Fréttablaðið - 29.01.2010, Side 64
32 29. janúar 2010 FÖSTUDAGUR
sport@frettabla-
EM Í AUSTURRÍKI
EIRÍKUR STEFÁN ÁSGEIRSSON
skrifar frá Vín
eirikur@frettabladid.is
EM í handbolta:
Ísland-Noregur 35-34 (18-16)
Mörk Íslands: (skot): Arnór Atlason 10 (12),
Guðjón Valur Sigurðsson 5 (7), Snorri Steinn
Guðjónsson 4/3 (7/4), Róbert Gunnarsson 4 (7),
Ólafur Stefánsson 4 (8), Alexander Petersson 3
(5), Vignir Svavarsson 2 (2), Aron Pálmarsson 2
(3), Ásgeir Örn Hallgrímsson 1 (2).
Varin skot: Hreiðar Guðmundsson 9/1 (25/2,
36%), Björgvin Páll Gústavsson 8 (26/5, 31%).
Hraðaupphlaup: 14 (Guðjón 4, Alexander 3, Vign-
ir 2, Róbert 2, Ásgeir 1, Arnór 1, Ólafur 1).
Fiskuð víti: 4 (Ólafur 2, Snorri Steinn 1, Róbert 1).
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Noregs (skot): Håvard Tvedten 8/6 (10/6),
Bjarte Myrhol 5 (6), Kristian Kjelling 5 (8), Lars
Erik Björnsen 4 (6), Börge Lund 4 (6), Kjetil
Strand 4 (10), Erlend Mamelund 2 (4/1), Frank
Löke 2 (5).
Varin skot: Steinar Ege 8 (43/3, 19%).
Hraðaupphlaup: 9 (Myrhol 4, Björnsen 2, Strand
1, Lund 1, Mamelund 1).
Fiskuð víti: 7 (Löke 4, Tvedten 2, Björnsen 1).
Utan vallar: 10 mínútur.
Rússland-Austurríki 30-31
Króatía-Danmörk 27-23
STAÐAN:
Króatía 5 4 1 0 134-123 9
Ísland 5 3 2 0 163-149 8
Danmörk 5 3 0 2 136-134 6
Noregur 5 2 0 3 138-135 4
Austurríki 5 1 1 3 148-156 3
Rússland 5 0 0 5 140-161 0
ÚRSLIT
HANDBOLTI Guðjón Valur Sigurðs-
son segir að nú hefjist nýtt mót
hjá íslenska landsliðinu eftir að
það tryggði sér sæti í undanúr-
slitum á EM í handbolta með sigri
á Noregi í gær.
„Við lögðum leikinn þannig upp
að hann væri eins og Póllands-
leikurinn á Ólympíuleikunum.
Þetta var í raun eins og leikur
í 8-liða úrslitum,“ segir Guðjón
Valur.
„Við vildum ekki treysta á
neina aðra og það er gott að geta
verið í bílstjórasætinu. Við getum
leyft okkur að vera ánægðir eftir
þennan sigur en nú hefst hjá
okkur í raun nýtt mót með undan-
úrslitunum um helgina.“ - esá
Guðjón Valur Sigurðsson:
Nú byrjar nýtt
mót hjá okkur
MAGNAÐUR Guðjón Valur hefur látið til
sín taka á EM. MYND/DIENER
HANDBOLTI Ólafur Stefánsson
landsliðsfyrirliði var vitanlega
himinlifandi yfir árangri lands-
liðsins á EM í Austurríki. Liðið er
þar komið í undanúrslit eftir sigur
á Noregi í gær, 35-34.
„Mér líður ágætlega,“ sagði
hann í samtali við Fréttablaðið
eftir leik. „Það eina sem er skrítið
er að maður er svolítið hrokafull-
ur og ekki að missa sig í einhverju
gleðikasti. Ég er bara glaður en
veit að þetta er ekki nema eitt
skref og ekki lokaskrefið.“
Hann segir að nú taki við enn
á ný sama ferlið þegar liðið hefur
undirbúning fyrir næsta leik.
„Við fáum að slaka á í kvöld og
svo byrjum við að leikgreina aftur
á morgun. Þannig er þetta bara.
Við viljum ekki eitthvað sem er
ásættanlegt og þau tækifæri sem
gefast á maður að grípa.“
Hann segir að liðið hafi ekki enn
toppað á mótinu.
„Við getum spilað enn betur.
Við vorum klaufar í þessum leik
að hafa ekki náð að hrista þá
af okkur. Við vorum oft þrem-
ur mörkum yfir og misstum for-
ystuna oft niður í 1-2 mörk. Þeir
náðu meira að segja að komast
yfir í seinni hálfleik. Það vantaði
alltaf herslumuninn hjá okkur.“
En tækifærin voru til staðar,
segir Ólafur.
„Það voru fjölmargir sénsar
sem við hefðum átt að nýta betur
og koma okkur í 4-5 marka for-
ystu. Dómararnir byrjuðu reynd-
ar að tína okkur út af eftir að þeir
norsku fóru að henda sér í gólfið
og fiska sóknarbrot á okkur. Það
var vissulega dýrt en við sýndum
mikinn karakter að koma okkur
aftur inn í leikinn, sérstaklega
þar sem þeir voru að komast á
fínt skrið.“
Ólafur sagði frammistöðu Arn-
órs Atlasonar í leiknum hafa verið
frábæra. „Þetta voru gullin mörk
sem hann skoraði. Allt óvænt mörk
og nánast allt hafnaði í netinu hjá
honum. Það var líka frábært að við
skyldum hafa klárað [Steinar] Ege
eins og við gerðum. Það er sjald-
an sem hann er í eins stafa tölu í
vörðum skotum. Það var lykillinn
að þessum árangri hjá okkur.“
- esá
Ólafur Stefánsson landsliðsfyrirliði var manna rólegastur í fagnaðarlátunum eftir sigurinn á Noregi:
Þetta er bara eitt skref og ekki lokaskrefið
FYRIRLIÐINN YFIRVEGAÐUR Ólafur Stef-
ánsson var ekki að missa sig í gleðinni í
gær. MYND/DIENER
Guðmundur Guðmundsson var greinilega hrærður eftir sigur
Íslands á Noregi á EM í handbolta í gær. Með sigri tókst Íslandi að
tryggja sér sæti í undanúrslitum keppninnar en liðið er enn
taplaust eftir sex leiki.
„Þessi leikur var eins og að hann hefði verið í átta liða
úrslitum þó svo að hann hefði verið í milliriðlakeppninni,“
sagði Guðmundur eftir leikinn. „Það var bara allt eða ekkert
– inni eða úti.“
Guðmundur segir að þessi sigur sé tileinkaður Gunnari
Magnússyni handknattleiksþjálfara sem hefur starfað náið með
Guðmundi og Óskari Bjarna Óskarssyni aðstoðarlandsliðsþjálf-
ara í kringum landsliðið. „Okkur hefur ekki liðið vel því að félagi
okkar hefur átt um sárt að binda. Við hugsum mikið til hans og
ákváðum að tileinka honum þennan leik og sigur. Þetta var tákn-
rænn sigur fyrir hann og hans fjölskyldu.“
Hann segir að allir í kringum landsliðið hafi hugsað mikið til hans
á síðustu dögum. „Það hafa verið erfiðar tilfinningar hjá mörgum
í liðinu vegna þessa. Ég var því afskaplega ánægður með liðið
og hvernig þeir kláruðu þetta verkefni. Þeir hafa staðið sig
stórkostlega.“ Um leikinn segir hann að það hafi verið afar erfitt að
ráða við norska liðið. „Þetta er líklega besta norska landslið sem
ég hef séð og mátti ekki miklu muna hjá okkur, en það tókst.“
Íslenska liðið hefur spilað mjög grimman varnarleik til þessa á
mótinu en leyfði sér þó ekki að ganga jafn langt og í öðrum
leikjum. „Norðmenn eru með afar öfluga línumenn. Svo þarf
að fara út í skytturnar og því kemur upp erfið staða. Við fund-
um ekki nógu gott jafnvægi þarna á milli en samt nógu
mikið svo að það dugði til.“
Oft dugði ekkert annað en að sleppa línumönnunum
þegar þeir fengu boltann. „Það er betra en að fá á sig bæði
mark og tveggja mínútna brottvísun. Það þýðir ekki að eiga
við það.“ Enn og aftur var Guðmundur skiljanlega óánægður
með dómgæsluna á mótinu. „Eitt dæmi er að Róbert var
tvisvar dæmdur brotlegur þegar hann stóð kyrr á vellinum
- grafkyrr. Ef það er ólögleg hindrun þá er það ný regla.
Það er alveg hrikalega erfitt að þurfa að eiga við svona
lagað og ég vona innilega að þetta verði ekki svona í
undanúrslitunum.“
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON LANDSLIÐSÞJÁLFARI: HUGSAR TIL FÉLAGA SEM Á UM SÁRT AÐ BINDA
Þessi sigur er tileinkaður góðum félaga okkar
> Arnór hefur bætt sig um 30-40 prósent
Steinar Ege, markvörður norska landsliðsins og liðsfélagi
Arnórs Atlasonar hjá FCK, lenti í miklum vandræðum
með þann síðarnefnda í gær. Arnór skoraði tíu mörk úr
tólf skotum í leik Íslands og Noregs á EM. „Arnór hefur
verið frábær á mótinu. Hann hefur átt við
meiðsli að stríða en notaði þann tíma
mjög vel til að bæta skotin sín og styrkja
sig. Ég tel að hann hafi bætt sig um
30-40 prósent á síðasta eina og hálfa
ári,“ sagði Ege við Fréttablaðið. Um
leikinn sagði hann að Norðmenn
hefðu gefið allt sem þeir áttu. „Það
var þó ekki nógu mikill stöðugleiki
í vörninni og Ísland átti skilið að
vinna.“
HANDBOLTI Ísland keppir til verð-
launa á Evrópumeistaramótinu í
handbolta sem haldið er í Austur-
ríki. Þetta varð ljóst eftir að Ísland
vann magnaðan sigur á Noregi í
lokaumferð milliriðlakeppninnar,
35-34.
Arnór Atlason var frábær í
leiknum í gær og skoraði alls tíu
mörk úr tólf skotum. Steinar Ege,
sem er af mörgum talinn einn
besti markvörður heims, átti ekk-
ert svar við honum né öðrum til-
burðum íslensku sóknarmannanna
lengst af í leiknum.
Ísland hafði forystu nánast allan
leikinn og fékk ótal tækifæri til
að stinga Norðmennina af. Það er
í raun ótrúlegt og til marks um
magnaðan sóknarleik liðsins að
það hafi skorað átján mörk í fyrri
hálfleik þó svo að liðið hafi þá mis-
notað fimm dauðafæri, ýmist af
línu eða úr hraðaupphlaupi.
Ísland náði forystunni eftir
fyrsta stundarfjórðunginn og hélt
henni þar til rúmar ellefu mínút-
ur voru til leiksloka. Þá tókst Nor-
egi að komast yfir, 28-27, en Ísland
svaraði með þremur mörkum í röð
og sex af næstu átta. Liðið lét for-
ystuna aldrei af hendi eftir það,
þrátt fyrir að að Norðmenn hafi
gert allt sem þeir gátu til að koma
sér inn í leikinn á síðustu tíu mín-
útunum tókst það ekki.
Það var fyrst og fremst tveimur
mönnum að þakka. Annars vegar
Björgvini Páli Gústavssyni sem
varði fjögur skot á síðustu mín-
útunum, hvert öðru mikilvægara,
og hins vegar Arnóri Atlasyni sem
skoraði fjögur af síðustu fimm
mörkum Íslands í leiknum.
En það kom vitanlega meira til
en aðeins framlag þeirra tveggja
í þessum erfiða leik.
Vignir Svavarsson átti afar góða
innkomu í íslensku vörnina eftir að
Ingimundur Ingimundarson hafði
fengið tvær tveggja mínútna brott-
vísanir með skömmu millibili í
fyrri hálfleik. Aron Pálmarsson
átti sem fyrr fína spretti í sókninni
þegar hann fékk tækifærið og þá
varði Hreiðar Guðmundsson nokk-
ur mjög mikilvæg skot. Róbert,
Snorri Steinn, Guðjón Valur, Alex-
ander, Sverre, Ingimundur, Ásgeir
Örn og ekki síst Ólafur - allir skil-
uðu þeir sínu í leiknum og gott
betur.
Eins og við var að búast voru
línumennirnir Frank Löke og
Bjarte Myrhol afar erfiðir viður-
eignar og baráttan við þá setti svip
á allan varnarleik íslenska liðsins.
Það gerði það að verkum að skytt-
urnar fengu mun meira frelsi hjá
íslensku varnarmönnunum en hjá
fyrri andstæðingum Íslands á mót-
inu. Engu að síður leystu íslensku
varnarmennirnir þetta erfiða
verkefni vel.
Liðið fær fyrst og fremst mikið
hrós fyrir að gefast aldrei upp. Það
var við það að stinga Norðmennina
af í nokkur skipti en þó svo að það
hefði gengið á ýmsu héldu strák-
arnir sínu striki og kláruðu verk-
efnið með miklum sóma.
Enn og aftur var dómgæslan
í allt of stóru hlutverki í leikn-
um og hlýtur það að teljast mikið
áhyggjuefni að nánast allir leikir
Íslands einkennast af afar furðu-
legri dómgæslu.
Ísland mætir Frakklandi í und-
anúrslitum á laugardaginn og fær
þá tækifæri til að hefna fyrir ófar-
irnar í úrslitaleik Ólympíuleikanna
í Peking.
Veisla í Vínarborg um helgina
Ísland vann í gær sigur á Noregi, 35-34, og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitum á EM í handbolta.
Ísland mætir Frakklandi í undanúrslitum en óhætt er að segja að strákarnir okkar séu sjóðandi heitir.
EINLÆGUR FÖGNUÐUR Róbert Gunnarsson og Arnór Atlason fagna hér hreint ógurlega þegar ljóst var að Ísland var komið í und-
anúrslit á Evrópumeistaramótinu í Austurríki. MYND/DIENER
FAÐMLAG Guðmundur faðmaði strák-
ana sína eftir leikinn. MYND/DIENER