Fréttablaðið - 29.01.2010, Blaðsíða 36
8 •
Hafnfirðingurinn Friðrik Dór Jónsson
vakti verðskuldaða athygli síðastliðið
sumar með laginu Hlið við hlið. Það
náði öðru sæti á vinsældarlista FM
957 og var jafnframt þriðja vin-
sælasta íslenska lag síðasta árs á
útvarpsstöðinni, sem hlýtur að teljast
góður árangur fyrir tónlistarmann
sem er að stíga sín fyrstu skref. Nýj-
asta lagið hans, Á sama stað, sem
hann samdi með Erpi Eyvindarsyni,
hefur einnig fengið góðar viðtökur
að undanförnu og er til að mynda
farið að hljóma á Bylgjunni.
„Það má segja að þetta ævintýri
sem er byrjað núna með þessari
R&B-tónlist fari í gang í sambandi
við Versló. „Við félagarnir settumst
niður og skrifuðum drög að söngleik
og lögðum fyrir Verslunarskólann.
Við ætluðum að selja þeim þetta og
það fóru fram einhverjar viðræður
en það endaði með því að þeir tóku
annað,“ segir Friðrik Dór. „Þannig
að ég tók Hlið við hlið sem ég var
búinn að skrifa fyrir þann söngleik
og ákvað að taka það upp sjálfur og
prófa. Það gekk svona helvíti vel.“
Friðrik fékk smjörþefinn af tón-
listarbransanum þegar hann var í
Versló og hefur ekki litið um öxl
síðan. Hann söng í tveimur söng-
leikjum, Welcome to the Jungle og
Á tjá og tundri og fékk þar dýrmæta
reynslu á sviði. „Það var ótrúlega
fínn stökkpallur að syngja í Versló
því þar fær maður að vinna með
fagfólki. Ég var að vinna mikið með
Jóni Ólafssyni, Gunna Helga og svona
gaurum og það var mjög gaman.
Maður fær smjörþefinn af því hvernig
þetta er og í framhaldi af því þá
finnur maður að þetta er eitthvað
sem mann langar að gera.“
Frumraun Friðriks gekk þó ekki
áfallalaust fyrir sig því titillagið í
Welcome to the Jungle hlaut gagn-
rýni úr óvæntri átt þegar það var
tilnefnt til Gullkindarinnar á X-inu 977
sem versta lag ársins. „Sem betur
fer vann það ekki en þetta var svo
sem ekkert meistaraverk. Það var
bara gaman að þessu,“ segir hann
og hlær. „Ég skellti bara skuldinni
á alla aðra en sjálfan mig og sagði
öllum að þetta væri fyrir eitthvað
annað en sönginn.“
Friðrik útskrifaðist úr Versló vorið
2008 og haustið eftir ákvað hann að
fara í Iðnskólann í Hafnarfirði. „Það
hafði lengi blundað í mér draumur
um að verða grafískur hönnuður
eða arkitekt. Ég ákvað að tékka á
því en það fór ekki betur en svo að
ég var staddur með tuttugu fer-
tugum konum í tíma. Ég gafst upp
eftir eitt ár,“ segir hann. Eftir þessa
lífsreynslu ákvað hann að skrá sig í
stjórnmálafræði í Háskóla Íslands þar
sem hann kann betur við sig.
Það er ekki á hverjum degi sem
íslenskt R&B-lag lítur dagsins ljós hér
á landi. Miðað við vinsældir Friðriks
virðist þessi tónlistarstefna loksins
eiga möguleika á að festa rætur
hér á landi. „Það er ekki oft sem
svona tónlist er sungin á íslensku,“
viðurkennir Friðrik. „Það er svo ótrú-
lega auðvelt að detta í að vera hálf
halllærislegur við að reyna of mikið,
sem ég hef haft á tilfinningunni þegar
ég hef heyrt svona á Íslandi,“ segir
hann. „Maður verður að þora að vera
lúmskt hallærislegur en má samt ekki
missa sig. Ég er að reyna að dansa á
þessari línu. Einu áhyggjurnar sem
ég hafði voru þær hvort fólk myndi
bara hlæja að þessu af því að þetta
væri á íslensku. En mig langaði að
prófa þetta og sjá hvernig það færi í
mannskapinn,“ segir hann. „Ég verð
var við það sjálfur að í kjölfarið á
þessu lagi eru fleiri sem eru að koma
út úr skápnum með svona tónlist. Ég
ætla ekki að eigna mér það alveg
sjálfur að það sé að kvikna áhugi
en það er gaman að það skuli fleiri
vera að fikta við þetta.“
Friðrik hefur fengið góðan stuðn-
ing úr vinahópnum það sem af er
tónlistarferlinum og er mjög þakklát-
ur fyrir það. „Það hefur verið þvílíkt
gaman að því. Ég hef verið að spila
í Keflavík og þeir koma í tugum að
fylgjast með manni bæði þar og úti
um allt. Þeir eru að taka rosalega
vel í þetta,“ segir hann. Einnig hafa
fyrrum félagar hans úr fótboltanum
verið duglegir að mæta á tónleikana.
„Þeir eru sáttir við að kallinn er ekki
alveg glataður þótt hann hafi nú
ekki getað neitt í fótbolta.“
En hvað með stelpurnar. Eru þær
ekki vitlausar í þig? „Það eru ein-
hverjar sem hafa verið að koma
og tékka á manni en ég er samt á
bullandi föstu.“
ÞORIR AÐ
VERA LÚMSKT
HALLÆRISLEGUR
Hafnfirðingurinn Friðrik Dór Jónsson átti þriðja vinsælasta íslenska lagið á FM 957
á síðasta ári. Hann er að undirbúa sína fyrstu sólóplötu sem er væntanleg á árinu.
ORÐ: Freyr Bjarnason
MYND: Valli
Í UPPÁHALDI HJÁ
FRIÐRIKI:
Justin Timberlake
Neo
Chris Brown
Rihanna
Jay-Z
Kanye West
ERPUR KLÁRARI EN
MARGUR HELDUR
Friðrik Dór hefur starfað
náið með þeim Inga Má
Úlfarssyni og Jóhannesi
Bjarkasyni úr upptökuteym-
inu Reddlights. Þeir eru að
vinna að fyrstu sólóplötu
hans og einnig eru þeir
að leggja lokahönd á nýja
sólóplötu Erps Eyvindar-
sonar. Lagið Á sama stað
sem Friðrik samdi með Erpi
varð einmitt til í gegnum
þá. „Hann samdi sín vers og
það var virkilega gaman að
vinna með honum. Hann er
bara flottur gaur og örugg-
lega klárari en margur held-
ur,“ segir Friðrik um Erp.
Hann bætir við að sólóplata
sín sé á réttri leið. „Hún
kemur vonandi út í kringum
sumarið. Við erum að reyna
að búa til gæðapopp og
viljum ekki drífa okkur of
mikið.“