Fréttablaðið - 16.02.2010, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 16. febrúar 2010 11
LÖGREGLUMÁL Tvær stúlkur urðu
fyrir bifreið í Háengi á Selfossi
upp úr miðnætti á laugardag.
Atvikið varð með þeim hætti
að ökumaður, sem ekki var
kunnugur bifreiðinni, ætlaði að
aka aftur á bak út úr innkeyrslu
við hús. Bifreiðin fór þá skyndi-
lega áfram og á stúlkurnar sem
stóðu fyrir framan bifreiðina.
Hún er sjálfskipt og er talið
mögulegt að ökumaðurinn hafi
óvart sett í áframgír í stað bakk-
gírs.
Stúlkurnar voru fluttar á
heilsugæslustöðina á Selfossi til
skoðunar en reyndust hafa hlotið
minni háttar meiðsli. - jss
Óhapp á Selfossi:
Tvær stúlkur
urðu fyrir bíl
Valt við Haukadalsá
Beita þurfti nýjum klippum slökkvi-
liðsins í Búðardal þegar jeppabifreið
valt í gær sunnan við brúna yfir
Haukadalsá. Tveir voru í bílnum og
var farþegi fluttur með sjúkrabíl á
sjúkrahús með einhverja áverka,
meðal annars handleggsbrot og
eymsli í hálsi.
LÖGREGLUFRÉTTIR
RÍKISSKULDABRÉFASJÓÐIR | landsbankinn.is | 410 4000
Ríkisskuldabréfasjóðir Landsbankans eru verðbréfasjóðir samkvæmt lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Vörslufélag sjóðanna er Landsbankinn.
Rekstrarfélag sjóðanna er Landsvaki hf. Gengi hlutdeildarskírteina í verðbréfasjóðum getur bæði hækkað og lækkað. Nánari upplýsingar um sjóðina má finna í útboðslýsingu eða
útdrætti úr útboðslýsingu sjóðanna sem finna má á heimasíðu Landsbankans www.landsbankinn.is eða heimasíðu rekstrarfélagsins www.landsvaki.is. Fjárfestum er bent á að
kynna sér útboðslýsingu sjóðanna áður en fjárfest er í þeim, en þar er meðal annars ítarleg umfjöllun um þá áhættu sem felst í fjárfestingu í hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða.
N
B
I h
f.
(L
an
d
sb
an
ki
nn
),
k
t.
4
71
0
0
8
-0
2
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
10
13
Fjórar góðar leiðir
til ávöxtunar
Sjóðurinn hentar þeim fjárfestum
sem vilja dreift safn skuldabréfa
með ábyrgð íslenska ríkisins.
Meðallíftími sjóðsins er 4-7 ár en
vaxtaáhætta eykst eftir því sem
meðallíftími skuldabréfa sjóðs
er lengri.
Sjóðurinn hentar þeim fjárfestum
sem vilja dreift safn ríkisvíxla og
stuttra skuldabréfa með ábyrgð
íslenska ríkisins. Meðallíftími
sjóðsins er 0-1 ár og er vaxta-
áhætta því lítil í sjóðnum.
Sjóðurinn hentar þeim fjárfestum
sem vilja dreift safn stuttra
skuldabréfa með ábyrgð íslenska
ríkisins. Meðallíftími sjóðsins er
1-4 ár en vaxtaáhætta eykst eftir
því sem meðallíftími skuldabréfa
sjóðs er lengri.
Sjóðurinn hentar þeim fjárfestum
sem vilja dreift safn skuldabréfa
með ábyrgð íslenska ríkisins.
Meðallíftími sjóðsins er 7 ár eða
meira, en vaxtaáhætta eykst
eftir því sem meðallíftími skulda-
bréfa sjóðs er lengri.
Sparibréf meðallöngReiðubréf ríkistryggð Sparibréf stutt Sparibréf löng
*Samsetning sjóðanna 01.02.2010
Kynntu þér kostina
Komdu við í næsta útibúi Landsbankans eða hafðu samband
við Fjármálaráðgjöf Landsbankans sem veitir upplýsingar
og aðstoð við fjárfestingar í innlánum, verðbréfasjóðum og
öðrum fjárfestingarleiðum í síma 410 4040.
Landsbankinn býður upp á fjóra skuldabréfasjóði sem
fjárfesta nær eingöngu í ríkistryggðum skuldabréfum.
Sjóðirnir henta vel til reglubundins sparnaðar og hafa
á síðustu mánuðum skilað betri ávöxtun en almennir
innlánsreikningar. Einfalt er að kaupa og selja í sjóðunum
og njóta viðskiptavinir þess að enginn munur er á kaup- og
sölugengi í áskrift.
Sjóðirnir hafa sömu fjárfestingarstefnu en mismikla
vaxtaáhættu. Skuldabréf og aðrar kröfur með ábyrgð
íslenska ríkisins nema 90-100% af heildareignum sjóðanna
en innlán á bilinu 0-10%.
Innlán: 2,6%*
Ríkistryggð skuldabréf / ríkisvíxlar: 97,4%*
Innlán: 0,3%*
Ríkistryggð skuldabréf / ríkisvíxlar: 99,7%*
Innlán: 1,5%*
Ríkistryggð skuldabréf / ríkisvíxlar: 98,5%*
Innlán: 2%*
Ríkistryggð skuldabréf / ríkisvíxlar: 98%*
Ríkissku
ld
a
b
réfasjóðir Landsbanka
ns
www.landsbankinn.is
DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á Aust-
urlandi hefur ákært fjóra karl-
menn fyrir Héraðsdómi Austur-
lands fyrir kannabisræktun og
jafnframt að hafa komið sér upp
mikilvirkri kannabisverksmiðju,
þar sem hefði verið hægt að
rækta allt að sex hundruð kanna-
bisplöntur í senn.
Mennirnir höfðu komið sér
fyrir á bænum Karlsstöðum á
Berufjarðarströnd, sem einn
þeirra hafði umráð yfir. Þeir eru
allir frá Reykjavík og um þrí-
tugt.
Mennirnir eru ákærðir fyrir að
hafa, í sölu- og dreifingarskyni,
ræktað sextán kannabisplöntur
sem vógu samtals 8,8 grömm og
fyrir tilraun til stórfellds brots
gegn lögum um ávana- og fíkni-
efni, með því að setja upp mjög
stóra ræktunaraðstöðu fyrir allt
að 600 kannabisplöntur, sem lög-
reglan fann þar við leit 6. maí
2009.
Auk refsingar yfir mönnunum
er krafist upptöku á umfangs-
miklum búnaði sem mennirnir
höfðu komið sér upp á bænum.
Upptalning á búnaði mannanna
er í tæplega sjötíu liðum.
Þar á meðal er viðamikill ljósa-
búnaður, einkum gróðurhúsa-
lampar, dælubúnaður og viftur.
- jss
KANNABISVERKSMIÐJA Mennirrnir voru
búnir að koma sér upp öflugri verk-
smiðju með fullkomnum búnaði.
MYND ÚR SAFNI.
Fjórir stórtækir kannabisræktendur ákærðir fyrir Héraðsdómi Austurlands:
Með risaverksmiðju á sveitabæ
HEILBRIGÐISMÁL „Sveitarstjórn
Húnaþings vestra mótmælir
harðlega öllum hugmyndum
sem lúta að því að dregið verði
úr viðbúnaði og þjónustu á fæð-
ingardeild Heilbrigðisstofnunar
Vesturlands á Akranesi,“ segir
í ályktun sveitarstjórnarinnar.
Hún kveður mikinn meirihluta
verðandi mæðra í Húnaþingi
vestra hafa valið að fæða börn sín
á Akranesi.
Sveitarstjórnin mótmælir líka
boðaðri fækkun hjúkrunarrýma
á Hvammstanga um tvö. „Öll
hjúkrunarrými á Hvammstanga
eru nú fullnýtt og ekki hefur
verið unnt að mæta eftirspurn
eftir þeirri þjónustu.“ - gar
Húnaþing vestra mótmælir:
Fæðingardeild
starfi óbreytt
HVAMMSTANGI Vestur-Húnvetningar
segjast reiða sig á þjónustu fæðingar-
deildar á Akranesi.
ÞJÓÐLENDUR Landssamtök landeig-
enda skora á Alþingi að setja lög
sem heimili endurupptöku finnist
ný sönnunargögn í þjóðlendumál-
um, sem dæmt hefur verið um.
Þetta segir í ályktun aðal-
fundar samtakanna sem haldinn
var á fimmtudag. 16.000 órann-
sökuð skjöl liggi í Árnastofn-
un og á Landsbókasafni. Þar
kunni að leynast ný sönnunar-
gögn um eignarrétt á landi sem
dæmt hefur verið að teljast skuli
þjóðlenda. Núgildandi lög heim-
ili ekki endurupptöku komi slík
gögn í leitirnar. - pg
Aðalfundur landeigenda:
Þjóðlendumál
endurupptekin
finnist ný gögn
Mótmæla ferjugjaldi í Hrísey
Hverfisráð Hríseyjar hefur sent
Vegagerðinni og samgönguráðherra
tölvupóst um mikla óánægju íbúa
eyjarinnar með breytingar á áætlun
Hríseyjarferjunnar Sævars og hækkun
gjaldskrár. Bæjarráð Akureyrar tekur
undir mótmælin og bendir á að ferjan
sé þjóðvegur á sjó og eina aðkomu-
leiðin til eyjarinnar. Endurskoða þurfi
ákvörðunina.
SAMGÖNGUR
Nýju ári fagnað Þessir glaðlegu Kínverj-
ar dönsuðu ljónadans í Peking þegar
þeir fögnuðu ári tígursins.
FRÉTTABLAÐIÐ AP