Fréttablaðið - 13.02.2010, Blaðsíða 64
13. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
Húsdýragarðurinn er skemmtileg-
ur staður fyrir fjölskylduna að heim-
sækja um helgar. Þangað hafa fjöl-
skyldur sótt í bráðum tuttugu ár.
Tilefni er til að fara í fjölskyldu-
ferð í Húsdýragarðinn um helgina því
í lok janúar fæddist þar fyrsti geit-
hafur ársins og er þetta í fyrsta sinn
sem geitburður hefst svo snemma árs.
Kiðlingurinn hefur hlotið nafnið Guð-
mundur, í höfuðið á þjálfara íslenska
handboltalandsliðsins. Að auki fædd-
ust tveir fallegir kálfar fyrir jól sem
hlotið hafa nöfnin Huppa og Skjöldur.
Einnig er árskortshöfum boðið að
taka þátt í sérstökum vinamorgnum
sem fram fara í febrúar. Takmarkað-
ur fjöldi þátttakenda er hvern morg-
un og því er nauðsynlegt að skrá sig
fyrirfram. Börnum og foreldrum er
boðið að fylgjast með og taka þátt í
þeim verkum sem sinnt er í fjárhúsum
og tekur það um eina og hálfa klukku-
stund.
Unnur Sigurþórsdóttir, deildar-
stjóri fræðsludeildar Húsdýragarðs-
ins, segir vinamorgnana hafa lukkast
mjög vel og að einhverjir hafi þegar
bókað sig á allar þær helgar sem vina-
morgnarnir eru í boði. Húsdýragarð-
urinn bauð einnig upp á vinamorgna í
fyrra en í ár eru þeir einungis ætlaðir
árskortshöfum. „Krakkarnir vinna í
hesthúsinu, fjárhúsinu og fjósi og fá að
sinna hefðbundnum störfum líka eins
og að moka undan dýrunum og almenn
þrif. Flestum finnst þetta mjög gaman,
en sumir hafa pælt í því hvort þeir fái
ekki eitthvað að launum fyrir erfiðið.
Þetta þýðir líka að krakkarnir upplifa
meiri nálægð við dýrin og ég held að
það geri hverju barni gott.“ Foreldrar
fá að fylgja börnunum í húsin og geta
aðstoðað þau allra yngstu við verkin,
en Unnur tekur fram að börnin eigi að
sjá um vinnuna enda séu vinamorgn-
arnir fyrst og fremst ætlaðir þeim.
„Þetta er aðeins öðruvísi fjölskyldu-
skemmtun en hinn hefðbundni ísbíltúr
og það eru eflaust margir þreyttir litl-
ir kroppar sem koma heim eftir heim-
sóknina,“ segir Unnur.
Þeir sem ekki eru árskortshafar
geta lagt leið sína í Húsdýragarðinn
og heimsótt kiðlinginn Guðmund sem
er til sýnis alla daga. „Geitungurinn,
eins og hann er kallaður, braggast rosa-
lega vel þrátt fyrir að móðirin sé ekki
nema eins árs gömul sjálf og það er
afskaplega gaman að fylgjast með þeim
báðum,“ segir Unnur að lokum. - sm
HÚSDÝRAGARÐURINN: AFMÆLISÁRIÐ BYRJAR VEL
Skemmtilegra en ísbíltúrinn
GUÐMUNDUR Unnur Sigurþórsdóttir, deildarstjóri fræðsludeildar Húsdýragarðsins, segir gaman
að fylgjast með nýja kiðlingnum, Guðmundi, sem braggast vel. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐ
Þegar Steingerður Steinars-
dóttir blaðamaður fer til spá-
kvenna þykjast þær oft sjá
lágvaxna gamla konu í peysu-
fötum sem beri sama nafn og
Steingerður. Staðreyndin er
hins vegar sú að Steingerður
er nefnd í höfuðið á söguper-
sónu, Steingerði í Kormáks
sögu sem er ein af Íslend-
ingasögunum.
„Líklega halda spákonurn-
ar að það leiki sér enginn
að því að gefa barninu sínu
svo svakalegt nafn og ein-
hver ættingi hafi snúið upp
á handlegginn á mömmu.
Mamma hins vegar heillað-
ist af nafninu þegar hún las
Kormáks sögu en þar segir
frá Kormáki Ögmundarsyni
skáldi sem varð svo ástfang-
inn af Steingerði að hann
heillaðist strax og hann sá
ökklana á henni. Um hana
Steingerði sína yrkir hann
svo ofboðslega fallegar og
skemmtilegar vísur. Mamma
lofaði sjálfri sér að ef hún
myndi eignast dóttur yrði hún
nefnd Steingerður.“
Mörgum þykir nafnið
benda til þess að Steingerður
sé mikilúðleg og grimmlynd
kona að sögn hennar sjálfrar
en faðir hennar heitir Steinar
og Steingerður Steinarsdótt-
ir þykir sumum hart nafn. „Ég
sjálf er ofboðslega sátt við
nafnið mitt í dag þótt ég hafi
ekki þolað það þegar ég var
barn. Þá þráði ég það heit-
ast að heita einhverju róm-
antísku og mjúku nafni eins
og Sóley eða Rósa. En í dag
nýt ég þeirra forréttinda að
það muna allir eftir mér út af
nafninu.“ - jma
NAFNIÐ MITT: STEINGERÐUR STEINARSDÓTTIR
Stundum talin grimmlynd
LANGAÐI AÐ HEITA RÓSA Þótt
Steingerður Steinarsdóttir
blaðamaður sé hæstánægð með
nafnið sitt í dag langaði hana
sem barn að heita mýkra nafni.
Ísland örum skorið er yfir-
skrift erindis sem Andr-
és Arnalds, fagmálastjóri
Landgræðslu Íslands, flyt-
ur á málstofu í Keldnaholti
á mánudaginn. Málstofan
er haldin á vegum Land-
búnaðarháskóla Íslands en
erindi Andrésar mun fjalla
um landakort á villigötum,
nýjar slóðir og vaxandi akst-
ur utan vega.
Andrés segir vega- og
slóðakerfi hér á landi vera
tvískipt. Annars vegar eru
þær leiðir sem eru á skrá
Vegagerðarinnar og hins
vegar er urmull slóða utan
hins opinbera kerfis. Hann
segir þann síðarnefnda
vera mun stærri og hefur
hann að mestu orðið til utan
skipulags. Nýjar slóðir séu
stöðugt að myndast en lög og
reglur til aðhalds séu ófull-
nægjandi.
Málstofan hefst klukkan
15.15.
Kort á villigötum
AKSTUR UTAN VEGAR Nýjar slóðir
eru stöðugt að myndast.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jóhann Gunnar
Benediktsson
tannlæknir,
lést á dvalarheimilinu Hlíð Akureyri, mánudaginn
8. febrúar sl. Útförin verður gerð frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 19. febrúar kl. 13.30.
Halldóra Ingimarsdóttir
Margrét Jóhannsdóttir
Ásgeir Sverrisson Helga Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegi eiginmaður minn, faðir
okkar, bróðir og mágur,
Ingi Jón Jóhannesson
lést sunnudaginn 7. febrúar síðastliðinn. Jarðarförin
auglýst síðar.
Birna Kristín Ómarsdóttir
Haraldur Smári
Björn Ómar
Valgerður Jóhannesdóttir Valgeir Birgisson
Íris Valberg Trausti Guðlaugsson
Anna Björg Samúelsdóttir Bjarni Danival Bjarnason
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sesselja Ásmundsdóttir
Hjúkrunarheimilinu EIR, áður
Melabraut 65, Seltjarnarnesi,
lést laugardaginn 30. janúar sl. Útför hefur farið fram
í kyrrþey, að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir til allra
fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug. Sérstakar
þakkir færum við starfsfólki á EIR.
Sólrún Valsdóttir Eggert Ólafsson
Helga Valsdóttir Þórir Jensen
Sigurður Valsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýju við andlát og
útför ástkærrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
Ingigerðar Eiríksdóttur
Skipum, Stokkseyrarhreppi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunardeildar
Kumbaravogs. Guð blessi ykkur öll.
Gísli V. Jónsson Herdís J. Hermannsdóttir
Móeiður Jónsdóttir Ólafur Benediktsson
Ragnheiður Jónsdóttir Vilhjálmur Vilmundarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg sambýliskona, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Soffía Sveinbjörnsdóttir
sem lést laugardaginn 6. febrúar, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 16. febrúar kl. 13.00.
Hálfdán Jensen
Björn Einarsson Margrét Árnadóttir
Lúðvík Baldursson Þórey Aspelund
Ásgeir Baldursson Hansína Steingrímsdóttir
Grétar Gunnarsson Halla Hansen
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Margrét Guðmundsdóttir
frá Hóli, Önundarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð fimmtudaginn
11. febrúar. Minningarathöfn verður í Digraneskirkju,
Kópavogi, fimmtudaginn 18. febrúar kl. 13.00. Jarðsett
verður frá Holtskirkju í Önundarfirði mánudaginn
22. febrúar kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á að láta hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð, Kópavogi
njóta þess.
Aðstandendur.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát
og útför föður okkar, tengdaföður, afa,
langafa og langalangafa,
Lárusar Þórarinssonar
fyrrv. flugumferðarstjóra,
Hverafold 19, Reykjavík.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ásthildur Lárusdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Haraldur Þórðarson
bifreiðasmiður, Boðagranda 2a,
Reykjavík,
lést á deild 13E Landspítalanum við Hringbraut þann
11. febrúar. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 18. febrúar klukkan 15.00. Blóm og
kransar vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Félag nýrnasjúkra.
María Áslaug Guðmundsdóttir
Þórður Haraldsson Þórdís Harðardóttir
Áslaug Haraldsdóttir Matthew Berge
Stefán Haraldsson Guðrún Indriðadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.