Fréttablaðið - 16.02.2010, Blaðsíða 2
2 16. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Ármann
Snævarr látinn
Jón, er þetta nógu frjó um-
ræða?
„Nei, mér sýnist hún nú vera frekar
geld.“
Jón Frantzson, forstjóri Íslenska gámafé-
lagsins, sakaði forsvarsmenn Sorpstöðvar
Suðurlands um getuleysi við að finna
nýjan urðunarstað fyrir rusl á Suðurlandi.
Formaður stjórnar Sorpstöðvarinnar sagði
ásakanir um getuleysi vera órökstuddar
dylgjur gegn betri vitund.
ASÍ krefst ...
... þess að rekstur
fyrirtækja sé reistur
á ábyrgð og siðferði.
Nánari upplýsingar á www.asi.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
40
92
4
RANNSÓKNIR Stam ungra barna
er almennt ekki
bundið tungu-
málinu og geta
talmeinafræð-
ingar metið stam
án þess að skilja
tungumálið sem
börnin tala. Þetta
er meðal niður-
staðna rannsókn-
ar dr. Jóhönnu
Einarsdóttur, lekt-
ors í talmeinum,
máltöku barna og aðferðafræði.
Niðurstöður rannsóknarinnar
hafa vakið athygli víða erlendis.
Í kjölfarið hefur Jóhanna þróað
kerfi sem á að tryggja aukið sam-
ræmi í mati á stami.
- ve / sjá allt í miðju blaðsins
Dr. Jóhanna Einarsdóttir:
Samræmir mat
á stami barna
AFGANISTAN, AP Mannfall almennra borgara varpaði
skugga á innrás Natóherja og afganska hersins á
þorpið Marja í Helmand-héraði í Afganistan.
Tvö bandarísk flugskeyti misstu marks á sunnu-
dag og lentu á íbúðarhúsi skammt fyrir utan bæinn
þar sem tólf manns biðu bana.
Atvikið þykir alvarlegt áfall fyrir trúverðugleika
fjölþjóðaliðs NATO. Stanley McChrystal, yfirmað-
ur Natóherjanna, baðst afsökunar og sagði að notk-
un hátæknivopna verði hætt meðan kannað er hvað
gerðist.
Hamid Karzai, forseti Afganistans, var sagður í
öngum sínum vegna þess sem gerðist. Fyrir árás-
ina hafði Karzai hvað eftir annað brýnt það fyrir
yfirmönnum hersins að sýna fyllstu aðgát.
Talið var að um þúsund talibanar hefðu verið í
þorpinu og næsta nágrenni. Um fimmtán þúsund
manna innrásarlið, skipað afgönskum, bandarísk-
um og breskum hermönnum, réðst til atlögu á laug-
ardag og hafa síðan jafnt og þétt þrengt að tali-
bönum.
Yfirmenn afganska hersins segja innrásarher-
ina hafa náð Marja og nágrenni að mestu leyti á sitt
vald, mótspyrna frá talibönum sé lítil þegar haldið
er inn í bæinn. Leyniskyttur hafa þó gert innrásar-
hernum skráveifur og komið hefur til skotbardaga.
- gb
Mannfall almennra borgara varpar skugga á hernaðinn gegn talibönum:
Yfirmenn biðjast afsökunar
INNRÁSIN Í MARJA Bandarískir hermenn í átökum við talibana.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ALÞINGI Staða efnahagsmála verð-
ur rædd utan dagskrár á Alþingi
í dag. Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, er
málshefjandi og Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra verður
til andsvara. Umræðan, sem hefst
klukkan tvö, stendur í klukku-
stund.
Þingfundur dagsins hefst með
fyrirspurnartíma en að lokinni
utandagskrárumræðunni verða
meðal annars mál er varða sjáv-
arútveg á dagskrá.
Nokkuð er um liðið frá síðasta
þingfundi; kjördæmadagar voru í
síðustu viku og þingflokksfunda-
dagur í gær. - bþs
Þingfundir á ný eftir stutt hlé:
Rætt um stöðu
efnahagsmála
Lee C. Buchheit er
bandarískur lög-
fræðingur, sérfróð-
ur um alþjóðlega
lánasamninga,
endurskipulagningu
skulda og fjárhagslega
endurreisn ríkja eftir
fjármálakreppur.
ÍSLENSKA NEFNDIN SEM REYNIR AÐ SEMJA UM NÝJA LAUSN
Guðmundur Árnason
er ráðuneytisstjóri
fjármálaráðuneytisins.
Í krafti þess starfs
undirritaði hann
Icesave-samkomu-
lagið ásamt fulltrúum
breskra og hollenskra
stjórnvalda í október.
Einar Gunnarsson er
ráðuneytisstjóri utan-
ríkisráðuneytisins.
Hann starfaði með
Svavars-nefndinni
og sat í samninga-
nefndinni sem ræddi
íslensku fyrirvarana
eftir ágúst-lögin.
Jóhannes Karl
Sveinsson hæsta-
réttarlögmaður. Varði
í fjölmiðlum lagaleg
ákvæði samninga
Svavars-nefndarinn-
ar. Gætti hagsmuna
Íslands er ESA fjallaði
um neyðarlögin.
Lárus Blöndal
hæstaréttarlögmað-
ur. Hefur margkynnt
þá skoðun sína að
íslenska ríkinu beri
ekki skylda til að
ábyrgjast Icesave-
reikningana.
STJÓRNMÁL „Ég held að það sé óhætt
að segja að þeir hoppuðu ekki hæð
sína í loft upp af hrifningu,“ segir
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra um viðbrögð Breta
og Hollendinga við hugmyndum
Íslendinga um nýja lausn Icesave-
málsins.
Samninganefndir ríkjanna hitt-
ust í Lundúnum í gær. Íslenska
nefndin kynnti hugmyndir að nýrri
nálgun eða lausn og var, að sögn
Steingríms, farið rækilega í gegn-
um málið. Spurðu viðsemjendurnir
margra spurninga.
Að fundinum loknum ræddi
Steingrímur í gegnum síma við
íslensku samninganefndina, ásamt
utanríkisráðherra og formönnum
Sjálfstæðisflokksins og Framsókn-
arflokksins. Steingrímur gat í gær-
kvöldi ekki sagt til um hvort fund-
að yrði á ný í dag en kvaðst vona að
svo yrði. „Ég vona að það séu ein-
hverjir möguleikar á að þróa málið
áfram,“ sagði hann en annar síma-
fundur var áætlaður síðar í gær-
kvöld. Meta átti stöðuna í fram-
haldi hans.
Fram hefur komið, meðal annars
í Fréttablaðinu, að tillögur Íslands
að lausn málsins hafi verið kynnt-
ar Bretum og Hollendingum í síð-
ustu viku. Steingrímur segir það
ekki allskostar rétt; reynt hafi
verið að halda íslensku samnings-
markmiðunum leyndum. Samræður
íslenskra ráðamanna við breska og
hollenska hafi fyrst og fremst snúist
um að fá fund til að kynna tillögurn-
ar. „Það var ekki búið að fara yfir
hugmyndirnar í neinum efnisatrið-
um að heitið getur en við fullvissuð-
um þá um að við vissum hver væru
lágmarksskilyrðin af þeirra hálfu
til þess að hægt væri að tala saman
og að þau væru uppfyllt af okkur.“
Steingrímur vill hvorki upplýsa um
þau lágmarksskilyrði né hugmynd-
ir Íslands. „Þetta er allt mjög við-
kvæmt og þjónar ekki tilgangi að
fara út það efnislega.“ Engu breyti
þó Bretar og Hollendingar viti nú
í hverju íslensku tillögurnar fel-
ast. „Það fer allt fram í trúnaði. Við
ætlum ekki að semja í gegnum fjöl-
miðla,“ segir Steingrímur.
Íslensk stjórnvöld staðfestu
fyrst síðdegis í gær hverjir sitja í
íslensku viðræðunefndinni. Meðal
nefndarmanna er Lárus Blöndal
lögmaður sem er þeirrar skoðun-
ar að Íslendingum beri ekki skylda
til að ábyrgjast lágmarkstryggingu
EES-samningsins. Steingrímur
segir stjórnarandstöðuna hafa valið
Lárus sem sinn fulltrúa í nefndina.
Bandaríkjamaðurinn Lee C. Buch-
heit fer fyrir nefndinni. Steingrím-
ur sagði að miðað við aðstæður hafi
verið góður kostur að fá utanað-
komandi aðila að verkinu. Um sé að
ræða þaulreyndan og harðskeytt-
an samningamann. „Á hann reyn-
ir nú og hann sýnir vonandi hvað
í honum býr.“ segir Steingrímur.
„Buchheit flytji þó ekki fjöll.“
bjorn@frettabladid.is
Dræmar undirtektir
Bretar og Hollendingar voru ekki hrifnir af hugmyndum Íslands um nýja lausn
Icesave-málsins, að sögn fjármálaráðherra. Hann vonast þó til að hægt verði að
þróa málið áfram. Ekki fást efnislegar upplýsingar um málið hjá ráðherranum.
BORGARMÁL Reykjavíkurborg
hyggst ekki fara eftir úrskurði
samgöngu- og sveitarstjórnarráðu-
neytisins og taka aftur við við ein-
býlishúsalóð hjóna í Úlfarsárdal
og atvinnulóð Brimborgar á Esj-
umelum.
„Afstaða Reykjavíkurborgar
er hin sama og áður; það sé eng-
inn einhliða skilaréttur til staðar.
Héraðsdómur Reykjavíkur komst
að sömu niðurstöðu og borgin
hvað það varðar í desember,“ segir
Kristbjörg Stephensen borgarlög-
maður.
Þótt ráðuneytið skorti heimildir
til að leggja fyrir borgina að end-
urgreiða lóðirnar beinir það þeim
tilmælum til borgarinnar að hún
rétti stöðu lóðarhafanna þannig
að þeir verði jafnsettir öðrum
sem hafa fengið úthlutað bygging-
arrétti hjá borginni.
„Ráðuneytið getur ekki lagt
fyrir Reykjavíkurborg að taka
við lóðunum og endurgreiða þær,“
bendir borgarlögmaður á og ítrek-
ar að héraðsdómur hafi komist að
þveröfugri niðurstöðu við sveit-
arstjórnarráðuneytið í dómsmáli
í desember. Var þar um að ræða
297 milljóna króna atvinnulóð
sem Léttkaup ehf. fengu úthlut-
að undir verslun í Hádegismóum
í janúar 2007. Búist sé við að það
mál gangi til Hæstaréttar. Miðað
við hraða mála þar fáist endanleg
niðurstaða jafnvel ekki fyrr en um
eða eftir næstu áramót.
„Þannig að það eru engin óskap-
leg tímamót við þennan úrskurð
ráðuneytisins,“ segir Kristbjörg
Stephensen. - gar
Borgarlögmaður segir úrskurð samönguráðuneytisins um lóðaskil ekki bindandi:
Afstaða til lóðaskila er óbreytt
SLYS Ólafur Helgi Kjartansson
sýslumaður á Selfossi segir fulla
ástæðu til þess að skoða hvort
nauðsynlegt sé að setja reglur um
starfsemi fyrirtækja sem stunda
ferðamennsku á jöklum landsins.
Mörg þúsund
manns fari upp
á jökla ár hvert
í slíkum ferðum
en sem betur
fer séu óhöpp
sjaldgæf.
Hann segir
jöklaferð sem
skosku mæðg in-
in voru í þegar
þau urðu við-
skila við samferðamenn sína í
fyrrakvöld verða rannsakaða
af lögreglunni. Sú rannsókn feli
ekki í sér grun um lögbrot, heldur
sæti atvik á borð við þetta, óhöpp
og slys, rannsókn embættisins
enda beri lögreglu til þess skylda
lögum samkvæmt. - sbt /sjá síðu 15
Sýslumaður á Selfossi:
Rannsakar
Langjökulsferð
ÓLAFUR HELGI
KJARTANSSON
JÓHANNA EIN-
ARSDÓTTIR
KFC vill lóð á Akureyri
Á fundi skipulagsnefndar Akureyrar í
vikunni, var tekið fyrir erindi þar sem
óskað er eftir lóð fyrir veitingastað
KFC, sem þarf að vera 2000-3000
fermetrar, vera sjáanleg og miðsvæðis
í bænum. Skipulagsnefnd frestaði
afgreiðslu málsins. Á Íslandi eru sjö
KFC veitingastaðir.
VEITINGAR
Breytt í gistiheimili
Gamla dvalarheimili aldraðra í Skjald-
arvík breytist í gistiheimili í vor. Fyr-
irtækið Concept hefur tekið um 700
fermetra húsnæði í Skjaldarvík á leigu
til sjö ára og mun í maí opna þar
gistiheimili. Ætlunin að leigja út 15-18
herbergi í Skjaldarvík, fyrir á bilinu 30
til 40 manns. RÚV sagði frá.
FERÐAMÁL
Ármann Snævarr, fyrrverandi
hæstaréttardómari og rektor
Háskóla Íslands, er látinn.
Hann
fæddist á
Norðfirði 18.
september
1919 og varð
því níræður.
Ármann
varð prófess-
or í lögum
við Háskóla
Íslands árið 1948. Hann var
rektor skólans frá 1960-1969,
varð dómari við Hæstarétt
Íslands frá 1972-1984 og forseti
réttarins 1978 og 1979.
Ármann var virtur og
afkastamikill fræðimaður á
sviði lögfræði. Hann varð heið-
ursdoktor við HÍ og einnig
við háskóla í Uppsölum, Ósló,
Kaupmannahöfn, Helsinki og
Ohio.
Ekkja Ármanns er Valborg
Snævarr, fyrrverandi skóla-
stjóri Fósturskóla Íslands.
Fimm börn þeirra lifa öll föður
sinn.
RÁÐHÚSIÐ Borgarlögmaður áréttar
afstöðu borgarinnar um að ekki sé til
staðar einhliða skilaréttur á lóðum.
SPURNING DAGSINS