Fréttablaðið - 16.02.2010, Blaðsíða 42
34 16. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Íslenski landsliðsmaðurinn og varnartröllið Sverre
Jakobsson er óðum að ná sér eftir að hafa meiðst
illa á vinstra auga á æfingu með þýska liðinu Gross-
wallstadt.
„Þetta gerðist fyrir viku síðan þegar við vorum að gera
vissar æfingar og spila ákveðið kerfi. Ég var að spila sem
línumaður og var að hlaupa frá hægri til vinstri og stóð
bara rólegur á sex metrunum þegar ein skytta hjá okkur fær
boltann og stekkur upp og á að skjóta á markið en það gekk
ekki betur en svo hjá honum að hann dúndraði boltanum bara
í smettið á mér. Boltinn fór eiginlega beint í vinstra augað á mér og
þetta á náttúrulega ekki að vera hægt þegar maður stendur bara á
sex metrunum og ég var í þokkabót ekki einu sinni að horfa á hann
þannig að ég sá þetta ekki koma. Það næsta sem ég sá voru bara
ljósin uppi í loftinu á höllinni og ég vissi ekki hvort ég væri kominn
til himnaríkis eða hvað væri eiginlega í gangi,“ segir Sverre og
hlær.
Nú, viku eftir að atvikið átti sér stað, sér Sverre fram á að
geta byrjað fljótt aftur að æfa og vonast til þess að ná að
spila þarnæsta leik með liði sínu.
„Það sem gerði þetta verra var að linsan sem var í auganu á
mér fór náttúrulega í mask og augnlækninum sem
skoðaði mig fyrst leist ekkert alltof vel á þetta því
það blæddi mikið inn á augað. Ég reikna með því
að þetta taki viku í viðbót ef allt fer að óskum og
þá verð ég vonandi klár í slaginn eftir næsta
leik. Ég fór í skoðun í dag [í gær] og þetta er
allt á réttri leið held ég og ég hef í sjálfu
sér enga ástæðu til annars en að
halda að ég nái mér bara fullkomlega
aftur. Hættan er náttúrulega að það
blæði aftur inn á augað og ef það
gerist þá er væntanlega einhver rifa á
hornhimnunni í auganu sem þyrfti að laga með
einhvers konar aðgerð og það myndi þýða að ég
yrði lengur frá en útlit er fyrir núna. Ég þarf bara að
taka því rólega áfram og vona það besta,“ segir Sverre
vongóður.
SVERRE JAKOBSSON: ER Á BATAVEGI EFTIR AÐ HAFA MEIÐST ILLA Á AUGA Á ÆFINGU MEÐ GROSSWALLSTADT
Vissi ekki hvort ég væri kominn til himnaríkis
FÓTBOLTI Sigurður Ragnar Eyjólfs-
son ætlar sér að auka breiddina í
íslenska kvennalandsliðinu á árinu
2010 og fyrsta skrefið þar er að taka
fimm ungar og stórefnilegar knatt-
spyrnukonur með á Algarve-bikar-
inn sem hefst með leik við Banda-
ríkin 24. febrúar.
„Það er töluvert um meiðsli og
forföll en svo hafa líka þessir ungir
leikmenn staðið sig mjög vel. Þær
voru góðar á æfingunum okkar í
janúar og febrúar og hafa farið vel
af stað á þessu ári,“ segir Sigurður
Ragnar um ástæður þess að hann
tekur svo marga nýliða inn.
„Það á enginn að vera í áskrift
í landsliðinu og við áttum að mínu
mati slakan leik úti á móti Norð-
ur-Írum. Það var tækifæri núna til
að skoða ný andlit því það er mjög
gott að skoða það núna hverjir eru
næstu leikmenn inn í hópinn og
hvernig þær standa sig á móti sterk-
um andstæðingum,“ segir Sigurður
Ragnar. Hann valdi þær Berglindi
Björgu Þorvaldsdóttur úr Breiða-
bliki, Dagnýju Brynjarsdóttur og
Thelmu Björk Einarsdóttur úr Val,
Elínborgu Ingvarsdóttur og Mist
Edvarsdóttir úr KR í hópinn sinn.
„Mér finnst Berglind vera mjög
efnilegur markaskorari. Dagný
getur bæði spilað frammi en hent-
ar jafnvel ennþá betur í svæðinu á
milli miðju og sóknar,“ segir Sig-
urður Ragnar og hann sér miklar
framfarir hjá Dagnýju.
„Dagný hefur mikla yfirferð og
er í mjög góðu formi. Hún kom best
út í þrekprófi af öllum leikmönnum
landsliða kvenna. Hún hljóp lengst
af öllum í Cooper-prófi í janúar.
Maður hefur séð miklar framfarir
hjá henni núna frá því í fyrra. Hún
er á mikilli uppleið,“ segir Sigurð-
ur Ragnar,
„Elínborg hefur staðið sig mjög
vel með yngri landsliðunum. Hún
er varnartengiliður, dugleg, vinnu-
söm og agressív,“ segir Sigurður
en tveir aðalvarnartengiliðir liðs-
ins, Edda Garðarsdóttir og Dóra
Stefánsdóttir, eru báðir meiddir.
„Mig langar svolítið að skoða
Mist sem hafsent. Hún hefur verið
að spila hafsent eða sem varnar-
tengiliður hjá KR. Hún er líkam-
lega sterk og góður skallamaður.
Hana vantar aðeins upp á hrað-
ann en hefur margt til að bera til
þess að verða framtíðar-hafsent
í íslenska landsliðinu,“ segir Sig-
urður.
„Telma Björk átti frábært tíma-
bil með Val sem vinstri bakvörð-
ur. Hún var í flestum liðum árs-
ins og var mjög sterk með 19 ára
liðinu í fyrra. Hún er mjög spenn-
andi kostur fram á við sem bak-
vörður þó að ég vildi sjá hana bæta
sig ennþá meira sem varnarmaður
einn á móti einum,“ segir Sigurð-
ur Ragnar.
Edda Garðarsdóttir gat ekki
verið með á mótinu vegna meiðsla
og er þetta fyrsti landsliðshópur-
inn síðan í ársbyrjun 2004 þar sem
Edda er ekki með. „Edda er með
beinmar í hné en þetta eru meiðsli
sem hún fékk á landsliðsæfingu í
byrjun janúar. Hún er ekki búin að
ná sér og við verðum bara að vona
að hún verði orðin góð fyrir móta-
leikina í byrjun mars,“ segir Sig-
urður.
„Okkur fannst við ekki hafa nógu
mikla breidd og eitt af okkar verk-
efnum verður að búa hana til. Ég
lít á þetta sem kærkomið verkefni
til þess að búa til góða breidd og
gera fleiri klárar í þá hugmynda-
fræði sem við viljum nota í lands-
liðinu.“ ooj@frettabladid.is
Fimm nýliðar fá tækifæri
Sigurður Ragnar Eyjólfsson segir tækifæri til að skoða ný andlit í Algarve-bik-
arnum í Portúgal seinna í þessum mánuði en hann tilkynnti 20 manna hóp
sinn í gær. Edda Garðarsdóttir missir af sínu fyrsta landsliðsverkefni í sex ár.
ÆTLAR AÐ AUKA BREIDDINA Sigurður Ragnar Eyjólfsson. FRÉTTABLÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Sextán liða úrslit Meistaradeildar Evr-
ópu hefjast í kvöld með tveimur sannkölluðum
stórleikjum þar sem annars vegar AC Milan
mætir Manchester United og hins vegar
Lyon tekur á móti Real Madrid.
David Beckham mun mæta
Manchester United í kvöld í
fyrsta skipti síðan hann yfirgaf
félagið fyrir sjö árum en ekki
liggur þó ljóst fyrir hvort hann
verður í byrjunarliði AC Milan
á San Siro-leikvanginum. Þegar
Beckham fór frá United var mikið
rætt um að það hefði verið vegna
ósættis á milli hans og knattspyrnu-
stjórans Sir Alex Ferguson en leikmaðurinn
gefur lítið út á það.
„Fyrir utan að vera goðsögn í
knattspyrnuheiminum
var Ferguson mér
alltaf eins og faðir
og það hefur ekk-
ert breyst sama á
hverju hefur geng-
ið. Ég á ekki harma að
hefna gegn honum eða
United. Það verður hins
vegar óneitanlega skrítið að
mæta félaginu sem ég hef stutt
í svo mörg ár því þetta verður í
fyrsta skipti sem ég mun vona
að United tapi,“ sagði Beckham
á blaðamannafundi í gær.
AC Milan hefur haft gott tak
á United í Meistaradeildinni og síðast þegar
félögin áttust við í undanúrslitum tímabilið
2006-2007 vann ítalska félagið samanlagt 6-
2.
United verður án Nemanja Vidic og Ryans
Giggs sem eru meiddir en AC Milan verður
hins vegar án Marco Boriello.
Leikmenn og aðstandendur Real Madr-
id hafa ekki farið leynt með stefnu sína að
landa Meistaradeildartitlinum á þessu tíma-
bili en úrslitaleikurinn fer einmitt á heima-
velli spænska félagsins, Santiago Bernabeu.
Fyrri leikur Real og Lyon í kvöld fer aftur
á móti fram á Gerland-leikvanginum og þar
hefur franska félaginu gengið vel gegn Real
Madrid og unnið síðustu tvo leiki félaganna,
3-0 tímabilið 2005-2006 og 2-0 tímabilið 2006-
2007. - óþ
Flestra augu verða á David Beckham þegar AC Milan tekur á móti Manchester United í kvöld:
Kveðst ekki eiga harma að hefna
BECKHAM Ber ekki kala í garð Manchest-
er United eða knattspyrnustjórans Sir
Alex Ferguson. NORDIC PHOTOS/AFP
Iceland Express karla
Grindavík-Breiðablik 94-68 (43-39)
Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 21, Ólafur
Ólafsson 18, Darrell Flake 18, Ómar Sævarsson
14, Brenton Birmingham 12, Ármann Vilbergsson
6, Guðlaugur Eyjólfsson 4, Björn Steinar Brynj-
ólfsson 1.
Stig Breiðabliks: Jeremy Caldwell 21 (21 frákast),
Aðalsteinn Pálsson 11, Águst Angantynsson 10,
Jonathan Schmidt 10, Daníel G. Guðmundsson
9, Jónas Ólafsson 5, Þorsteinn Gunnlaugsson 2.
FSu-Snæfells 116-133 (60-75)
Stig FSu: Richard Williams 40 (10 fráköst), Aleks-
as Zimnickas 24, Kjartan Kárason 16, Sæmundur
Valdimarsson 12, Cristopher Caird 12, Jake Wyatt
6, Orri Jónsson 5.
Stig Snæfells: Sean Burton 25 (8 stoðs.),
Sigurður Þorvaldsson 24, Hlynur Bæringsson 22
(8 fráköst), Jón Ólafur Jónsson 22, Sveinn Arnar
Davíðsson 15, Martins Berkis 15, Emil Þór
Jóhannsson 6, Pálmi Fannar Helgason 2, Pálmi
Freyr Sigurgeirsson 2.
Tindastóll-Stjarnan kl. 19.15 í kvöld
STAÐAN Í DEILDINNI:
1. KR 17 14 3 1575-1370 28
2. Keflavík 17 13 4 1602-1364 26
3. Grindavík 17 12 5 1613-1376 24
4. Snæfell 17 12 5 1613-1399 24
5. Stjarnan 16 12 4 1396-1305 24
6. Njarðvík 17 12 5 1509-1328 24
7. Hamar 17 6 11 1438-1500 12
8. ÍR 17 5 12 1399-1546 10
9. Tindastóll 16 5 11 1315-1449 10
10. Fjölnir 17 5 12 1333-1502 10
11. Breiðablik 17 4 13 1332-1527 8
12. FSu 17 1 16 1269-1728 2
Hópurinn á Algarve:
Markmenn: Þóra Björg Helgadóttir (Ldb
Malmö) og Guðbjörg Gunnarsdóttir (Djurg-
ården).
Varnarmenn: Katrín Jónsdóttir (Valur), Ólína
Guðbjörg Viðarsdóttir (Örebro),
Erna Björk Sigurðardóttir (Breiðablik), Sif
Atladóttir (Saarbrücken), Mist Edvarsdóttir
(KR), Thelma Björk Einarsdóttir (Valur).
Miðjumenn: Dóra María Lárusdóttir (Valur),
Hólmfríður Magnúsdóttir (Philadelphia), Katr-
ín Ómarsdóttir (KR), Sara Björk Gunnarsdóttir
(Breiðablik), Guðný Björk Óðinsdóttir (Kristi-
anstad), Rakel Logadóttir (Valur), Dagný
Brynjarsdóttir (Valur), Elínborg Ingvarsdóttir
(Grindavík).
Framherjar: Margrét Lára Viðarsdóttir (Kristi-
anstad), Rakel Hönnudóttir (Þór), Fanndís
Friðriksdóttir (Breiðablik), og Berglind Björg
Þorvaldsdóttir (Breiðablik).
ÚRSLITIN Í GÆR
KÖRFUBOLTI Jakob Örn Sigurðar-
son hefur skrifað undir nýjan
samning við sænska liðið Sunds-
vall Dragons en Jakob hefur spil-
að frábærlega með liðinu í vetur.
„Þetta er mikil breyting
hjá mér því ég hef alltaf verið
langt fram á sumar að finna lið
og skrifa undir einhvers stað-
ar,“ segir Jakob. „Það var mik-
ill áhugi hjá þeim og mér líka.
Mér hefur liðið vel hérna. Liðinu
gengur vel og mér persónulega
gengur mjög vel. Þetta er örugg-
lega mitt besta tímabil í Evrópu,“
segir Jakob sem er sjötti stiga-
hæsti leikmaður deildarinnar
með 18,1 stig í leik.
„Þetta er ekki alveg tveggja
ára samningur. Þetta er eitt ár
og svo eftir næsta ár þá hef ég
ákveðinn tíma til að skoða mig
um. Ef ekkert annað betra til-
boð kemur þá er ég með samn-
ing annað ár til viðbótar,“ segir
Jakob. - óój
Jakob Örn Sigurðarson:
Verður áfram
hjá Sundsvall
FLOTTUR Jakob Örn Sigurðarson hefur
slegið í gegn með drekunum frá Sunds-
vall. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
> Ekkert ákveðið enn með Egilshöllina
Handknattleikssambandið er ekki búið að ákveða
það hvar landsleikirnir tveir við heims-, ólympíu- og
Evrópumeistara Frakka fara fram 16. og 17. apríl en
það kemur enn til greina að spila leikina í
Egilshöll. Einar Þorvaðarson, framkvæmda-
stjóri HSÍ, sagði í gær að það væri verið að
bíða eftir fleiri tilboðum í leigu
á sætum fyrir 7.000 áhorfend-
ur og sambandið ætlar að nota
þessa viku til þess að ákveða hvar
leikirnir verða spilaðir. Þetta verða
fyrstu landsleikir strákanna okkar síðan þeir
unnu bronsið á Evrópumótinu í Austurríki
á dögunum en undanfarin ár hafa færri
komist að en vildu á landsleiki strákanna í
Laugardalshöllinni.
FÓTBOLTI Luciano Moggi, fyrrum
framkvæmdastjóri Juventus og
mikill áhrifamaður innan ítalska
fótboltans í mörg ár, hefur ekki
mikla trú á ítölsku liðunum AC
Milan, Inter og Fiorentina í sex-
tán liða úrslitum Meistaradeild-
arinnar.
Moggi segir að gæði ítalska
boltans séu á niðurleið í saman-
burði við þann enska og spænska.
AC Milan mætir Manchester
United á morgun, Fiorentina spil-
ar við Bayern München á mið-
vikudaginn og Inter mætir Chel-
sea í næstu viku.
„Meistaradeildin hefst á nýjan
leik í þessari viku og ég get ekki
séð að ítalski fótboltinn sé lengur
samkeppnishæfur meðal bestu
fótboltaliða heims,“ sagði Luciano
Moggi við Gold Sport. „Við getum
talist heppin ef eitt okkar liða
kemst áfram,“ sagði Moggi. - óój
Luciano Moggi:
Ítölsk lið ekki
samkeppnishæf
MOGGI Hefur ekki mikla trú á ítölsku
liðunum. NORDIC PHOTOS/AFP