Fréttablaðið - 29.01.2010, Qupperneq 24
FURÐUVERUR verða í fyrirrúmi á sýningunni Ljóslitlífun í Hafnar-
húsi um helgina. Í þessari fjölskyldudagskrá verður leitað að furðuverum,
dýrum og plöntum sem birtast á ólíklegustu stöðum á sýningunni og
kannað hvernig málverkin flæða út fyrir ramma, mörk og venjuleg rými.
„Við höldum því að sjálfsögðu statt
og stöðugt fram að allir séu Eur-
ovision-aðdáendur inni við bein-
ið,“ segir Hildur Tryggvadóttir
Flóvenz, sem opnaði nýverið vef-
síðuna Allt um Júróvísjon ásamt
Eyrúnu Ellý Valsdóttur vin-
konu sinni. Á síðunni er að finna
ógrynni af fróðleik um hina sívin-
sælu söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva, sem verður hald-
in í 55. skipti í Noregi í vor.
Að sögn Hildar er um alls kyns
fróðleik að ræða, bæði nytsam-
legan og gagnslausan. Á síð-
unni verður fjallað um lögin
í íslensku forkeppninni
sem fram fer á RÚV, en
einnig lögin sem keppa
í sjálfri lokakeppninni, í
forkeppni annarra landa,
önnur mál tengd Eurov-
ision og hvað sem þeim
stöllum dettur í hug varð-
andi keppnina.
Hugmyndin að síðunni
kom til vegna þess að
Hildi og Eyrúnu þótti sár-
lega vanta alvöru Eur-
ovision-aðdáendasíðu í
íslenskum netheimum.
„Við erum báðar miklir
áhugamenn um keppn-
ina og höfum til að
mynda bloggað linnu-
lítið um Eurovision á
okkar eigin bloggsíð-
um í gegnum tíðina.
Því þótti okkur grá-
upplagt að skella þessu öllu
saman á eina síðu og höfum
verið að dunda okkur við það
undanfarið.“
Hún segir viðbrögðin við síð-
unni hafa verið mjög góð. „Við
fengum hundruð heimsókna
fyrstu dagana, enda vitum við um
ótalmarga sem
fylgjast grannt
með keppninni.
Við höfum ekki
enn ferðast til útlanda til að fylgj-
ast með lokakeppni í návígi en það
er á stefnuskránni. Draumurinn
er að komast út til Noregs í vor,
en við sjáum hvað setur,“ segir
Hildur.
Spurð um eftirlætis Eurovision-
lögin í gegnum tíðina segist Hild-
ur eiga í nokkrum erfiðleikum
með að telja til sérstök lög.
„Þau eru svo rosalega
mörg góð. Af þessum
erlendu held ég mikið
upp á partílagið Wild
Dancers sem hin úkra-
ínska Ruslana sló í gegn
með árið 2004 og hef
einnig dálæti á ítalska
laginu Eres Tu frá 1973.
Af þeim íslensku finnst mér Is it
true hreinlega vera með þeim
flottari sem gerð hafa verið
og Nína er alltaf gott. Svo eru
það þessir gullmolar sem
heyrast lítið eftir að þau
detta úr keppni, eins og
Skot í myrkri sem Ragn-
heiður Gröndal söng í und-
ankeppninni árið 2007. Það
er eitt af mínum uppá-
halds lögum.“
Slóðin á síðuna er jur-
ovision.wordpress.com
og ættu flestir Eurov-
ision-fíklar að finna
eitthvað við sitt hæfi
þar. kjartan@frettabladid.is
Opna Eurovision-síðu
Þær Hildur Tryggvadóttir Flóvenz og Eyrún Ellý Valsdóttir hafa nýlega opnað aðdáendasíðu fyrir Eurov-
ision, sem er full af ýmsum fróðleik um keppnina. Draumur þeirra er að komast til Noregs í vor.
Vinkonurnar Hildur Tryggvadóttir Flóvenz og Eyrún Ellý Valsdóttir opnuðu nýverið aðdáendasíðu Eurovision. Síðan inniheldur
ógrynni af fróðleik um söngvakeppnina vinsælu. FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
Landsmenn eru hvattir til að
skoða og skrá fjölda og tegundir
fugla í görðum sínum frá og með
deginum í dag til 1. febrúar.
Fuglavernd gengst fyrir garðfugla-
skoðun nú um helgina sem felst í
því að sem flestir greini og skrái
niður þá fugla sem stoppa í görð-
um þeirra á einum klukkutíma.
Markmiðið er að afla upplýsinga
um hvaða tegundir eru til staðar
og fjölda innan tegunda en einnig
að vekja áhuga á fuglum og töfr-
um þeirra,“ að sögn Hólmfríðar
Arnardóttur, framkvæmdastjóra
Fuglaverndar. Hún segir gott að
hæna fuglana að með því að gefa
þeim. „Við viljum líka fá fólk til
þess að fóðra fugla reglubundið,
það er uppbyggjandi tómstunda-
gaman og mikil aðstoð við garð-
fugla í oft harðri lífsbaráttu,“ segir
hún og tekur fram að misjafnt sé
hvaða fóður henti hverri tegund en
upplýsingar um það sé að finna á
www.fuglavernd.is. Þar geta þátt-
takendur fuglatalningarinnar einn-
ig skráð niðurstöður sínar og sent
þær inn rafrænt.
Í tilefni af þessu átaki Fugla-
verndar býður hún upp á fuglaskoð-
un á morgun, laugardag, klukkan
tvö. Hist verður á bílastæðinu við
Fossvogskirkjugarð. - gun
Út í garð að telja fuglana
Skógarþröstur og svartþröstur. Sá síðar-
nefndi er tiltölulega nýr landnemi sem
þiggur fúslega matargjafir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Wild Dancers með Ruslönu
og Is it true með Jóhönnu
Guðrúnu eru meðal
uppáhalds Eurovision-laga
Hildar.
OUTLET – LAUGAVEGI 94
Opnunartími:
mán. til fös. 11:00 – 18:00.
Laug. 11:00 – 16:00.
MC PLANET Outlet • Laugarvegur 94 • 101 Reykjavík. • Sími 552 8090
Nýjar
vörur
á útsö
lu
LOKADAGAR
ÚTSÖLUMARKAÐS
STÓRLÆKKAÐ VERÐ
3000 kr.
5000 kr.
7000 kr.
9000 kr.
AF ÖLLUM RÚSSKINNSHÖNSKUM