Fréttablaðið - 10.02.2010, Qupperneq 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MIÐVIKUDAGUR
10. febrúar 2010 — 34. tölublað — 10. árgangur
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Botnsdalur er minn uppáhalds-staður á Íslandi, næst á eftir Ölstof-unni. Það helgast sennilega af því að þangað kom ég þrisvar sinnum í leit að fossinum Glym án þess að sú leit bæri árangur,“ segir Skúli Hakim Mechiat, lögfræðinemi við Háskólann í Reykjavík.Skúli segir fyrstu atrennuna í leitinni að Glym hafa átt sér stað þegar hann og nokkrir vinir voru á leið á Vestfirði og datt í hug að
bregða út af sporinu til að sjá hæsta foss landsins. „Þar hittum við mann sem var kunnugur svæðinu og tjáði okkur að Glymur væri í um tveggja tíma fjarlægð. Sá benti okkur jafn-framt á leyndan stað í tífj l
eftir því. Þetta var mjög árla morg-uns og enginn annar á ferli, sem hægt var að spyrja til vegar. Eftir þriggja klukkustunda ráf um svæð-ið ákvað ég að þetta væri orðið gott og sneri til baka,“ segir Skúli.Hann gengst fúslega við því að vera þrjóskupúki og segir fátt taka eins á taugarnar og að takast ekki ætlunarverk sitt. „Það var því létt-ir þegar Snorri vinur minn tilkynnti mér að hann þekkti svæðið eins og handarbakið á sér, enda hefði hann eytt löngum stundum þar sem strákur. Því var hann dreginn með í þriðju atrennuna,“ segir SkúliÞekki i
umst ekki lengra. Þar sem gáfna-far okkar er að mörgu leyti svipað ákváðum við að klifra upp klettana, en við höfðum séð leið upp við eina skriðuna. Það var mikil þolraun og þegar upp var komið var vindur úr köppunum. Eftir að hafa legið í grasinu nokkra stund var ákveðið að halda heim á leið.“Það var svo í fjórðu tilraun að leitin bar árangur, en þá var vinur-inn Snorri enn með í för. „Við feng-um leiðbeiningar um hvernig ætti að finna fossinn en gátum náttúrlega ekki farið f
Fann Glym í fjórðu tilraun
Það tók lögfræðinemann Skúla Hakim Mechiat lengri tíma að finna hæsta foss landsins en hann óraði
fyrir, enda ævintýramaður sem lætur illa að fara eftir leiðbeiningum að eigin sögn. Það tókst þó að lokum.
HJÓNANÁMSKEIÐIN á vegum Hafnarfjarðarkirkju hafa notið mik-
illa vinsælda. Ákveðið hefur verið að bjóða upp á auka hjónanámskeið
vegna mikillar aðsóknar. Allar nánari upplýsingar um námskeiðin má fá
á www.hafnarfjardarkirkja.is
„Mér var einu sinni sagt að til að þekkja París þyrfti maður að hafa villst í París,“ segir Skúli.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁNM eirapró f
VEÐRIÐ Í DAG
SKÚLI HAKIM MECHIAT
Leitaði oft og lengi
að hæsta fossi Íslands
• á ferðinni • dekur
Í MIÐJU BLAÐSINS
veljum íslensktMIÐVIKUDAGUR 10. FEBRÚAR 2010
Félag leikskóla-
kennara 60 ára
Aðeins 35% starfs-
manna í leikskólum
eru leikskólakennarar
og því þörf á að
fjölga þeim.
TÍMAMÓT 22
...er að eiga
alltaf lýsi
VERTU MEÐ Á
FACEBOOK
Ísland í
aðalhlutverki
Filmus kom að
heimildarmyndaþátta-
röð BBC.
FÓLK 34
SMÁRI ÓLAFSSON
Slær í gegn sem
feitur Tékki
Er sölumaður hjá Ísrós
FÓLK 34
Íslensk þjóðlagahátíð í
mars
Fjórtán hljómsveitir spila á Café
Rosenberg á fjórum kvöldum.
FÓLK 28
ÚTFÖR Steingrímur Hermannsson,
fyrrverandi forsætisráðherra,
var jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni í gær.
Steingrímur lést 1. febrúar.
Hann var á 82. aldursári.
Hjálmar Jónsson, prestur í
Dómkirkjunni, jarðsöng. Útförin
fór fram á vegum ríkisins og var
henni útvarpað í Ríkisútvarpinu.
Líkmenn voru Dagur B. Egg-
ertsson, Runólfur Þórðarson,
Guðni Ágústsson, Egill Heiðar
Gíslason, Hermann Sveinbjörns-
son, Jón Sveinsson, Helgi Ágústs-
son og Bjarni Guðnason.
Steingrímur var verkfræðing-
ur að mennt. Hann sat á Alþingi
í 23 ár, frá 1971 til 1994, og var
ráðherra í tólf ár. Þar af var hann
forsætisráðherra í sjö ár. Stein-
grímur var formaður Framsókn-
arflokksins á árunum 1979 til
1994. Hann var bankastjóri við
Seðlabankann 1994-1998.
Steingrímur var kvæntur Eddu
Guðmundsdóttur og áttu þau þrjú
börn. Hann var áður kvæntur
Söru Jane Donovan og átti með
henni þrjú börn.
Fyrrverandi forsætisráðherra Íslands jarðsunginn frá Dómkirkjunni í gær:
Steingrímur borinn til grafar
VELJUM ÍSLENSKT
Tíska, tölvuleikir og
iðnaðarmaður ársins
Sérblaðið Veljum íslenskt
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
VIÐSKIPTI Fjórar lögfræðiskrifstofur, auk
endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtækj-
anna Capacent, PriceWaterhouseCoopers og
Deloitte á Íslandi, fengu greiddar 894 millj-
ónir króna fyrir störf sín fyrir skilanefnd
Kaupþings í fyrra. Á þriðja tug erlendra fyr-
irtækja sem veittu bankanum ráðgjöf skiptu
hins vegar á milli sín rúmum 2,3 milljörðum
króna.
Þetta má lesa út úr svari skilanefndar
Kaupþings við fyrirspurn Fréttablaðsins
og úr nýjustu skýrslu skilanefndarinnar til
kröfuhafa bankans.
Hjá skilanefnd Glitnis er unnið að því að
taka saman sambærilegar tölur. Skilanefnd
Landsbankans segist hins vegar engar upplýs-
ingar veita fyrr en eftir kröfuhafafund sem
haldinn verður 24. þessa mánaðar. Þar verði
kröfuhöfum meðal annars gefnar upplýsingar
sem varði kostnað. „Hluti af þeim upplýsing-
um verður tiltækur blaðamönnum. Þar til þá
hefur bankinn ekkert um þetta mál að segja,“
segir í svari Landsbankans.
Í svari skilanefndar Kaupþings við fyrir-
spurn blaðsins kemur fram að þegar skila-
nefndin hafi tekið við Kaupþingi haustið 2008
hafi eignir bankans verið í misjöfnu ásigkomu-
lagi í ljósi aðstæðna. „Á árinu 2009 var stór
hluti lánasafnsins endurskipulagður að fullu.
Við slíka endurskipulagningu koma upp flók-
in úrlausnaratriði og hefur bankinn leitað
til utanaðkomandi ráðgjafa í ýmis verkefni,“
segir þar og eru nefndar til sögunnar áreið-
anleikakannanir, skattaáætlanir og verðmat
eigna. Kröfuhafar hafi hins vegar lagt á það
áherslu að skilanefndin og starfsfólk hennar
kappkosti að tryggja hámarksvirði eigna
bankans og leiti utanaðkomandi sérfræðiráð-
gjafar þegar við eigi. Kostnaður við þá ráð-
gjöf falli á kröfuhafana, en ekki á skattgreið-
endur.
Kaupþing var með starfsemi í fimmtán
löndum og verðmæti eigna miðað við efna-
hagsreikning í júní í fyrra nam þá um 1.700
milljörðum króna. - óká / sjá síðu 6
Ráðgjöf kostaði 3,2 milljarða
Kröfuhafar Kaupþings hafa lagt áherslu á að skilanefnd bankans leiti utanaðkomandi ráðgjafar til að
tryggja hámarksvirði eigna bankans. Kostnaður vegna þessa hleypur á milljörðum og fellur á kröfuhafana.
BJART EYSTRA Í dag verður hæg
suðlæg eða breytileg átt. Bjart
austan til en skýjað og dálítil væta
sunnan- og suðvestanlands. Vægt
frost norðaustan til en hiti annars
0-7 stig.
VEÐUR 4
5
6
4
-2
0
Ég er vondur
áhorfandi
Guðjón Valur
Sigurðsson fór í
hnéaðgerð í gær
og verður frá
næstu mánuði.
ÍÞRÓTTIR 30
ICESAVE Indriði H. Þorláksson,
formaður íslensku samninga-
nefndarinnar í Icesave-málinu,
segir rangt hjá Kristrúnu Heim-
isdóttur að Brussel-viðmiðin
hafi ógilt fyrri yfirlýsingar um
Icesave og sett málið í marghliða
samningaferli, sem hann hafi
síðan umbreytt í tvíhliða samn-
inga.
Indriði ritar grein í blaðið í
dag þar sem hann svarar grein
Kristrúnar frá því á laugardag.
Indriði segir Kristrúnu fara með
rangt mál í nokkrum veigamikl-
um atriðum, meðal annars um
að Brussel-viðmiðin „feli í sér
véfrétt um aflausn á IceSave
syndum í faðmi ESB“.
„Með Brusselyfirlýsingunni,“
skrifar Indriði, „staðfesti Ísland
fyrri yfirlýsingar íslenskra
stjórnvalda með formlegri hætti
en áður þess efnis að Ísland
myndi ábyrgjast greiðslu lág-
marksinnstæðna og muni semja
um greiðslu þeirra hið skjótasta.“
Indriði segir ýmislegt renna
stoðum undir þetta. Til dæmis
hafi Hollendingar talið í desem-
ber 2008 að yfirlýsingar frá 11.
október sama ár væru í fullu
gildi. - bs / sjá síðu 18
Indriði H. Þorláksson:
Lánið var tekið
haustið 2008
VIÐ DÓMKIRKJUNA Útför Steingríms Hermannssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í
gær. Eins og jafnan þegar fyrrverandi æðstu menn þjóðarinnar falla frá var útförin gerð á vegum ríkisins. Útvarpað var frá
athöfninni í Ríkisútvarpinu. Forseti Íslands og ríkisstjórnin voru meðal þeirra sem fylgdu Steingrími til grafar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA