Fréttablaðið - 29.01.2010, Blaðsíða 41
Army of Two: The 40th Day er
ekki leikur sem leikmenn spila
einir í dimmu herbergi, þetta er
leikur sem hreinlega krefst þess
að félagi af holdi og blóði spili
með manni.
Stuttur og kjánalegur sögu-
þráður leiksins fjallar um tvo
málaliða, Salem og Rios, og sýnir
hvernig þeir skjóta sér leið út úr
Shanghaí.
Þeim sem freista þess að spila
einir í gegnum The 40th Day
mun líklega finnast lítið varið í
leikinn. Í fyrsta lagi er söguhluti
hans óþægilega stuttur, rétt um
sex tímar. Grafík leiksins á það til
að sýna manni áferðarlitla brúna
kassa ásamt því að gervigreind
óvina og samherja er alls ekki
nógu góð. Sem sagt hálfgerð
leikjaútgáfa af B-mynd.
Með raunverulegan félaga sér
við hlið er upplifunin allt önnur.
Hugsun leikmanna breytist og
skipulagning árásarinnar verður
lykilatriði í lífsbaráttunni gegn
þungvopnuðum morðingjum. Þá
er leikurinn ekki lengur í B-klassa
heldur í algjörum sérflokki hvað
varðar skemmtun sem er ofmett-
uð af karlhormónum.
Viggó I. Jónasson
POPPLEIKUR: ARMY OF TWO: THE 40TH DAY
TRAUSTUR VINUR …
Í SÉRFLOKKI Army of Two er í algjörum sérflokki sé leikurinn spilaður með félaga.
Þegar stríð himins og heljar herjar
á jörðina er War einn fjögurra
hestamanna á heimsenda sem
kallaður er til þess að framfylgja
fyrirmælum Guðs. Er hann talinn
hafa brotið reglu með móðgandi
komu sinni og er dæmdur til
dauða. Hann er handviss um að
einhver hafi komið sökinni á sig og
fær hann tækifæri til þess að finna
sökudólginn.
Þeir spilarar sem eru kunnugir
God of War-tvíleiknum ættu að
þekkja til bæði helstu stjórnareig-
inleika og útlits í Darksiders. Flestir
eiginleikar GoW-tvíleiksins eru til
staðar í Darksiders, þótt sagan
sé örlítið slakari. Þrátt fyrir það
reynist leikurinn vera hinn besti
og líkt og með GoW-tvíleikinn,
reynist Darksiders vera afar ávana-
bindandi. Söguþráður leiksins er
áhugaverður og eru drýslarnir og
englarnir flottir og með áhuga-
verðum breytingum frá því sem
maður hefði talið sér trú um.
Darksiders er góð byrjun á
spennandi leikjaári, og ætti að
svara blóðþorsta flestra spil-
ara þangað til að þriðji God of
War-leikurinn tröllríður öllu innan
fáeinna vikna. Vignir Jón Vignisson
POPPLEIKUR: DARKSIDERS
ÁVANABINDANDI Darksiders er afar ávanabindandi.
NIÐURSTAÐASPILUN GRAFÍK HLJÓÐ ENDING
4/5 4/5 4/5 4/5
NIÐURSTAÐASPILUN GRAFÍK HLJÓÐ ENDING
4/5 2/5 3/5 3/5
GÓÐ BYRJUN
Á LEIKJAÁRINU
8.999
10.499
10.999
11.499