Fréttablaðið - 28.01.2010, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 28. janúar 2010 3
Herratískan fyrir næsta vetur fór svo hratt framhjá um helgina að varla var
eftir tekið og hátískusýningar
sumarsins nú þegar á fullum
krafti. Herrasýningunum hefur
reyndar verið þjappað saman á
þrjá daga en ekki fjóra. Tísku-
skríbentar eru allir óskaplega
ánægðir og flestir sammála
um hversu skynsamleg hönn-
un er í boði fyrir herrana eftir
allt bling-blingið, auðveldir
litir og þægileg snið. Tískuhús-
in sem velta hvað mestu eins
og Louis Vuitton eru einmitt
þau sem í þetta skiptið taka
hvað minnsta áhættu. Á sumum
sýningum var ekki einu sinni
spiluð tónlist undir. Í Mílanó
á dögunum sást þessi tilhneig-
ing til einfaldleika á sýningun-
um þar og meira að segja Dolce
& Gabbana sem eru nú þekkt-
ari fyrir glamúr og glimm-
er sýndu klæðnað í látlausum
stíl og dökkum litum. Reynd-
ar er herratískan svo einföld
að það má kannski spyrja hvort
sköpunargleðin hafi ekki verið
látin víkja fyrir skynsemis-
hugsuninni og hagnaðarkröfum
tískuiðnaðarins og þess vegna
afskaplega sölulegur fatnaður á
pöllunum. En það má því spyrja
hvort það sé ekki lítið eftir af
listinni í tískunni þegar tísku-
línur sýningarpallanna eru ekki
lengur uppspretta drauma og
fantasíu.
Nokkrir hönnuðir eru þó
samir við sig og sýna fleira
en jakkaföt og stakar buxur,
peysur og frakka. Til dæmis
má nefna John Galliano sem
sýndi korselett fyrir herra eða
Jean-Paul Gaultier sem notaði
boxið sem þema og fyrirsætur
með falska skurði í andlitinu.
Riccardo Tisci heldur áfram
að færa Givenchy-herrann til
nútímans þó ég efist nú um að
pils/stuttbuxurnar með þykku
sokkabuxunum eigi eftir að
sjást mikið á herra Reykjavík
næsta vetur. Fyrirsæturnar
voru undir áhrifum kirkjulegra
tákna og Tisci enn að velta sér
upp úr trúnni með hinu góða og
illa sem stundum þrífst í skjóli
hennar.
Sumir ganga svo langt í ein-
faldleikanum eins og Stefano
Pilatti hjá Yves Saint Laurent
að það er engin sýning. Hann
hefur um nokkurt skeið sýnt
kvikmynd í staðinn til að kynna
nýjustu hönnun sína en að þessu
sinni má spyrja eftir á hvað
hann hafi eiginlega hannað
fyrir komandi vetur því mynd-
in fjallaði meira um kynþokka
karla en fatnað. Út af fyrir sig
áhugaverð hugleiðing um karl-
ímyndina, erótík og nekt en
ekki beinlínis markmið hefð-
bundinna tískusýninga, í það
minnsta hingað til.
Á komandi vetri verða snið-
in einföld, litirnir, fyrir utan
svart að sjálfsögðu, verða brún-
ir, ljósir kamellitir og gráir með
dálitlu munstri í bland, aðallega
köflóttu. Á hverju má líka eiga
von þegar þema tískusýningar
er ,,Grá þök Parísar“? Þetta var
þema Alexis Mabille sem þó
sýndi meðal annars klæðalítil
undirföt. bergb75@free.fr
Einfaldir og litlausir herrar
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Í upphafi súkkulaðihátíðar-
innar Salon du Chocolat er
haldin tískusýning með sér-
stæðu sniði. Þar sýna fyrir-
sætur flíkur sem eru að öllu
eða mörgu leyti gerðar úr
súkkulaði. Niðurstaðan er
sannkallað augnakonfekt en
ekki fer sögum af því hvort
áhorfendur eða fyrirsætur fái
að smakka á herlegheitun-
um að lokinni sýningu.
Samnefndar sýningar
Salon du Chocolat, fara fram
í París, New York og Tókíó.
Súkkulaði í Sjanghæ
ÁRLEG HÁTÍÐ SALON DU CHOCOLAT VAR HALDIN Í KÍNA
DAGANA 21. TIL 23. JANÚAR.
Fyrirsætur sýndu hinar ýmsu
flíkur sem að sumu eða öllu
leyti voru gerðar úr súkkulaði.
Til dæmis þennan súkkul-
aði skreytta hatt og blævæng.
NORDICPHOTOS/AFP
Helstu tískuvikur
heimsins fara fram í
New York, London,
Mílanó og
París, í
þessari röð.
Sérfræðingur frá Dior kynnir fi mmtudag, föstudag
og laugardag, glæsilega vorliti og gefur ráðleggingar
varðandi förðun og litaval.
15% afl sláttur af Dior á meðan á kynningu stendur, ásamt
15% auka afslætti af öllum útsöluvörum.
Vertu velkomin.
Laugavegi 80, sími 561 1330
www.sigurboginn.is
Sérverslun með
FÁKAFENI 9 - (við hliðina á ísbúðinni) - Sími: 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-14
Skór & töskur
www.gabor.is
Gott úrval af götuskóm
frá Gabor Stærðir 35-44
Sími: 581 2141 - www.hjahrafnhildi.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
allwomanstalk.com