Fréttablaðið - 16.02.2010, Blaðsíða 21
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Mín lífsregla er sú að huga vel
að heilsunni og kunna mér hóf í
öllu sem ég tek mér fyrir hend-
ur,“ segir Jónína Björg Yngvadótt-
ir, starfsmaður hjá Heilsuhúsinu í
Kringlunni, sem ákvað að breyta
um lífsstíl fyrir fjórum árum eftir
að hafa glímt við heilsubrest á borð
við síþreytu og þrálát veikindi
ásamt því að vera komin yfir kjör-
þyngd.
Jónína segist hafa lifað nokk-
uð heilbrigðu lífi en þrátt fyrir
það hafi heilsunni tekið að hraka
og því hafi hún ekki séð sér annað
fært en að gera allsherjar breyt-
ingu á sínu lífi. „Ég endurskoð-
aði mitt lífsmynstur, hreyfingu og
mataræði,“ útskýrir hún. „Ég fór
til dæmis að neyta fitusýra í aukn-
um mæli og drekk vatn og jurtate,
sérstaklega netlute sem er uppfullt
af steinefnum og gott gegn bjúg.“
Hún bætir við að daglegir göngu-
túrar séu orðnir ómissandi hluti af
tilverunni. „Líkamsræktarstöðv-
ar henta mér ekki þessa stundina.
Í staðinn fer ég reglulega í kraft-
göngu með yngsta fjölskyldumeð-
liminn sem er enn í vagni en það
munar alveg um að ýta þessum kíló-
um á undan sér. Ég tala nú ekki um
ef farið er upp og niður brekkur.“
Eftir að lífsstíllinn var tekinn
til gagngerrar endurskoðunar lét
árangurinn ekki á sér standa að
sögn Jónínu. „Munurinn er hreint út
sagt alveg ótrúlegur; mér líður bara
svo miklu betur í alla staði. Það sem
meira er er að þegar maður fer að
lifa heilbrigðara lífi tekur maður
líka smám saman betur eftir skila-
boðum sem líkaminn sendir. Ég er
til dæmis farin að forðast þann mat
sem ég veit að gerir mér ekki gott
og mér líður ekki vel af að borða.“
Jónína tekur þó fram að kapp sé
best með forsjá. „Allsherjar lífs-
stílsbreytingu er gott að gera skref
fyrir skref þar sem of skörp breyt-
ing getur orðið til þess að menn
gefast upp. Að sama skapi er ekk-
ert að því að leyfa sér endrum og
eins hluti sem maður veit að gera
manni ekki endilega gott svo fram-
arlega sem maður lifir heilbrigðu
lífi á heildina litið.
Loks er mikilvægt að setja sjálf-
an sig í fyrsta sæti ætli maður að
geta gert það við fólkið í kringum
sig og muna að brosa í spegilinn
sem er erfiðara en að segja það.“
roald@frettabladid.is.
Drekkur netlute og fer
reglulega í kraftgöngu
Jónína Björg Yngvadóttir ákvað að breyta um lífsstíl fyrir nokkrum árum. Þá var bágborið heilsufar farið
að setja mark sitt á líf hennar og hún sá ekki annað í stöðunni en að auka hreyfingu og bæta mataræðið.
„Mér líður bara svo miklu betur í alla staði,“ segir Jónína, sem ákvað að breyta um lífsstíl vegna síþreytu og þrálátra veikinda.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TILVALIÐ ER AÐ HAFA prjónapoka eða
körfu undir prjónadótið, svo auðveldara sé að
halda öllu til haga. Merkihringir og annað smádót
á það til að fara á flakk og því sniðugt að geyma
allt á sama stað. Taupokar, stórar töskur eða bast-
körfur henta vel undir prjónadót.
– Lifið heil Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
4
92
84
0
2/
10
Otrivin
tveir í einum
- fjölskyldupakki
8% ódýrari
1.234 kr.
Nicotinell Mint
2 mg, 300 stk.
19% ódýrara
en 204 stk. pakkning
með myntubragði miðað
við hvert tyggjó.
8.127 kr.
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafknúnir
hæginda-
stólar
•
standa upp
• Einfaldar stillingar
og fjölbreytt úrval
Tímapantanir 534 9600
Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur www.heyrn.is
* Tal fólks í margmenni
* Hjal smábarns
* Marr í snjónum
Ertu að fara á mis við hljóð sem skipta miklu máli?
GRÍPTU TIL ÞINNA RÁÐA
Láttu sérmenntaðan
heyrnarfræðing mæla
heyrnina og fáðu faglega
ráðgjöf.