komuna til Íslands.
„Við erum búin að koma fyrir nokkrum leiktækjum í garðinum,“ bendir Guðjón á og bætir við að vegna þess hversu vel hafi tekist til hafi þau hjónin einnig sett upp nokkur tæki á heimilinu. „Í stof-unni er kominn þessi fíni kaðall og niður úr stiganum hanga svo hringir sem styrkja strákana gegn-um leiki.“ Þá hefur fjölskyldansvigrúm til
Klifurhringir í stofunni
Margt áhugavert bar fyrir augu Guðjóns Svanssonar og fjölskyldu á ferðalagi um Suður-Ameríku. Æfinga-
vellir fyrir börn og fullorðna voru meðal þess sem heillaði og fjölskyldan hefur nú heimfært upp á híbýli sín.
Hjónin Vala og Guðjón fóru með syni sína þrjá, Patrek Orra fimm ára, Viktor Gauta ellefu ára og Arnar Ingimund níu ára í árslangt
ferðalag um Suður-Ameríku.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
www.eirberg.is • 569 3100
Rafknúnirhæginda-
stólar
•
standa upp
• Einfaldar stillingar
og fjölbreytt úrval
Þarftu að kaupa, selja eða skipta? Sérstakir bíladagar
eru alla laugardaga í smáauglýsingum Fréttablaðsins.Sértilboð á bílaauglýsingum – aðeins 3.750 kr.,
texti og mynd. (80–100 innslættir + mynd).Hafið samband við sölumann í s. 512 5050 eða
sendið póst á smaar@frettabladid.is
BíladagarFréttablaðsins!
VEÐRIÐ Í DAG
Hestavörur
Sérblað • Þriðjudagur 26. janúar 2010
MARÍA DALBERG
Í ástarþríhyrningi
á leiksviði í London
María leikur aðalhlutverkið
FÓLK 30
GUÐJÓN SVANSSON
Með klifurhringi og
kaðla í stofunni
• heilsa • sveitarómantík
Í MIÐJU BLAÐSINS
Eddunni frestað
Niðurskurður RÚV
setur strik í reikning-
inn hjá kvikmynda-
stjörnunum.
FÓLK 30
Með stjörnun-
um á Ítalíu
Óttar Guðnason tek-
ur upp auglýsingu í
Mílanó.
FÓLK 30
STJÓRNMÁL Svo kann að fara að
þjóðaratkvæðagreiðslunni um
Icesave-lögin, sem fara á fram 6.
mars, verði frestað.
Þingmenn úr röðum stjórnar-
flokkanna telja mikilvægt að þing
og þjóð hafi ráðrúm til að gaum-
gæfa skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis áður en gengið verður til
atkvæðagreiðslunnar um Icesave.
Þingmenn í stjórnarandstöðunni
eru á hinn bóginn þeirrar skoðun-
ar að ekki beri að hrófla við kjör-
deginum.
Rannsóknarnefnd Alþingis til-
kynnti í gær að útgáfa skýrslunn-
ar frestist um nokkrar vikur en
áformað var að hún kæmi út fyrir
1. febrúar. Nefndin væntir þess
að geta skilað af sér fyrir febrú-
arlok, „komi ekkert óvænt upp í
því ferli sem eftir er,“ eins og það
er orðað.
Málið var rætt á fundi þing-
flokks Samfylkingarinnar í gær.
Björgvin G. Sigurðsson, formað-
ur þingflokksins, segir ótækt að
aðeins nokkrir dagar líði á milli
þessara atburða. Í skýrslunni
kunni að verða upplýsingar sem
fólk vilji hafa til hliðsjónar þegar
það greiðir atkvæði um Icesave.
Ákjósanlegt væri að rannsókn-
arnefndin tímasetti nákvæmlega
útgáfu skýrslu sinnar og að dag-
setning þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar verði ákveðin í framhald-
inu.
Björn Valur Gíslason, þingmað-
ur Vinstri grænna, er sama sinn-
is. Fresta þurfi atkvæðagreiðsl-
unni ef það stefnir í að skýrslan
komi út vikuna áður.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknar-
flokksins, telur ekki ráðlegt að
hringla með kjördaginn. Betra
sé að útgáfa skýrslunnar taki
mið af honum. „Best væri að
klára skýrsluna og birta niður-
stöðurnar í tíma og ef eitthvað er
óunnið gera það í framhaldinu og
birta sem viðbótarskjöl. Nú veit
ég ekki hvort það er hægt en það
væri þá best,“ segir Sigmundur.
Unnur Brá Konráðsdóttir Sjálf-
stæðisflokki er sammála Sig-
mundi. Ekki beri að hrófla við
kjördeginum.
Viðmælendum Fréttablaðsins
bar saman um að slæmt væri að
útgáfa skýrslunnar tefðist.
Vonbrigði, svekkjandi og
óheppilegt, voru orðin sem þeir
völdu. Töfin væri til þess fallin að
auka enn á tortryggnina í samfé-
laginu.
- bþs / sjá síðu 14
Þjóðaratkvæðagreiðslunni
verður hugsanlega frestað
Stjórnarliðar telja rétt að fresta atkvæðagreiðslunni um Icesave ef skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis er
væntanleg aðeins fáum dögum fyrir 6. mars. Stjórnarandstæðingar vilja ekki hrófla við kjördeginum.
HESTAVÖRUR
Hestar, fóðrun, hirðing,
fatnaður og fylgihlutir
Sérblað um hestavörur
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Verkleg kunnátta hafin
til vegs og virðingar
Myndlistaskólinn í Reykjavík ætlar
ásamt fleirum að koma af stað
diplómanámi í teikningu og textíl.
TÍMAMÓT 18
Strekkingur vestan til Í dag
verður suðvestanátt, 10-15 m/s
allra vestast en annars hægari
vindur. Horfur eru á vætusömu
veðri víðast hvar, síst austanlands.
Kólnar heldur í veðri.
VEÐUR 4
5
2 1
3
3
Enn eitt jafnteflið
Ísland og Króatía skildu jöfn á
EM í gær. Strákarnir okkar mæta
Rússum í
dag.
ÍÞRÓTTIR
24, 25 & 26
ÍÞRÓTTIR Sjö eiginkonur leikmanna
íslenska handboltaliðsins voru komnar
til Vínarborgar í gærkvöldi og von er á
fleirum. Þær ætla að fylgjast með mönn-
um sínum í þeim leikjum sem eftir eru á
Evrópumótinu.
„Ég kom í dag en missti reyndar af
leiknum því ég var veðurteppt á flug-
vellinum, sem var frekar glatað,“ segir
Eivor Pála Blöndal, eiginkona Alexand-
ers Peters sonar.
Hún segir að konurnar hafi haldið sig
heima hingað til því flestar eru þær með
börn og erfitt að losna í langan tíma. Ömmur og
afar gæta nú afkvæmanna.
„Við verðum flestar hér þangað til þetta
klárast. Það er engin komin með miða heim
enn þá,“ segir Eivor.
Konurnar gista ekki á sama hóteli og
handboltaliðið og Eivor var ekki búin að
hitta mann sinn í gærkvöldi.
„Við erum að borða saman stelpurnar
og svo hittum við þá í anddyrinu. Þeir fara
síðan á fundi og við fáum ekki að fara með í
það. Þannig að við erum bara á eigin vegum,
enda erum við ekkert að fara að sofa klukk-
an tíu eins og þeir!“ segir Eivor.
Landslið Íslendinga mætir Rússum í dag
og hefst leikurinn klukkan 15.
- kóþ / sjá síðu 24, 25 og 26
Eiginkona Alexanders Peterssonar komin til Vínar en missti af leiknum í gær:
Eiginkonurnar eru komnar til
Vínar til að styðja sína menn
EIVOR PÁLA
BLÖNDAL
RAFMÖGNUÐ SPENNA Það fór um margan áhorfandann á síðustu mínútum landsleiks Íslendinga og Króata í gærdag. Grannt var fylgst með leiknum um allan bæ. Ljós-
myndari Fréttablaðsins átti leið fram hjá Apple-búðinni á Laugavegi og mætti augnaráði hins vaska Ingimundar Ingimundarsonar, þegar einungis 36 sekúndur voru eftir af
leiktímanum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI