Fréttablaðið - 13.02.2010, Blaðsíða 71
Jöklar á Íslandi
Bankster
Jöklar á Íslandi er mikið rit byggt á áratuga rannsóknum Helga
Björnssonar, höfundar bókarinnar og samstarfsmanna hans við
Háskóla Íslands og víðar. Bókin lýsir jöklum þessa lands
og sambúð þjóðarinnar við þá frá upphafi byggðar til okkar
daga, hvernig jöklar hafa mótað landið og eytt.
Bókin segir sögu þekkingar öflunar og skilnings á jöklum frá því
fyrst var farið að rannsaka þá fram til nútímarannsókna. Rakin
eru spor löngu horfinna jökulbreiða, hulunni svipt af landinu
undir jöklum Íslands og greint frá líklegri framtíð þeirra. Helgi Björnsson er á meðal
fremstu fræðimanna á sínu sviði. Í hartnær fjóra áratugi hefur hann unnið að
jöklarannsóknum á Íslandi og kynnt almenningi rannsóknir sínar með fyrirlestrum
og fræðigreinum. Á ferðum sínum um Ísland skilur Helgi sjaldan myndavélina við
sig og því falla ljósmyndir og texti saman í eina heild í þessari bók.
Sögusviðið er Reykjavík veturinn 2008–2009. Markús, 28 ára
bankamaður, fer eftir ráðgjöf vinar síns og heldur dagbók eftir að hafa
misst starfið í bankanum. Skömmu síðar missir sambýliskona hans,
Harpa sem líka vinnur í banka, vinnuna en lætur ekki deigan síga og
innan skamms fær hún nýtt starf sem afleysingakennari í grunnskóla.
Markús aftur á móti leggst í bóklestur og leitar skjóls í dagbókinni
sem brátt verður að minnisbók og stefnir í að verða skáldskaparlegt
sjónarhorn á viðburði vetrarins og framtíðarmissinn sem fylgir í kjölfarið.
Úr verður ástarsaga, spennusaga og glímusaga. En líka ævintýri og
á sama tíma látlaus saga og samt óvænt saga. Eftirminnileg frásögn af áhrifum
bankahrunsins á veruleika okkar og þankagang.
„Bankster eftir Guðmund Óskarsson er […] hreinræktuð kreppubók og hreinasta afbragð sem slík.
Besta kreppubókin.“ Árni Matthíasson, Sunnudagsmogginn 15. nóv. 2009
„Sagan er einlæg, áreynslulaus, skemmtileg og hrífandi. […] Og inni í þessu öllu saman er afar falleg
og tregablandin ástarsaga.“ Þormóður Dagsson, Morgunblaðinu 12. des. 2009
Bankster er þriðja bók höfundarins Guðmundar Óskarssonar en áður hafa komið út bækurnar
Vaxandi nánd - orðhviður (2007) og Hola í lífi fyrrverandi golfara (2008).
Starfsfólk Eymundsson óskar verðlaunahöfum Íslensku bókmenntaverðlaunanna til hamingju með árangurinn!
Íslensku bókmennta-
verðlaunin 2009
Guðmundur Óskarsson
Verðlaunahafi í flokki fræðirita
Verðlaunahafi í flokki fagurbókmennta
Helgi Björnsson