Fréttablaðið - 16.02.2010, Qupperneq 8
8 16. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
1 Hvaða íslenski leikmynda-
hönnuður vann til verðlauna á
Art Director Guild Awards um
helgina?
2 Hvar komust skosk mæðgin í
hann krappan á sunnudag?
3 Hvað heitir lögfræðingurinn
sem fer fyrir nýju Icesave-samn-
inganefndinni?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 38
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
DANMÖRK Dómsmálaráðuneyti Dan-
merkur hefur sent út tilkynningu
um að rúm sé fyrir allt að fjögur
ný spilavíti í landinu. Kæmu þau
til viðbótar við þau sex leyfi stjórn-
valda fyrir rekstrinum.
Í umfjöllun Berlingske Tidende
kemur fram að eftir yfirferð á laga-
umgjörð sem varðar fjárhættuspil
hafi stjórnvöld auglýst að úthluta
megi leyfi fyrir einu til tveimur
spilavítum sem rekin yrðu á landi
og tveimur sem starfrækt yrðu í
áætlunarferjum.
Berlingske segir að siglinga-
fyrirtækið DFDS, sem siglir milli
Kaupmannahafnar og Óslóar og
milli Esbjerg og Harwich, fylg-
ist af áhuga með framþróun mála.
Um leið hefur blaðið eftir Erik Jen-
sen, talsmanni spilavítageirans í
Danmörku og framkvæmdastjóra
Casino Copenhagen, að stjórnvöld
hefðu ekki getað valið verri tíma-
punkt til þess að auka samkeppni
meðal spilavíta.
Casino Copenhagen, sem er
stærsta spilavíti landsins, hefur
verið rekið með tapi síðustu ár og
þótt ekki liggi enn fyrir tölur vegna
síðasta árs, er búist við að niður-
staðan verði enn verri en næstu tvö
ár á undan. Svipuð staða er sögð
uppi hjá fleiri spilavítum.
„Ég hef rætt við menn hjá flest-
um spilavítum landsins og þeir lýsa
stórum áhyggjum af því að nú eigi
að fara að fjölga á þegar aðþrengd-
um markaði,“ er haft eftir Erik Jen-
sen. - óká
SPILASALUR Í Danmörku eru starfrækt
sex spilavíti með leyfi stjórnvalda, sem
telja rúm til að úthluta fjórum leyfum í
viðbót. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Eigendur fjárhættuspilasala furða sig á danska dómsmálaráðuneytinu:
Telur að fjölga megi spilavítum
KÓPAVOGUR „Það er ljóst að fyrir-
tæki Halldórs voru færð verk á
silfurfati og tilboða ekki leitað.
Það er ólíðandi í opinberri stjórn-
sýslu og brýnt að alltaf sé leitað
tilboða til að tryggja hagstæðasta
verð,“ segir Guðríður Arnardóttir,
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í
Kópavogi.
Líkt og Fréttablaðið hefur greint
frá síðan á laugardag fékk Halldór
Jónsson verkfræðingur greiddar
71,5 milljónir króna fyrir vinnu
við sjö framkvæmdir á vegum
bæjarins á fimm ára tímabili til
2008.
Gunnsteinn Sigurðsson, bæjar-
stjóri Kópavogs, hefur óskað eftir
úttekt á því hvernig staðið var að
ráðningu Halldórs. Ómar Stef-
ánsson, bæjarfulltrúi framsókn-
armanna, segir Halldór rúinn
trausti. Málið verður tekið upp á
fundi bæjarráðsins á fimmtudag.
Guðríður fór á bæjarskrifstofur
Kópavogs í gær og er verið að taka
saman verksamninga sem tengjast
vinnu Halldórs. Þá telur hún eðli-
legt að bæjarráð óski eftir áliti
samgönguráðuneytis hvort Hall-
dór hafi mátt vera skoðunarmað-
ur Kópavogsbæjar á meðan hann
vann önnur verk fyrir bæinn í
gegnum ráðgjafafyrirtækið
Hall stein. Hún gerir ekki athuga-
semdir við að nokkrir reikningar
Halldórs hafi borist seint. Slíkt
geti skrifast á samninga um að
halda eftir greiðslu í ákveðinn
tíma eftir verklok. - jab
GUÐRÍÐUR Vinna Halldórs Jónssonar
fyrir Kópavogsbæ verður rædd í bæjar-
ráði á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kópavogsbær færði skoðunarmanni mörg verk á silfurfati í fimm ár:
Segir vinnubrögð ámælisverð
LANDBÚNAÐUR Framleiðsla á
nautakjöti í janúar var 332 tonn,
sem er 1,9 prósentum meira en á
sama tíma í fyrra. Sala á nauta-
kjöti í mánuðinum var 330 tonn,
4,5 prósentum meiri en í janúar
2009.
Framleiðslan síðastliðna tólf
mánuði er 3.767 tonn, sem er
fimm prósentum meira en á sama
tímabili fyrir ári. Salan undan-
farna tólf mánuði er nákvæmlega
sú sama og framleiðslan, 3.767
tonn, sem er aukning um 4,5 pró-
sent frá sama tíma í fyrra. - shá
Framleiðsla og sala á kjöti:
Allt nautakjötið
selt jafnóðum
KÓNGAFÆÐI Neysla á nautakjöti hefur
aukist á milli ára.
KIRKJUMÁL Biskup Íslands og
Félag héraðsskjalavarða á
Íslandi standa fyrir sameigin-
legu átaki í söfnun og varðveislu
skjalasafna sóknarnefnda í land-
inu. Héraðsskjalasöfnin munu sjá
um að skrá og ganga frá skjölum
sóknarnefndanna þeim að kostn-
aðarlausu. Þeir sem hafa í fórum
sínum skjöl sem varða starfsemi
sóknarnefnda eru einnig hvattir
til að skila þeim til síns héraðs-
skjalasafns. Best er að fá skjöl-
in í sem upprunalegasta ástandi,
eða óflokkuð.
Misjafnt getur verið hvers
konar gögn einstakar sóknar-
nefndir varðveita. Héraðsskjala-
söfn landsins eru alls 20 talsins.
- shá
Varðveisla skjalasafna:
Skjalaverðir og
biskup safna
ALÞINGI Skipulagsbreytingar hjá
Landlæknisembættinu verða til
umræðu á fundi
heilbrigðis-
nefndar Alþing-
is í dag.
Nefnd um
breytta skip-
an stjórn-
sýslustofnana
heilbrigðisráðu-
neytisins hefur
lagt til samein-
ingu landlækn-
isembættisins
og Lýðheilsustöðvar.
Kemur landlæknir, Geir Gunn-
laugsson, fyrir nefndina og gerir
grein fyrir sjónarmiðum sínum.
Hann hefur áður upplýst að
sameining gæti orðið til hagsbóta
og hagræðingar.
Þuríður Backman, formaður
heilbrigðisnefndar, segir bæði
fjárhagsleg og fagleg sjónarmið
höfð að leiðarljósi við verkið. - bþs
Heilbrigðisnefnd fundar:
Sameining
stofnana rædd
LÖGREGLUMÁL „Eftir því sem ég
best veit hafa þessi mál færst til
miklu betri vegar á undanförnum
misserum,“ segir Geir Jón Þóris-
son yfirlögregluþjónn um stöðu
svokallaðra vandræðahúsa.
Lögreglan hefur í gegn-
um tíðina þurft að hafa stöðug
afskipti af íbúum tiltekinna húsa
í Reykjavík vegna ölvunar og
óláta. Fyrir nokkrum árum taldi
lögregla að slík vandamál tengd-
ust fimmtán til tuttugu húsum.
Geir Jón segir lögreglu hafa
tekið á þessum vanda með eig-
endum húsanna. Það hafi gefið
góða raun, en hann hafi ekki tölu
um fjölda húsanna nú. - jss
Reykjavíkurborg:
Vandræðahús-
um fækkar
GEIR
GUNNLAUGSSON
Stofna félag um sjávarútveg
Ákveðið hefur verið að setja á
stofn félag til að halda ráðstefnur
um mikilvæg viðfangsefni á sviði
sjávarútvegs. Félagið á ekki að vera
hagsmunasamtök einstakra hópa.
Stofnfundur félagsins verður haldinn
þann 19. febrúar í Verbúðinni – Víkin,
Sjóminjasafninu í Reykjavík.
SJÁVARÚTVEGUR
LÖGREGLUMÁL Rapparinn Erpur
Eyvindarson átti fótum sínum
fjör að launa á útvarpsstöðinni
X-inu í gær þegar annar rappari,
Móri, réðst að honum vopnaður
hníf og rafbyssu. Móri, sem heitir
réttu nafni Magnús Ómarsson, gaf
sig fram við lögreglu um klukku-
stund síðar. Erpur hyggst kæra og
telur að Móri hafi ætlað að drepa
sig. Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins metur Móri atvikið þannig
að Erpur hafi ráðist á sig, og ætlar
að kæra hann fyrir líkamsárás.
Rappararnir tveir hafa átt í ill-
deilum upp á síðkastið, og hafa
stóryrði verið látin falla á víxl í
fjölmiðlum. Snýst deilan meðal
annars um það hvor er meiri frum-
kvöðull á rappsviðinu.
Til stóð að Móri og Erpur græfu
stríðsöxina í beinni útsendingu í
þættinum Harmageddon á X-inu í
gær. Móri mætti á staðinn vopnað-
ur hníf og rafbyssu, og með stóran
doberman-hund sér við hlið. End-
urbætur standa yfir á útvarpssviði
365 og beið Móri átekta í mann-
lausu anddyrinu stutta stund.
Þegar Erpur kom á staðinn sauð
upp úr. „Hann ýtir í mig og fer að
þenja sig. Ég gríp þá í hann og keyri
á hann. Hann dettur og fer að kýla
mig,“ segir Erpur. „Þegar ég held
honum niðri dregur hann upp hníf
og byrjar og sveifla honum á fullu.
Ég hleyp í burtu og hann reynir að
stinga mig. Ég tek þá moppu og lem
hann í hausinn.“ Móri hrökklaðist
þá burt. „Þessi hundur var latasti
hundur sem ég hef séð. Ég þakka
fyrir það,“ segir Erpur. Ekki náð-
ist í Móra í gær. stigur@frettabladid.is
atlifannar@frettabladid.is
Erpur og Móri ætla
að kæra hvor annan
Rapparinn Móri elti annan rappara, Erp Eyvindarson, um útvarpssvið 365 í gær
vopnaður hníf og rafbyssu. Erpur telur að Móri hafi ætlað að drepa sig og mun
kæra. Móri telur hins vegar að Erpur hafi ráðist á sig og ætlar líka að kæra.
BARÐI MÓRA MEÐ MOPPU Erpur ræddi við lögreglu fyrir utan útvarpssvið 365 í gær.
Hann er viss um að Móri hafi ætlað að drepa sig. FRÉTTABLAÐIÐ / VILHELM
Atvikið náðist að
hluta á öryggis-
myndavél.
1. Móri og kær-
asta hans mæta á
staðinn.
2. Örfáum
sekúndum síðar
kemur Móri
hlaupandi á
fleygiferð á eftir
Erpi, sem skýlir
sér á bak við
bónvél.
3. Bónvélin liggur
kylliflöt, en elting-
arleikurinn heldur
áfram.
1
2
3
VEISTU SVARIÐ?