Fréttablaðið - 23.02.2010, Blaðsíða 12
12 23. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
50 ilmandi matseðlar.
UMHVERFISVOTTUÐ
PRENTSMIÐJA
Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 3-7. 110 Reykjavík. Sími 515 5000. www.oddi.is
20 mismunandi bækur
sem dæma þarf af kápunni.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
CCP stjórnar heilu hagkerfi
sem nær yfir mörg sólkerfi.
Við erum bankinn þeirra.
Lárus Sigurðsson, útibússtjóri Borgartúni
Það er minna mál að skipta um
banka en þú heldur.
Kynntu þér málið á mp.is eða
hafðu samband í síma 540 3200.
Borgartúni 26 · Ármúla 13a
Varfærni, einfalt þjónustuframboð og
örugg vinnubrögð skipta öllu máli fyrir
fólk og fyrirtæki.
Þannig á banki að vera.
Gjaldeyrisreikningar
Erlend viðskipti
Innheimtuþjónusta
Fyrirtækjaráðgjöf
Netbanki & þjónustuver
Kreditkort
Ávöxtun innlána
Veltureikningur
Fjármögnun
Ábyrgðir
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
EGGALDIN Í HRÚGU Indverskur bóndi
hrúgar upp eggaldinum úr nýrri
uppskeru skammt frá Bhubaneswar á
Indlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MOSFELLSBÆR Það er ekkert voða
smart að hafa tvo miðaldra karla
í tveimur efstu sætunum, segir
Hanna Bjartmars Arnardóttir,
frambjóðandi Samfylkingar til
sveitarstjórnarkosninga.
Samfylkingin blés til prófkjörs
á dögunum. Eftir það er Jónas Sig-
urðsson í fyrsta sæti og Valdimar
Leó Friðriksson í öðru.
Hanna sóttist eftir öðru sæti,
en hafnaði í þriðja sæti. Í fjórða
sæti er Anna Sigríður Guðnadótt-
ir. Anna sóttist einnig eftir öðru
sætinu.
Heimildir blaðsins herma að
rætt hafi verið um að Valdimar
verði færður neðar á listann og
kona verði sett í annað sæti. Hanna
segist ekki hafa farið fram á eitt né
neitt í þeim efnum og segist engar
upplýsingar hafa um hvort Valdi-
mar verði færður.
Í prófkjörinu var ekki stuðst við
fléttulista, þannig að annað kynið
yrði ekki í tveimur sætum í röð.
„Eftir á að hyggja hefði kannski
átt að gera það, í efstu sætin tvö,“
segir Hanna.
Anna Sigríður segist ekki alveg
vita hvernig henni lítist á að taka
fjórða sætið á listanum, sam-
kvæmt niðurstöðu prófkjörsins.
Ekki sé búið að taka ákvörðun um
listann.
Prófkjörið var ekki bindandi,
og kjörstjórn liggur nú yfir niður-
stöðum þess. Tillaga nefndarinn-
ar verður lögð fram á fimmtudag
á félagsfundi.
Anna segir að þá hljóti að koma
„einhver farsæl lausn“. - kóþ
Framboðslisti Samfylkingar í Mosfellsbæ endanlega afgreiddur á fimmtudag:
Ekki smart að hafa tvo miðaldra karla
STJÓRNMÁL Ragnheiður Ríkharðs-
dóttir, þingmaður Sjálfstæðis-
flokks, skilaði í gær til Ríkisend-
urskoðunar gögnum um kostnað
sinn vegna prófkjörs fyrir alþing-
iskosningarnar 2007.
Ragnheiði bar ekki skylda til að
skila þessum gögnum, en gerði það
svo ekki drægi úr trausti til setu
hennar í þingnefnd sem á að bregð-
ast við skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis.
Samkvæmt bráðabirgðaákvæði í
lögum um fjármál stjórnmálasam-
taka átti Ríkisendurskoðun að taka
við gögnum af þessu tagi fyrir 15.
nóvember síðastliðinn og birta þau
fyrir áramót. Ríkisendurskoðun er
því hætt að taka við þeim.
Lárus Ögmundsson, skrifstofu-
stjóri hjá Ríkisendurskoðun, segir
að skoðað verði hvort stofnun-
in verður við beiðni Ragnheiðar,
um að birta gögnin. Hins vegar
sé Ragnheiði frjálst að birta þessi
gögn upp á eigin spýtur. Stofnun-
in leggi hvort eð er ekkert mat á
þau.
Ragnheiði var í gær boðið að
birta gögnin í Fréttablaðinu, en
hún sagðist vilja bíða niðurstöðu
Ríkisendurskoðunar.
Til upprifjunar má geta þess
að þrír borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins birtu gögn um
prófkjörs kostnað sinn í blaðinu
í janúar, en þau voru í svipuðum
sporum og Ragnheiður. - kóþ
Ríkisendurskoðun og fjármál frambjóðenda:
Ragnheiður skilar
gögnum um kostnað
RAGNHEIÐUR RÍKHARÐSDÓTTIR Í ágúst 2009 var ákvæði bætt við lög um fjármál
stjórnmálasamtaka, sem skyldaði Ríkisendurskoðun til að birta gögn um fjárframlög
og kostnað vegna stjórnmálastarfs allt aftur til ársins 2002. Frambjóðendurnir sjálfir
áttu að biðja stofnunina um að birta gögnin. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VALDIMAR LEÓ
FRIÐRIKSSON
HANNA BJARTMARS
ARNARDÓTTIR
ANNA SIGRÍÐUR
GUÐNADÓTTIR