Fréttablaðið - 05.02.2010, Blaðsíða 20
5. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR4
Anna Sigríður Pálsdóttir hárhönnuður
stendur fyrir flóamarkaði um helgina
ásamt leikkonunum Lilju Nótt
Þórarins dóttur, Obbu Helgu Dýrfjörð
og Tinnu Lind Gunnarsdóttur.
Markaðurinn verður haldinn í
Barber Theatre sem er á horni Hverf-
isgötu og Klapparstígs. Í boði verður
allt frá flíkum, húsgögnum, skemmti-
legum skrautmunum til bóka og
snyrtivara, auk þess sem heitt verður
á könnunni fyrir kalda gesti.
Markaðurinn hefst klukkan 12.00
á laugardag og stendur til klukkan
17.00.
Flóamarkaður og
kaffi á könnunni
MARKAÐUR Í BARBER THEATRE Á HORNI
HVERFISGÖTU OG KLAPPARSTÍGS.
Anna Sigríður Pálsdóttir er ein þeirra
sem standa fyrir flóamarkaði í Barber
Theater á laugardag.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt til
að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silf-
urplett.Við eigum líka fægilög,fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU.
SJÁLFLÍMANDI HNÍFAPARASKORÐUR
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Skólavörðust íg 8 • 101 Reyk jav ík • s . 552 2028
Bjóðum þig velkomin
á langan laugardag
MiðvikudagaJóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447
Þingholtin byggðust upp á þeim
tíma þegar íbúum fjölgaði ört í
Reykjavík en frá aldamótum til
ársins 1915 fjölgaði íbúum í borg-
inni um meira en helming, fór úr
5.800 í 14.200.
Á svipuðum tíma tók byggðin í
Vesturbænum, Þingholtunum og
Skuggahverfinu að þéttast en til-
finnanlegur skortur varð á hús-
næði samhliða fjölgun íbúa. Ekki
fór mikið fyrir skipulagi og því
varð þróunin sú að þegar lóðir
meðfram götum voru fullbyggðar
brugðu menn á það ráð að reisa hús
í bakgörðum og breyta útihúsum í
íbúðarhúsnæði.
Heimild: Saga Reykjavíkur
Hverfi goðanna
Götunöfnin í Þingholtunum vísa langflest í norræna goðafræði. Þar má finna Óðinsgötu, Þórsgötu,
Freyjugötu, Týsgötu, Lokastíg, Haðarstíg, Baldursgötu, Njarðargötu, Nönnugötu, Bragagötu og Urðarstíg.
Mörg húsanna í hverfinu eru fallega upp
gerð.
Hávaxin trén standa líkt og varðmenn fyrir framan þetta stæðilega steinhús.
Stór og stæðileg tré eru áberandi í einum elsta hluta borgarinnar, Þingholtunum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN