Fréttablaðið - 29.01.2010, Side 58
26 29. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
IÐNÓ
TILBRIGÐI VIÐ STEF
Nýtt íslenskt leikrit
eftir Þór Rögnvaldsson
Stef: Hin sterkari
eftir Strindberg
Næstu sýningar: 29/1, 31/1, 4/2,
6/2, 11/2
Sími 562 9700 kl. 11–16
www.midi.is
Brennuvargarnir (Stóra sviðið)
Fös 5/2 kl. 20:00 U
Mið 17/2 kl. 20:00 U
Fim 18/2 kl. 20:00 Síðasta sýn. Ö
Fös 12/2 kl. 20:00 Frums. U
Lau 13/2 kl. 20:00 2. K U
Fös 19/2 kl. 20:00 3 K Ö
Gerpla (Stóra sviðið)
Lau 20/2 kl. 20:00 4. K Ö
Fim 25/2 kl. 20:00 Aukas. U
Fös 26/2 kl. 20:00 5. K Ö
Lau 27/2 kl. 20:00 6. K Ö
Fös 5/3 kl. 20:00 7. K Ö
Lau 6/3 kl. 20:00 8. K Ö
Fös 29/1 kl. 19:00 U
Lau 30/1 kl. 15:00 U
Lau 30/1 kl. 19:00 U
Lau 6/2 kl. 15:00 U
Lau 6/2 kl. 19:00 U
Sun 14/2 kl. 15:00 U
Sun 14/2 kl. 19:00 Ö
Oliver! (Stóra sviðið)
Sun 21/2 kl. 15:00 U
Sun 21/2 kl. 19:00 Ö
Sun 28/2 kl. 15:00 Ö
Sun 28/2 kl. 19:00 Ö
Sun 7/3 kl. 15:00 Ö
Sun 7/3 kl. 19:00 Ö
Sun 14/3 kl. 15:00 U
Sun 14/3 kl. 19:00 Ö
Sun 21/3 kl. 15:00 Ö
Sun 21/3 kl. 19:00
Lau 27/3 kl. 15:00 Ö
Lau 27/3 kl. 19:00
Sun 28/3 kl. 15:00
Oliver! MBL, GB. Nýjar sýningar komnar í sölu.
„Besta leiksýning ársins“ MBL, IÞ. Síðasta sýning 18. febrúar.
Miðasala hafin - tryggið ykkur sæti á fyrstu sýningar!
Lau 30/1 kl. 15:00 Ö
Sun 31/1 kl. 15:00 U
Sindri silfurfi skur (Kúlan)
Sun 31/1 kl. 16:30 Síðasta sýn. Ö
Allra síðustu sýningar 31. janúar!
Lau 13/3 kl. 15:00 Frums. U
Sun 14/3 kl. 13:00 U
Sun 14/3 kl. 15:00 U
Lau 20/3 kl. 13:00 U
Lau 20/3 kl. 15:00 U
Fíasól (Kúlan)
Sun 21/3 kl. 13:00 U
Sun 21/3 kl. 15:00 U
Lau 27/3 kl. 13:00 U
Lau 27/3 kl. 15:00 U
Sun 28/3 kl. 13:00 U
Sun 28/3 kl 15:00 U
Lau 10/4 kl 13:00 Ö
Lau 10/4 kl 15:00 Ö
Sun 11/4 kl 13:00 Ö
Sun 11/4 kl 15:00 Ö
Sprellfjörug sýning um gleðisprengjuna ómótstæðilegu!
Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna
er samstarfsverkefni tónlistarskóla
á höfuðborgarsvæðinu. Á morgun
kl. 16 heldur hljómsveitin tónleika í
Langholtskirkju þar sem unga kyn-
slóðin sýnir hvað í henni býr.
Ungur trompetleikari, Baldvin
Oddsson, verður einleikari með
sveitinni. Þótt Baldvin sé aðeins
fimmtán ára hefur hann þegar
vakið athygli fyrir fágaðan trompet-
leik. Nú verður hann í aðalhlutverki
í hinum goðsögulega trompetkons-
ert eftir Joseph Haydn.
Þrjú önnur verk verða flutt á
tónleikunum. Geimskot, „Lift off“,
eftir Russell Peck fyrir þrjá slag-
verksleikara og níu bassatrommur
líkja eftir hljóðheimi geimskips í
flugtaki. Ævintýri eitt ég veit eftir
Snorra Sigfús Birgisson er samið að
beiðni Sinfóníuhljómsveitar tónlist-
arskólanna fyrir slagverk og þrjú
laglínuhljóðfæri. Sinfónía nr. 5 eftir
Felix Mendelssohn (Reformation) er
samin 1830 í tilefni þess að 300 ár
voru liðin frá stofnun mótmælenda-
kirkjunnar í Evrópu. Stjórnandi er
Daníel Bjarnason. Á tónleikun-
um kemur einnig fram sex manna
hópur hljóðfæraleikara úr hljóm-
sveitinni og flytur tvö kammerverk
undir stjórn Péturs Grétarssonar.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 29. janúar 2010
➜ Tónleikar
20.00 Óp-hópurinn stendur fyrir tón-
leikum í Selinu að Stokkalæk á Rangár-
völlum. Á efnisskránni verða Vínar- og
óperettulög. Nánari upplýsingar á www.
op-hopurinn.is.
22.00 Magni
Ásgeirsson og félagar
í hljómsveitinni Killer
Queen verða með tón-
leika á Græna hattin-
um við Hafnarstræti á
Akureyri. Húsið verður
opnað kl. 21.
22.00 Hljómsveitin
Gæðablóð heldur tónleika á Bar og
gallerí 46 við Hverfisgötu 46.
23.00 Úlpa og Hudson Wayne koma
fram á tónleikum á Grand Rokki við
Smiðjustíg.
➜ Sýningar
Í Skotinu, sýningarými Ljósmyndasafns
Reykjavíkur við Tryggvagötu (6. hæð),
hefur verið opnuð sýning á ljósmyndum
Laurent Friob. Opið virka daga kl. 12-
19, og helgar kl. 13-17.
Inger Helene Bóasson sýnir ljósmyndir
á stigapalli 3ju og 4ðu hæðar Landa-
kotsspítala í Landakoti. Opið alla daga
kl. 09-21.
➜ Síðustu forvöð
Í Artóteki, 1. hæð Borgarbókasafns
Reykjavíkur við Tryggvagötu, lýkur sýn-
ingu Sari Maarit Cedergren á sunnu-
daginn. Opið fös. kl. 10-19, lau. og sun
kl. 13-17.
Sýningu Steinunnar Sigurðardóttur
fatahönnuðar á Kjarvalsstöðum við
Flókagötu, lýkur á sunnudag. Opið alla
daga frá kl. 10-17.
➜ Myrkir músikdagar
12.10 Anna Guðný Guðmundsdóttir
píanóleikari og Auður Hafsteinsdóttir
fiðluleikari flytja verk eftir Þorkel Sigur-
björnsson, Jón Nordal og Karl O. Run-
ólfsson á Kjarvalsstöðum við Flókagötu.
20.00 Á Batteríinu við Hafnarstræti
1-3 verða flutt raftónverk eftir Ríkharð
H. Friðriksson, Ragnhildi Gísladóttur,
Kolbein Einarsson, Lýdíu Grétarsdótt-
ur, Wayne Siegel og Kjartan Ólafsson.
22.00 Anna Þorvalds-
dóttir flytur eigin verk á
tónleikum í Sölvhóli, sal
Listaháskólans við Sölv-
hólsgötu. Einnig koma
fram Daniel Shapira,
Frank Aarnink, Katie
Buckley, Hjörtur
Jóhann Jónsson
og Ólöf Halldórs-
dóttir.
Myrkir músík-
dagar standa yfir
til 31. jan. Nánari
upplýsingar á www.
listir. is/myrkir/.
➜ Dansleikir
Dj. Örlygur Smári sér um tónlistina á
Skemmtistaðunum Spot við Bæjarlind
í Kópavogi.
➜ Leikrit
20.00 Leikverkið „Tilbrigði við stef“
eftir Þór Rögnvaldsson í leikstjórn Ingu
Bjarnason verður flutt í Iðnó við Von-
arstræti. Leikarar: Valgeir Skagfjörð og
Gunnar Gunnsteinsson, Lilja Þórisdóttir
og Guðrún Þórðardóttir. Nánari upplýs-
ingar á www.leikhopar.is.
20.00 Nemendaleikhús Listaháskóla
Íslands sýnir „Bráðum hata ég þig“
eftir Sigtrygg Magnason í Smiðjunni
við Sölvhólsgötu. Nánari upplýsingar á
www.lhi.is.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Út er að koma bókin Hveragerði,
búsetusaga eftir Þorstein Ant-
onsson og Normu E. Samúels-
dóttur.
Þorsteinn leggur til form og
efnisfrágang sögunnar en hug-
hrif og jarðsamband er komið
frá Normu. Hún á ættir að rekja
vestur á firði og á ljúfsárar end-
urminningar frá Hnífsdal við
vestanvert Djúp. Í bókinni segir
af mannlífi í Hveragerði, bæ
listafólks, sumars og grósku en
einnig vetrarnæðings og fólks
sem lifir þar haust- og vetrar-
tíð ævi sinnar vegna aldurs
eða sjúkdóma. Bókina prýða
teikningar Braga Einarssonar
í Eden.
Hveragerði í bók
menning@frettabladid.is
Iðnó í kvöld kl. 20
Leikverkið Tilbrigði við stef
eftir Þór Rögnvaldsson í leik-
stjórn Ingu Bjarnason er nú
sýnt í Iðnó. Verkið hefst á
örleikriti Strindbergs, Hin
sterkari (Den starkere), en
síðan prjónar Þór aftan við verk
Strindbergs fjögur ólík en sam-
tvinnuð tilbrigði. Leikarar eru
þau Valgeir Skagfjörð, Gunnar
Gunnsteinsson, Lilja Þórisdótt-
ir og Guðrún Þórðardóttir.
> Ekki missa af
Fram undan er síðasta sýning-
arhelgin á tveimur sýningum
í Listasafni ASÍ við Freyjugötu.
Þar lýkur málverkasýningu
Þorra Hringssonar og ljós-
mynda- og myndbandssýn-
ingu Jóhannesar Dagssonar,
Firnindi. Á Kjarvalsstöðum
lýkur svo sýningu Steinunnar
Sigurðardóttur fatahönnuðar.
Sýningin hefur notið mikilla
vinsælda því hátt í tíu þúsund
gestir hafa séð hana.
Þrennir tónleikar eru
haldnir á vegum Myrkra
músíkdaga í dag. Þessari
stórglæsilegu tónlistar-
veislu lýkur á sunnudaginn.
Á Batteríinu, Hafnarstræti 1-3,
verða frumflutt sex ný raftónverk
eftir þau Ríkharð H. Friðriksson,
Ragnhildi Gísladóttur, Kolbein Ein-
arsson, Lýdíu Grétarsdóttur, Wayne
Siegel og Kjartan Ólafsson. Tónleik-
arnir hefjast kl. 20.
Á Kjarvalsstöðum leika Auður
Hafsteinsdóttir og Anna Guðný
Guðmundsdóttir íslenska tónlist
fyrir fiðlu og píanó. Verkin eru þrjú:
G-Svíta eftir Þorkel Sigurbjörnsson,
sónata eftir Jón Nordal og sónata
fyrir fiðlu og píanó op. 14 eftir Karl
O. Runólfsson. Þetta eru hádegistón-
leikar og hefjast kl. 12.10.
Í Sölvhóli, sal Listaháskóla
Íslands, Sölvhólsgötu 13, verða flutt
níu verk eftir Önnu Þorvaldsdóttur,
á tónleikum sem ganga undir nafn-
inu Rökkur andar hljóði. Verk Önnu
eru flutt reglulega um alla Evrópu
og í Bandaríkjunum af íslenskum
sem erlendum flytjendum. Verk
hennar hafa hljómað á hátíðum á
borð við Nordic Music Days, Prague
Premieres, Festival Nord ischer
Klang, Sumartónleika í Skálholti
og Ung Nordisk Musik svo fátt eitt
sé nefnt.
Anna stundar nú doktorsnám
við University of California í San
Diego í Bandaríkjunum í samstarfi
við Rand Steiger, tónskáld og hljóm-
sveitarstjórnanda. Meðal þess sem
er á döfinni hjá henni er vinna við
tónlist fyrir útvarpsleikrit á vegum
Ríkisútvarpsins, ritun hljómsveit-
arverks sem er pöntun frá Sinfóníu-
hljómsveit Íslands vegna verks sem
frumflytja á í nýja tónlistar- og ráð-
stefnuhúsinu í Reykjavík og kamm-
erhljómsveitarverk fyrir UCSD
New Music Ensemble sem verður
frumflutt í San Diego, Kaliforníu,
í mars 2010.
Þeir sem koma fram auk Önnu
sjálfrar á þessum tónleikum eru
Daniel Shapira, sem sér um hljóð- og
tæknivinnslu, Frank Aarnink, sem
leikur á slagverk og flygil, Katie
Buckley, sem leikur á hörpu, og
Hjörtur Jóhann Jónsson sem beitir
fyrir sig röddinni. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 22. drgunni@frettabladid.is
RÖKKUR OG RAFTÓNVERK
RÖKKUR ANDAR HLJÓÐI
Verk eftir Önnu Þorvalds-
dóttur verða flutt í kvöld.
Styrkveitingar menn-
ingar- og ferðamálaráðs
Reykjavíkurborgar voru
tilkynntar í gær. Til ráð-
stöfunar voru 62 milljón-
ir króna, sem deilast á 91
umsækjanda. Alls bárust
177 umsóknir.
Stórsveit Reykjavíkur
var valin Tónlistarhóp-
ur Reykjavíkur 2010 og
hlýtur styrk upp á tvær
milljónir. Sveitin hefur á
undanförnum átján árum
haldið á annað hundrað
tónleika og mun í ár halda áfram að flytja
nýja og gamla tónlist með innlendum og
erlendum gestum í fremstu röð.
Hæsta styrkinn, 4,5 milljónir, hlaut
Nýlistasafnið. Safnið stendur nú á tímamót-
um, er að flytja í stærra
og ódýrara húsnæði að
Skúlagötu 28. Í tilefni af
því verða haldnar nokkr-
ar athyglisverðar sýning-
ar og sú fyrsta á erindi
við skólabörn í borginni:
Barnasviðið – skapandi
endurnýtingastöð.
Næsthæsta styrkinn,
2,3 milljónir, hlaut Mögu-
leikhúsið sem hefur starf-
að samfellt frá árinu 1990
og lengi verið eina barna-
leikhúsið í höfuðborginni.
Á döfinni eru nýjar leiksýningar unnar upp
úr íslenskum þjóðararfi.
Styrk upp á tvær milljónir hlutu m.a
Íslenski dansflokkurinn, Vesturport og
Caput-hópurinn.
Borgin styrkir listina
Ungir sýna sig
STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR Tónlistarhópur
Reykjavíkur 2010.
FÓLK FRAMTÍÐARINNAR Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna og stjórnandinn Daníel
Bjarnason.