Fréttablaðið - 29.01.2010, Blaðsíða 22
29. janúar 2010 FÖSTUDAGUR2
Samtökin Handverk og hönnun
efndu til þemasýningar í fyrra
þar sem þau fengu nokkra hönn-
uði til að velja annan hönnuð með
sér til samstarfs. Skilyrðin voru
að hönnuðurinn sem fyrir valinu
yrði, væri að vinna með ólíkt efni
og væri á ólíkum aldri. Sigríð-
ur segist alltaf hafa verið mikill
aðdáandi verka Kristínar og hún
hafi því beðið hana um að vinna
með sér. „Í svona samstarfi skipt-
ir líka máli að hönnuðir eigi skap
saman og ég vissi vel hvað Krist-
ín er skemmtileg af samstarfi
okkar í Kirsuberjatrénu. Ég varð
því mjög glöð þegar hún var til
í að vinna þetta með mér,“ segir
Sigríður.
Að sögn Sigríðar var mikil áskor-
un að koma leir og ull saman í eitt-
hvað sem myndi virka en þær stöllur
enduðu með því að útbúa stell sem
samanstendur af bollum, skálum og
boxum, þar sem litaglaðar kúlur úr
þæfðri ull skreyta postulínið. Stell-
ið kölluðu þær Flökkukindastell og
bjuggu til skemmtilega þjóðsögu í
kringum það. Upplagið af stellinu
sem er til sölu er lítið enda var það
fyrst og fremst gert fyrir sýningu
Handverks og hönnunar. Stellið er
til sýnis í bakherbergi í Kirsuberja-
trénu á Vesturgötu. - jma
Stell úr steyptu
postulíni og ull
Þær Sigríður Ásta Árnadóttir textílhönnuður og Kristín Sigríður
Garðarsdóttir leirkerasmiður eru nýbúnar að opna sýningu á afar
skemmtilegu stelli sem þær unnu saman.
Stellið er úr steyptu postulíni þannig að
formið er afskaplega hreint.
Glænýir endur-
unnir treflar eftir
Sigríði Ástu eru
einnig til sýnis í
bakherberginu.
Sigríður Ásta Árna-
dóttir textílhönnuður
og Kristín Sigfríður
Garðarsdóttir kera-
míker unnu saman
afar skemmtilegt
stell sem kallast
Flökkukind.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
GJAFAPAKKI er skemmtileg hugmynd
sem Office 1 býður upp á. Þar er hægt að
kaupa umslag með gafabréfi að flugi, dekri,
hestaferð, matreiðslunámskeiði og fleira.
Mikið úrval
af saltkristal lömpum
og kertastjökum.
ditto.is
Smiðjuvegi 4, græn gata.
Kópavogi.
Sími 517-8060
www.ditto.is