Fréttablaðið - 16.02.2010, Side 24
KÍNVERSKAR KONUR búa til andlitsmaska úr hunangi, mjólk
og eggjahvítu en hann reynist vel gegn bólum og hrukkum. Þær
nota auk þess hrísgrjónaedik sem andlitsvatn eða út í baðið.
Dr. Jóhanna Einarsdóttir, lektor
í talmeinum, máltöku barna og
aðferðafræði, heldur fyrirlestur
undir yfirskriftinni Hvað köllum
við stam hjá leikskólabörnum í
stofu 423 í Árnagarði á morgun.
Þar segir hún frá niðurstöðum
rannsókna sinna á stami sem hún
setti fram í doktorsritgerð sem
hún varði við læknadeild Háskóla
Íslands fyrir ári.
„Það er oft talað um að fjöldi
barna á leikskólaaldri stami en sú
er þó ekki raunin. Þau eiga það
hins vegar mörg til að hökta og
endurtaka sama orðið en í lang-
flestum tilfellum vex það af
þeim,“ segir Jóhanna. Hún segir
að þegar verið sé að leggja mat
á stam byggist það á skynjun
en það hefur komið í ljós bæði í
hennar og erlendum rannsóknum
að það er mjög misjafnt hvað það
er sem fólk skynjar sem óeðli-
legt tal. „Það er þekkt vandamál
í talmeinafræðikennslu og kemur
niður á áreiðanleikanum.“
Í doktorsverkefni sínu notaði
Jóhanna tímaþrepsmælingar til
að bera saman mat tíu íslenskra
og tíu bandarískra talmeinafræð-
inga á stami níu íslenskra barna
sem sýndu mismunandi einkenni
og alvarleika stams. Talmeina-
fræðingar mátu hvert fimm sek-
úndna myndbandsbrot í tvígang
annaðhvort sem stamað eða sem
ekki stamað.
Niðurstöðurnar gefa til kynna
að mat á stami ungra barna sé
almennt ekki bundið tungumál-
inu og gátu erlendu talmeina-
fræðingarnir metið stamið þó
að þeir skildu ekki hvað börn-
in voru að segja. Hins vegar var
mikill munur á því hvað talmeina-
fræðingarnir skynjuðu sem óeðli-
legt tal óháð því hvort þeir voru
íslenskir eða bandarískir og því
ljóst að mikil þörf er á stöðluðu
kerfi.
Jóhanna hefur í kjölfarið þróað
þjálfunar- og matskerfið SMAAT
sem á að tryggja aukið sam-
ræmi. Um er að ræða tölvuforrit
sem byggir á niðurstöðum rann-
sóknanna en einnig á bandarísku
kerfi sem er notað fyrir fullorðna
en hingað til hefur ekki verið
til sams konar kerfi fyrir börn.
Jóhanna notar það í meðferðar-
vinnu en það gæti einnig nýst til
að þjálfa foreldra, leikskólakenn-
ara og talmeinafræðinga í að
greina stam.
Jóhanna hefur kynnt niðurstöð-
ur rannsókna sinna erlendis og
hefur sú staðreynd að mat á stami
sé ekki bundið tungumálinu víða
vakið athygli. Í fyrirlestrinum,
sem hefst klukkan 16.15 á morg-
un, sýnir hún dæmi um tímaþrep
sem talmeinafræðingarnir voru
sammála um að meta sem stömuð
og ekki stömuð og eins dæmi þar
sem þeir voru ósammála.
Jóhanna segir um fjögur pró-
sent íslenskra leikskólabarna
stama en einungis eitt prósent
fullorðinna sem þýðir að í lang-
flestum tilfellum vaxi það af fólki.
Hún segir flest benda til þess að
stam eigi sér líffræðilegar skýr-
ingar og tengist taugaboðum en
að það komi fram við ákveðnar
aðstæður í umhverfinu.
vera@frettabladid.is
Samræmir mat á stami
Niðurstöður dr. Jóhönnu Einarsdóttur á stami gefa til kynna að mat á stami ungra barna sé almennt ekki
bundið tungumálinu en hins vegar sé mikill munur á því hvað talmeinafræðingar skynja sem óeðlilegt tal.
Jóhanna hefur þróað þjálfunar- og matskerfið SMAAT sem á að tryggja aukið sam-
ræmi í mati á stami. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Leiðbeinandi: Ebba Guðný
Guðmundsdóttir kennari
Verð: 3.500 kr.
Upplýsingar og skráning:
síma 694-6386 og á netfanginu
ebbagudny@internet.is
,,Lengi býr að fyrstu gerð”
Borgartún 24 – Hæðarsmára 6 – Hafnarborg s. 58 58 700 www.madurlifandi.is
Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða?
Miðvikudagur 17. febrúar
kl. 20.00–22.00
Maður lifandi Borgartúni 24
Skeifunni 3j · Sími 553 8282 · www.heilsudrekinn.is
Jafnvægi fyrir líkama og sál
heilsumeðferð · heilsuvörur · dekur · leikfimi
Gleðilegt nýtt ár
Ár Tígursins
Aðalfundur
Aðalfundur Kópavogsdeildar Rauða kross Íslands
verður haldinn miðvikudaginn 24. febrúar kl. 20
í Hamraborg 11, 2. hæð.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál
Fundarseta er öllum heimil.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Stjórnin
www.redcross.is/kopavogur
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...