Fréttablaðið - 16.02.2010, Side 14
14 16. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Meira í leiðinni
WWW.N1.IS
Sími 440 1000
N1 STÓRVERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9
N1 verslanir: Kópavogi, Hafnarfirði, Akureyri, Akranesi, Ólafsvík,
Egilsstöðum, Vestmannaeyjum, Keflavík, Selfossi, Reyðarfirði og Höfn.
N1 og Tork.
Sterkt lið á pappírunum.
N1 er umboðsaðili Tork á Íslandi. Við bjóðum upp á mikið úrval af pappír
og hreinlætisvörum frá Tork, en þær eru þekktar fyrir gæði, þægindi
og hagstætt verð. Tork vörurnar eru umhverfisvænar og státa af vottun
samkvæmt ISO 9001 og ISO 14000 stöðlunum. Hafðu samband við
okkur og veldu þær vörur og lausnir frá Tork sem henta þér best.
DÓMSMÁL Tveir karlmenn hafa
verið dæmdir, annar í sextíu daga
fangelsi og hinn í 45 daga, fyrir hús-
brot og almannahættu. Dómur hins
síðarnefnda er skilorðsbundinn.
Mennirnir voru ákærðir fyrir
að hafa, að morgni fimmtudagsins
3. júlí 2008, farið í heimildarleysi
inn á flugvallarsvæðið við Flugstöð
Leifs Eiríkssonar. Þeir klifr uðu yfir
girðingu og hlupu mörg hundruð
metra innan svæðisins, að því er
segir í ákæru.
Röskuðu mennirnir öryggi loft-
fara en á flugvallarsvæðinu voru
flugvélar á leið í áætlunarflug. Varð
að stöðva flugumferð þar til ákærðu
voru handsamaðir á flugbrautinni
„Charlie“.
Verið var að ræsa hreyfla far-
þegaþotu sem var á leið í loftið.
Mennirnir hlupu fram með henni
og fram fyrir hana. Þeir báru því
við fyrir dómi að þennan morg-
un hafi verið fluttur nauðugur úr
landi maður frá Keníu, Paul Ram-
ses að nafni, frá konu og ungu
barni. Hafi það verið borgara-
legur réttur þeirra og skylda að
reyna að koma í veg fyrir það að
maður þessi væri fluttur brott því
hans myndu bíða ill kjör.
Annar mannanna hafði þrisvar
verið sektaður fyrir brot gegn
lögreglulögum þegar hann rudd-
ist inn á flugvöllinn ásamt félaga
sínum.
- jss
Tveir stuðningsmenn Pauls Ramses fyrir dómstólum:
Dæmdir fyrir að
hlaupa fyrir flugvél
FENGU STÓRA VINNINGINN Breska
parið Justine Laycock og Nigel Page
vann 65 milljónir evra, eða rúmlega
átta milljarða króna, í evrópska lottó-
inu EuroMillions. Önnur eins upphæð
kom í hlut manns á Spáni.
NORDICPHOTOS/AFP
ATVINNUMÁL Alls bárust sjö umsóknir í for-
val vegna hönnunarsamkeppni nýs Landspít-
ala og eru stærstu verkfræðistofur landsins
meðal þátttakenda. Ábyrgðaraðilar hönnun-
arteymanna sjö, sem skiluðu inn umsókn-
um í forvalið, eru allir íslenskir: Mannvit,
TBL Arkitektar, VSÓ Ráðgjöf, Efla, Verkís,
Almenna verkfræðistofan og Guðjón Bjarna-
son.
Hönnunarsamkeppnin tekur til áfanga-
skipts skipulags lóðar Landspítala við Hring-
braut og útfærslu á 66 þúsund fermetra
nýbyggingu þar. Áætlað er að framkvæmd-
ir við nýja spítalann geti hafist á síðari hluta
árs 2011 og standi fram á árið 2016. Áætlaður
kostnaður við nýbygginguna er um 33 millj-
arðar króna á verðlagi í mars 2009 og skipt-
ist hún í þrjá meginhluta: bráðakjarna með
bráðamóttöku, myndgreiningu, gjörgæslu,
skurðstofum og rannsóknarstofum; legudeild-
ir með 180 rúmum sem öll eru í einbýli og
sjúklingahótel með 80 herbergjum.
Engar athugasemdir voru gerðar við fram-
kvæmd forvalsins þegar niðurstöðurnar voru
kynntar í gær. Forvalsnefnd skilar niðurstöð-
um sínum eftir viku, mánudaginn 22. febrúar
2010. Valin verða allt að fimm teymi til þátt-
töku í hönnunarsamkeppninni þar sem skila-
frestur er í byrjun júní 2010 og úrslit eiga að
liggja fyrir mánuði síðar. - shá
Stærstu verkfræðistofur landsins á meðal þátttakenda í forvali vegna LHS:
Sjö vilja hanna nýjan Landspítala
SJÖ UMSÓKNIR BÁRUST Katrín Arnþórsdóttir, verkefna-
stjóri hjá Ríkiskaupum, opnaði umsóknirnar í viðurvist
umsækjenda í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FRAMKVÆMDIR Hönnun nýrrar
vatnsleiðslu á milli Garðs og
Sandgerðis er á lokastigi.
Með tilkomu leiðslunnar mun
Garðurinn tengjast vatnsveitu
sveitarfélaganna úr Gjánni á
Reykjanesi, eins og Víkurfréttir
sögðu frá í gær.
Vatnstaka úr Gjánni hófst eftir
að vatnsból á Nikkelsvæðinu svo-
kallaða menguðust af völdum
varnarliðsins.
Ný vatnsveita var þá byggð upp
fyrir skaðabætur sem Banda-
ríkjaher greiddi. Féð átti að
tryggja ferskvatn til bæjarfélag-
anna í Keflavík, Sandgerði og
Garði.
Garður og Sandgerði hafa feng-
ið vatn úr borholum þangað til
fyrir nokkrum árum að leiðsla
var lögð til Sandgerðis, en nú er
röðin komin að Garði. - shá
Vatn fyrir skaðabætur:
Garður tengist
vatnsleiðslu
LÖGREGLUMÁL Leifar af kannabis-
efnum fundust í dós inni á salerni
Tækniskólans síðastliðinn fimmtu-
dag, þegar lögregla leitaði í hús-
næðinu með þrem fíkniefnaleitar-
hundum, að beiðni skólayfirvalda.
Þetta staðfestir Geir Jón Þóris-
son, yfirlögregluþjónn hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu.
Hann segir jafnframt að stað-
festur orðrómur hafi verið um
að nemendur úr grunnskólanum
við hlið Tækniskólans hafi leitað
inn í Tækniskólann til að komast
í fíkniefni hjá einhverjum af eldri
nemendum þar. Sterk vísbending
sem komið hafi til kasta forvarna-
fulltrúa lögreglunnar hefði gefið
tilefni til að þessi mál voru tekin
föstum tökum í grunnskólanum.
Jafnframt að það hafi þótt ástæða
til að athuga Tækniskólann í ljósi
þessara upplýsinga.
Fíkniefnaleitin í Tækniskól-
anum vakti mikla athygli. Bald-
ur Gíslason, skólameistari, sagði
við það tilefni við Fréttablaðið að
verið væri að fylgja fordæmi ann-
arra skóla í forvarnaskyni en fjöldi
skóla hefði látið gera fíkniefnaleit
innan sinna vébanda. Enginn sér-
stakur grunur hafi verið til staðar
um fíkniefnaneyslu í Tækniskól-
anum. Ekkert hefði fundist og nið-
urstaðan væri ánægjuleg.
„Í niðurstöðu samantektar hjá
okkur um tíðni fíkniefnaleita í
framhaldsskólum eru það einn til
tveir skólar á ári, frá árinu 2007,
sem biðja lögreglu um slíka leit,“
segir Geir Jón. „Það er einungis
farið í þá skóla þar sem skóla-
stjórnendur óska eftir því. Í einu
tilviki var gerð leit að frumkvæði
nemenda.“
Spurður um hvort beiðnir af
þessu tagi séu grundvallaðar á rök-
studdum grun um fíkniefnaneyslu
í viðkomandi skóla segir Geir Jón
þær oftar en ekki tilkomnar vegna
orðróms eða gruns um slíkt.
„Ef upplýsingar eru þess eðlis
að skólayfirvöldum sýnist að tíma-
bært sé að taka á þessu með þess-
um hætti, sem hefur mikið for-
varnagildi, þá er það gert og þess
gætt að hafa allt saman eftir sett-
um reglum. Þess er gætt að per-
sónulega sé ekki gengið að neinum
nema í samráði við viðkomandi.“
Geir Jón segir að í sumum
þeirra skóla sem leitað hafi verið
í hafi fundist vísbendingar um
neyslu.
„Það hafa fundist leifar af
efnum, verkfæri til fíkniefna-
neyslu eða að hundar hafa vakið
athygli á nemendum sem sjálfir
hafa verið í neyslu eða í snertingu
við neyslu. En í flestöllum tilvik-
um sýnist mér að ekkert slíkt hafi
komið fram.“
jss@frettabladid.is
TÆKNIHÁSKÓLINN Leit lögreglu að fíkniefnum í Tækniskólanum síðastliðinn fimmtu-
dag vakti mikla athygli. Hún fór fram að beiðni skólayfirvalda. Fremur fátítt er að
beðið sé um slíka leit. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Kannabisrest
í dós á klóinu
Lögregla fann leifar af kannabisefni í dós á salerni í
Tækniháskólans. Rökstuddur grunur um að grunn-
skólanemar hafi leitað eftir fíkniefnum í skólanum.
GEIR JÓN
ÞÓRISSON
Í niðurstöðu samantekt-
ar hjá okkur um tíðni
fíkniefnaleita í framhaldsskólum
eru það einn til tveir skólar á ári,
frá árinu 2007, sem biðja lögreglu
um slíka leit.
GEIR JÓN ÞÓRISSON
YFIRLÖGREGLUÞJÓNN HJÁ LÖGREGLUNNI
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
BALDUR GÍSLASON