Fréttablaðið - 29.01.2010, Side 67
FÖSTUDAGUR 29. janúar 2010 35
EM í handbolta:
Þýskaland-Tékkland 26-26
Slóvenía-Spánn 32-40
Pólland-Frakkland 24-29
STAÐAN:
Frakkland 5 4 1 0 135-118 9
Pólland 5 3 1 1 148-144 7
Spánn 5 3 1 1 162-133 7
Tékkland 5 1 1 3 142-154 3
Slóvenía 5 0 2 2 3 159-178 2
Þýskaland 5 0 2 3 127-136 2
ÚRSLIT
EINSTAKAR
HERRAVÖRUR
ÁN ILM–
OG
LITAR–
EFNA
FÓTBOLTI Viktor Bjarki Arnarsson
skrifaði í gær undir þriggja ára
samning við KR. Þetta er í annað
sinn sem hann kemur til KR en
hann lék þar sem lánsmaður hjá
félaginu sumarið 2008.
„Þetta er þriggja ára samningur
en ég ætla mér aftur út eftir eitt
ár,“ segir Viktor Bjarki léttur og
ákveðinn. Hann lék með Nyberg-
sund í fyrra en var ekki spennt-
ur fyrir að vera þar áfram. „Þetta
var ekkert til að hrópa húrra fyrir.
Þessi bolti hentaði mér ekki vel.
Langar spyrnur í stað þess að spila
fótbolta.“
Viktor fór upphaflega til Lille-
ström en þjálfarinn sem keypti
hann þangað var rekinn viku eftir
að hann kom til félagsins. „Svo
meiddist ég og fékk engin tæki-
færi hjá nýja þjálfaranum. Þetta
gekk ekki alveg upp en ég sé samt
alls ekkert eftir tímanum í Nor-
egi,“ segir Viktor Bjarki sem seg-
ist vera sáttur við samninginn við
KR.
„Ég á bestu árin eftir og efsta
deild hér heima er betri gluggi en
neðri deild í Noregi,“ segir Viktor
en af hverju KR? „KR var áhuga-
verðasti kosturinn. Það vantar
mann fyrir Gumma Ben. sem vill
spila fótbolta. Svo þekki ég félag-
ið vel og mér líkar einnig vel við
Loga þjálfara.“ - hbg
Viktor Bjarki Arnarsson samdi við KR í gær:
Ætla mér aftur út
AFTUR Í RÖNDÓTT Viktor Bjarki er hér í leik með KR árið 2008. MYND/VALLI
HANDBOLTI Spánverjar sátu eftir
með sárt ennið þegar Frakkar
lögðu Pólverja, 29-24, í síðasta
leik milliriðils 2.
Talsverð pressa var á Frökkum
fyrir leikinn þar sem tap í honum
hefði fleytt Spánverjum áfram.
Spánverjar kláruðu sitt verkefni
vel gegn Slóveníu og vonuðu hið
besta.
Frakkarnir stigu aftur á móti
upp þegar á þurfti að halda og
lönduðu öruggum sigri á Pól-
verjum sem voru eflaust ekki að
keyra á fullu gasi þar sem liðið
hafði þegar tryggt sig áfram í
undanúrslit fyrir leikinn.
Það verða því Danir og Spán-
verjar sem leika um 5.-6 sætið á
mótinu að þessu sinni. - hbg
Milliriðill 2:
Frakkar skelltu
Pólverjum
VONBRIGÐALIÐ Danir stóðu ekki undir
eigin væntingum á EM og áttu aldrei
möguleika gegn Króatíu í gær.
NORDIC PHOTOS/AFP
HANDBOLTI Róbert Gunnarsson
sagði leikinn við Noreg í gær
hafa verið mjög furðulegan.
„Þetta var fáránlegur leikur,“
sagði Róbert. „Norðmennirn-
ir grýttu sér í jörðina hvað eftir
annað og við vorum alltaf að fá
dæmdar á okkur ólöglegar hindr-
anir. En svo gerðist það hinum
megin líka.“
Hann segir þó að dómararn-
ir hafi ekki hallað meira á annað
liðið.
„Nei, alls ekki. En þetta var
skrýtinn leikur og því var það
svo gott hjá okkur að halda haus.
Þetta var erfiður leikur og við
tileinkum allir Gunnari Magnús-
syni sigurinn.“ - esá
Róbert Gunnarsson:
Héldum haus
RÓBERT Hefur átt frábæra leiki á EM.
MYND/DIENER
KNATTSPYRNA Íslenska landslið-
ið fær spennandi vináttulands-
leik gegn landsliði Mexíkó þann
24. mars.
Leikurinn mun fara fram í
Charlotte í Bandaríkjunum þar
sem landslið Mexíkó verður á
æfingaferðalagi fyrir HM.
Þetta er annar vináttulands-
leikurinn sem næst í hús á stutt-
um tíma en fyrr í vikunni var
tilkynnt að Ísland myndi mæta
Liechtenstein á Laugardalsvelli
þann 11. ágúst. - hbg
Vináttulandsleikur í fótbolta:
Ísland mætir
Mexíkó