Fréttablaðið - 29.01.2010, Blaðsíða 46
6 föstudagur 29. janúar
tíðin
✽ matur fyrir sælkera
Þ egar ég fór að keppa í fitness á sínum tíma var maturinn
frekar einhæfur og leiðinlegur. Þá
fór ég að leika mér með krydd til
að gera matinn skemmtilegri og
uppgötvaði þá hvað mér finnst
gaman að elda,” útskýrir Yesmine
sem er ættleidd frá Srí Lanka og
ólst upp í Svíþjóð. Hún segist
snemma hafa fundið fyrir mik-
illi tengingu við inverskan mat
og ferðaðist um Indland við gerð
matreiðslubókarinnar. „Þegar ég
byrjaði að elda indverskan mat
fann ég að réttirnir eru oft mjög
flóknir og það getur verið erfitt
að finna hráefnin. Ég ákvað því að
einfalda réttina og gera þá hollari
fyrir bókina,“ segir Yesmine sem
notar til dæmis minna salt, sykur
og olíu í uppskriftir sínar.
Í kjölfar útgáfu bókarinnar fékk
Yesmine fjölda fyrirspurna um
að kenna indverska matargerð og
ákvað því að slá til og halda mat-
reiðslunámskeið í Turninum. Á
námskeiðinu útskýrir hún bak-
grunn og heiti ýmissa indverskra
rétta og kennir alls sex uppskriftir.
Þar á meðal er indverskt lambalæri
sem Yesmine gaf okkur uppskrift
að. Námskeiðsgestir fá svo að
bragða á matnum með viðeigandi
víni og hjálpa til við eldamennsk-
una. „Þegar ég er að elda fæ ég
fólk til að koma upp og hjálpa mér
því ég vil kenna því hvernig á að
nota kryddin og fá tilfinningu fyrir
því hvernig maturinn er gerður,“
segir hún.
Verðlaunaafhendingin í keppn-
inni Gourmand World Cookbook
Award fer fram á bókamessu í París
11.-14. febrúar. Þar hefur Yesmine
verið boðið að sýna hluta af
Bollywood-sýningu sinni á opnun-
inni og elda fyrir gesti hátíðarinn-
ar. Þar að auki hafa aðstandend-
ur keppninnar boðið henni að elda
á bókamessu í Abu Dhabi í byrjun
mars. „Núna er ég er að vinna með
kokkunum uppi í Turni að aðstoða
þá við að útfæra heilsusamlegan
hádegisverðamatseðil og æfa mig
fyrir bókamessuna í París. Ég þarf
að skipuleggja mig mjög vel því
ég þarf að lýsa öllu sem ég elda á
ensku, vita hvað það tekur lang-
an tíma að búa það til og auðvitað
kaupa í matinn í Frakklandi,“ út-
skýrir hún. „Ég á eftir að æfa mjög
stíft því það munu margir virtir
og góðir kokkar koma þarna fram.
Þetta verður frekar stressandi, en
með því að halda matreiðslunám-
skeiðin finn ég að ég á alveg eftir
að þora að gera þetta úti,“ bætir
hún við og brosir.
Nú þegar er uppselt á næsta
matreiðslunámskeið Yesmine,
en áhugasamir geta skráð sig
á námskeið 18. febrúar inn á
veisluturninn.is. – ag
Yesmine Olson heldur matreiðslunámskeið í Turninum:
Hollt og indverskt
Spennandi krydd Yesmine gæðir lambalærið nýju lífi á indverska vísu.
2,5 kg lambalæri eða 6-800 g lamba-
kjöt í bitum.
Best er að marinera kjötið og láta
standa í ísskáp í 1-2 daga.
Blanda 1
5 kardimommur
10 negulnaglar
5 cm löng kanelstöng
1 tsk. túrmerik
2 tsk. cumin
2 stórir laukar skornir í fernt
5 hvítlauksrif
1-2 grænir chili (með eða án fræja)
5 cm af ferskri engiferrót afhýdd,
skorin gróft
Safi af 1 sítrónu
Maldon-salt eftir smekk
Blanda 2
2 msk. hrein jógúrt
1 msk. hunang
1 msk. pistasíuhnetur
1 msk. rúsínur
Takið til kryddin á disk
Þurrristið kardimommur, negulnagla,
kanil og cuminfræ, eina tegund í einu.
Myljið hvert krydd fyrir sig í mortéli til
að ná fram sem mestu bragði.
Undirbúið restina af hráefninu í
blöndu 1.
Setjð blöndu 1 í blandara og maukið.
Nuddið maukinu vel í kjötið og látið
marinerast í kæli hið minnsta yfir nótt.
Samdægurs
Takið kjötið úr kælinum og látið það
ná stofuhita. Setjið blöndu 2 í bland-
ara og maukið.
Hitið ofninn í 180°C. Setjið lærið í
steikingarskúffu og hyljið vel með
blöndu 2. Setjið álpappír yfir lærið,
steikið í 1½-2 tíma. Takið álpappír-
inn af og steikið áfram í 10-15 mín-
útur eða þar til kryddmaukið er orðið
stökkt og gullinbrúnt.
Ef þið notið kjötbita þá er best að
hreinsa marineringuna af bitunum og
snöggsteikja kjötið á pönnu og síðan
setja það í eldfast mót og hylja með
blöndu 2.
Sett í ofninn og steikt áfram í 15-20
mínútur.
Finn mikla tengingu við
indverskan mat
Yesmine Olson einkaþjálfariri
Indverskt lamb
MEINHOLLT OG DÁSAMLEGT Byrjaðu morguninn á því að búa til heitt
kakó úr lífrænu súkkulaði og matskeið af hunangi. Unaðslega gott toblerone-
bragð og svo er þetta gott fyrir kroppinn!
BYLGJAN
Í FYRSTA SÆTI
Bylgjan ber af og tryggir að skilaboð auglýsenda
komist áleiðis til mikilvægustu markhópanna.*
* Samkvæmt mælingum Capacent á hlustun í mínútum í aldurshópnum 18 – 49 ára, vika 40, 2009.
Auglýsing á Bylgjunni birtist samtímis á Létt Bylgjunni og Gull Bylgjunni.
BYLGJAN ÞAKKAR HLUSTENDUM SAMFYLGDINA Á HVERJUM DEGI