Fréttablaðið - 29.01.2010, Blaðsíða 26
2 föstudagur 29. janúar
núna
✽ nýtt og ferskt
þetta
HELST
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Stefán Karlsson Ritstjórn Anna M.Björnsson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
helgin
MÍN
H inn vinsæli sjónvarpsþáttur Nýtt útlit, með hárgreiðslu-
og förðunarmeistaranum Karl
Berndsen, er væntanlegur aftur
á skjáinn. „Ég er að byrja að taka
upp 8. febrúar. Við ætlum að hafa
þáttinn með svolítið öðru sniði,
því ekki viljum við ekki vera með
neinar gamlar lummur. Ég ætla
nú ekki að uppljóstra um breyt-
ingarnar strax, en þarna verður
dálítið af einstaklingum sem fólk
ætti að kannast við,“ segir Karl,
þar sem hann var staddur á stof-
unni sinni, Beauty barnum.
Fyrir jólin gaf Karl út ítarlegt
kennslumyndband í förðun,
sem mæltist vel fyrir hjá ís-
lenskum konum og seld-
ist í meira en 4.000 eintök-
um. Frést hefur af útrás mynd-
bandsins til Austur-Evrópu en
nú hafa fleiri lönd bæst í hópinn,
meðal annars Bretland, Grikk-
land og Kýpur. „Myndbandið mitt
verður til sölu í sjónvarpsmark-
aði í Bretlandi. Það er ein stærsta
sjónvarpsstöðin í Bretlandi sem
vill fá hann þýddan,“ segir Karl,
sem er ekkert undrandi yfir vin-
sældum myndbandsins, þar sem
ekki sé fátt sé um fína drætti á
þeim markaði í Evrópu. „Það er
hægt að fletta kennslubók um
förðun, en það er einhvern veg-
inn ekki eins sterkt og þetta sjón-
ræna. Og svona kennslumynd-
bönd eru ekki til Evrópu, nema
þá í tengslum við ákveðin snyrti-
vörumerki.“
Annars hefur komið Karli á
óvart hvaða konur voru opn-
astar fyrir disknum hér heima.
„Hugmyndin með þessu hjá mér
var að ná til kvenna frá þrítugu
og upp í fimmtugt. En það kom
mér á óvart að það voru einmitt
þær yngri og þær eldri sem voru
spenntastar fyrir hugmynd-
inni. Mér finnst eins og marg-
ar konur hugsi „æ, ég er búin að
gera þetta svo lengi, ég þarf ekk-
ert að læra neitt úr þessu!“. En
flestar konur hefðu gott af því að
öðlast meiri þekkingu og sjá að
þær gætu gert þetta svo miklu
betur. Þetta snýst um að ná fram
fegurðinni, og hvað hver og ein
getur gert til að endurbæta sjálfa
sig.“ - hhs
Karl Berndsen herjar á Evrópumarkað með kennslumyndband sitt:
TIL SÖLU Á BRESKUM
SJÓNVARPSMARKAÐI
Karl Berndsen Segir konur á milli þrítugs og fimmtugs halda að þær þurfi ekki að læra að farða sig úr þessu. Það sé misskilningur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Útsalan er á síðustu metrunum
í versluninni Fabelhaft á Lauga-
veginum og lýkur nú um helgina.
Þá taka við flutningar hjá hönn-
uðunum Thelmu Björk og Dúsu
en þær ætla að flytja sig um set
og fara aftur á Miðstrætið þar
sem þær eru einnig með vinnu-
stofu. „ Okkur gafst bara svo lít-
ill tími til að hanna og sauma á
meðan búðin var á Laugavegin-
um. Þetta eru langir vinnudagar
og við vorum bara að afgreiða.
Með því að færa okkur aftur á
gamla staðinn verður þetta auð-
veldara og skemmtilegra fyrir
okkur,“ segir Thelma. Fatnað-
ur frá merkinu Go With Jan eftir
Guðjón Tryggvason verður áfram
fáanlegur hjá Fabelhaft ásamt
Thelmu Design og Skaparanum.
Nýjar línur munu svo líta dags-
ins ljós á Reykjavík Fashion Festi-
val nú í mars. Fabelhaft flytur á
Miðstræti 12 Skálholtsstígsmeg-
in á mánudaginn. - amb
Fabelhaft flytur af
Laugaveginum
Nýjar línur væntanlegar í vor. Thelma og Dúsa flytja sig um set eftir að útsölu lýkur.
Jón á leikskólanum
Jón Gnarr ætlar að sópa til sín
væntanlegum atkvæðum en eins
og hefur ekki farið framhjá neinum
stefnir hann á að komast í borg-
arstjórn fyrir Besta flokkinn sinn.
Fyrir helgina sást hann spranga
um lóð leikskóla í miðbæ Reykja-
víkur, þar sem hann heilsaði upp
á börnin með bros á vör og flutti
fóstrunum framboðsræður. Sagð-
ist hann meðal annars lofa því að
gefa mörg loforð í aðdraganda
kosninga. Hins vegar ætli hann
að brjóta hvert eitt og ein-
asta. Með Jóni voru tveir
fyndnir karlar, þeir Auddi
og Sveppi, og tökulið
sem náði öllu saman
á filmu.
Aðdáendur hönnuðarins Bern-
hards Wilhelm munu taka
gleði sína í Kron Kron nú um
helgina en þar verður sleg-
ið upp sérstökum Bernhard
Wilhelm-dögum þar sem flík-
ur eftir hann eru á hálf-
virði en meðal ann-
ars er hægt að festa
kaup á hium frægu
köflóttu og víðu kjólum
og skyrtum sem
hafa verið afar
vinsælar í vetur.
Tilboðið stend-
ur yfir fram á
næsta miðviku-
dag og heitt
kaffi á könnunni.
Köflóttir dagar
REBECCA ERIN MORAN, LISTAKONA
Ég ætla að æpa yfir handboltaleikjum, borða beikon í morgunmat og drekka svo
viskí á Bakkusi á meðan ég hlusta á Einar Sonic þeyta skífum á föstudagskvöldið.
Svo ætla ég að leika mér með nýju 16 mm tökuvélina mína.
160 manns þrá að finna
ástina
Skráning stefnumótaþáttar-
ins Djúpu laugarinnar hefur farið
gríðarlega vel af stað en yfir 160
manns hafa skráð sig á fyrstu vik-
unni. Sýningar hefjast 12. febrúar
en fólk
verður að
hafa náð
20 ára aldri
til þess að
geta skráð
sig. Ragn-
hildur Magnúsdóttir og Tobba Mar-
inósdóttir eru einnig farnar af stað
með leit að skemmtilegum pörum
sem kynntust á óvenjulegan máta
og spyrja spurninga eins og hvað
virkar og hvað ekki.
SMART OG SÆT Rússneska leik-
konan Olga Kurylenko var glæsileg á
sýningu Chanel á tískuvikunni í París
sem nú stendur yfir.
Lærisveinn Nerdrums
sýnir
Þrándur Þórarinsson hefur vakið
athygli fyrir málverk sín en hann
nam málaralistina hjá Íslandsvinin-
um fyrrverandi, Oddi Nerdrum.
Þrándur sýnir nú verk sín í
veitingahúsinu Geysi í Aðal-
stræti og verkin eru hluti af
sýningu Þrándar sem nefndist
Áfangar og haldin var í 101 Gall-
eríi. Þrándur tók bílpróf á síðasta
ári og ætlaði að
láta gamlan draum
rætast, ferðast
um landið og mála
einhverja merkis-
staði. En draum-
urinn endaði þar
sem hann hófst, á
vinnustofu listamannsins í miðbæ
Reykjavíkur, þar sem hann mál-
aði tólf olíumálverk upp úr Áföng-
um, ferðakvæði Jóns Helgasonar
frá 1939.