Fréttablaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 15.02.2010, Blaðsíða 12
12 15. febrúar 2010 MÁNUDAGUR Fréttaljósmyndakeppni World Press Photo HOLLAND, AP Sigurmynd ítalska ljósmynd- arans Pietro Masturzo af konu á húsþaki í Teheran þykir bæði fögur og ná að grípa vel spennuna sem lá í loftinu í höfuðborg Írans þegar mótmælabylgjan var rétt að hefjast í kjölfar forsetakosninganna umdeildu. Þessi ljósmynd var fyrst sýnd á ítölsku sjónvarpsstöðinni RAI og síðan birt í tíma- ritinu Loop. „Ég trúi þessu ekki,“ sagði Masturzo þegar hann frétti af niðurstöðunni. „Ég hefði aldrei trúað því að lausamaður myndi sigra,“ en Masturzo er hvergi fast- ráðinn ljósmyndari. Hann fær í sinn hlut tíu þúsund evrur, eða rúmlega 1,7 milljónir króna, og for- láta ljósmyndavél þegar verðlaunin verða afhent í Amsterdam í byrjun maí. Alls voru 63 ljósmyndurum frá 23 lönd- um veitt verðlaun í þessari virtu ljós- myndakeppni. Dómnefndin fékk það verk- efni að velja úr rúmlega hundrað þúsund ljósmyndum frá 128 ríkjum, en aldrei hafa fleiri myndir verið sendar í keppnina. Flestar verðlaunamyndirnar eru frá átakasvæðum víðs vegar um heim. Fyrstu verðlaun í flokki stakra fréttaljósmynda hlaut Adam Ferguson, ljósmyndari á New York Times, fyrir mynd af konu sem leidd er á brott eftir sprengjuárás í Kabúl, höf- uðborg Afganistans. Ljósmyndarar á vegum frönsku frétta- stofunnar AFP hrepptu öll þrjú verðlaunin í flokki fréttaljósmyndaraða. Fyrsta sæti í þeim flokki kom annað árið í röð í hlut arg- entínska ljósmyndarans Walters Astrada, sem að þessu sinni fær verðlaunin fyrir myndaröð af harðvítugum átökum á Mad- agaskar. gudsteinn@frettabladid.is Átakamyndir af vettvangi frétta Úrslitin í hinnu virtu alþjóðlegu fréttaljósmyndakeppni World Press Photo voru kynnt í gær. Flestar verðlaunamyndanna eru frá átakasvæðum víðs vegar um heim, en besta myndin er af hrópandi konu í Teheran. FRÉTTALJÓSMYND ÁRSINS Ítalskur ljósmyndari, Pietro Masturzo, hlýtur aðalverðlaunin fyrir mynd af hrópandi konu á húsþaki í Teheran, höfuðborg Írans. Konan er að mótmæla úrslitum forsetakosninganna í júní á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STRÍÐ ER PERSÓNULEGT Þessi ljósmynd, sem nefnist Stríð er persónulegt, er eftir bandaríska ljósmyndarann Eugene Richards. Hún úr ljósmyndaröð sem fékk fyrstu verðlaun í flokki mynda af samtímaviðburðum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP INNSETNINGARATHÖFN Barack Obama er ekki beint hógværðin uppmáluð á þessari ljósmynd eftir Charles Ommanney, sem tekin var á innsetningarathöfninni í Washington fyrir rúmu ári. Myndin er úr ljósmynda- röð sem fékk fyrstu verðlaun í flokki ljósmynda af fólki í fréttum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ÁTÖK Á MADAGASKAR Fyrstu verðlaun í flokki fréttaljósmyndaraða hlaut argentínski ljósmyndarinn Walter Astrada fyrir myndir af átökum á Madagaskar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SPRENGJUÁRÁS Í KABÚL Fyrstu verðlaun í flokki stakra frétta- ljósmynda fékk ástralski ljósmyndarinn Adam Ferguson fyrir þessa mynd, sem tekin var í Kabúl í Afganistan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.