Fréttablaðið - 26.02.2010, Page 4
4 26. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR
STJÓRNMÁL Íslenska fjármálakerf-
ið hrundi vegna þess að hér var
að verki hug-
myndakerfi sem
leysti úr læðingi
athafnir og öfl
sem voru ofvax-
in íslensku sam-
félagi og koll-
keyrðu það á
endanum.
Þetta segir
Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir,
fyrrverandi for-
maður Samfylkingarinnar, í grein
í nýjasta hefti Tímarits Máls og
menningar.
Segir hún meðal annars að
framámenn í Sjálfstæðisflokknum
hafi trúað í einlægni að þeir hefðu
skapað efnahagslegt undraverk
sem stæði styrkum fótum eftir
sautján ára valdatíð þeirra. „Og
við hin höfðum ekki sjálfstraust til
að draga það í efa,“ segir hún. - bþs
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:
Trú á efnahags-
legt undraverk
INGIBJÖRG SÓL-
RÚN GÍSLADÓTTIR
EFNAHAGSMÁL „Fyrir heimilin þýðir
þetta því miður meira atvinnuleysi
en ella og meiri samdrátt í kaup-
mætti sem auðvitað þýðir versn-
andi lífskjör,“ sagði Ólafur Darri
Andrason, hagfræðingur hjá ASÍ,
þegar hann kynnti í gær hagspá
sambandsins fyrir næstu þrjú ár.
Samkvæmt nýju hagspánni stefn-
ir allt á verri veg en ASÍ reiknaði
með þegar síðast var gefin út slík
spá í október í fyrra. Ólafur sagði
ástæðu þessarar neikvæðu þróunar
vera seingang í frágangi Icesave-
deilunnar og tafir í uppbyggingu
atvinnulífsins og endurreisn efna-
hagslífsins. Miðstjórn ASÍ undir-
strikar það sama í harðorðri álykt-
un þar sem lýst er áhyggjum af
óvissu um framvindu mála. Drátt-
ur á lausn Icesave-málsins hafi
sett efnahagsáætlun Íslands og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og lán
frá vinaþjóðum í uppnám.
Ólafur sagði afleiðingarnar
meðal annars þær að nú sé gert
ráð fyrir að fjárfestingar dragist
saman um 17 prósent á þessu ári
í stað þess að aukast um 4 prósent
eins og áætlað hafi verið í fyrra-
haust. Atvinnuleysi nái hámarki í
byrjun næsta árs og mælast nálægt
11 prósentum en síga niður í 8,5
prósent fyrir árslok 2011. Krónan
verði veikari en áætlað var vegna
mikillar óvissu í efnahagslífinu.
Engu síður muni verða 2 prósenta
hagvöxtur á næsta ári og 5,6 pró-
senta á árinu 2012 eftir 5 prósenta
samdrátt á þessu ári og 7 prósenta
samdrátt í fyrra.
Miðstjórn ASÍ segir afleiðingarn-
ar af seinagangi stjórnvalda vera
þær að erfitt ef ekki ómögulegt
sé að fjármagna stórframkvæmd-
ir sem áttu að hefjast á þessu ári.
„Miðstjórn ASÍ átelur einnig stjórn-
völd fyrir að leggja stein í götu ein-
stakra verkefna,“ segir í ályktun-
inni. Gylfi Arnbjörnsson, forseti
ASÍ, sagði þarna meðal annars
vísað til nýlegrar ákvörðunar varð-
andi svokallaða suðvesturlínu og
virkjanamál í Þjórsá. Landsvirkj-
un sem ríkisfyrirtæki hafi óskað
eftir því við sveitarfélögin að fá að
skoða tiltekna virkjanakosti.
„Síðan úrskurðar einn ráð-
herrann [Svandís Svavarsdótt-
ir umhverfisráðherra] um það að
sveitarfélögin megi ekki fá fram-
lög frá þeim sem biður um verk-
efnið til að kosta deiliskipulag.
Manni finnst þetta svo galin nið-
urstaða. Þetta heitir bara að leggja
stein í götu eftir þráfaldlegar yfir-
lýsingar um að ríkisvaldið ætli að
styðja við og hjálpa. Þetta er seina-
gangur og úrræðaleysi og það veld-
ur því að það eru að hrannast upp
óveðursský,“ segir forseti ASÍ.
gar@frettabladid.is
Óveðursský hrannast
upp segir forseti ASÍ
Miðstjórn ASÍ átelur stjórnvöld fyrir seinagang í endurreisnarstarfinu og fyrir
tafir á lausn Icesave-deilunnar. Búast megi við samdrætti í fjárfestingum og
auknu atvinnuleysi. Umhverfisráðherra sagður hafa tekið „galna ákvörðun“.
ÓLAFUR DARRI ANDRASON Hagfræðingur ASÍ lýsti því í gær hvernig seinagangur og
ákvarðanafælni stjórnvalda væru að mati sambandsins að lengja kreppuna á Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
12°
8°
2°
9°
8°
6°
2°
2°
23°
10°
17°
3°
17°
-2°
8°
15°
1°
Á MORGUN
Strekkingur NV- og SA-til,
annars hægari.
SUNNUDAGUR
Sums staðar
strekkingur.
2
-1
2
0
0-2
-1-2
-3 -3
-3
-1
-3
-7
-6
-7
-6
-5
-4
-12
-3
9
13
15
9
5
4
9
9
6
4
9 20
HÆGT HLÝNANDI
Veður fer hægt
hlýnandi á landinu
næstu daga og má
búast við slyddu
og jafnvel rigningu
sunnanlands eftir
helgina. Um helg-
ina verður víða
snjókoma eða él
fram til sunnudags
en þá má gera ráð
fyrir slyddu sunnan
til en úrkomulitlu
veðri á Norðaust-
urlandi.
Ingibjörg
Karlsdóttir
Veður-
fréttamaður
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu rannsakar nú mál
fimmtu stúlkunnar sem karlmaður
er grunaður um að hafa tælt í gegn-
um Facebook. Hún var þrettán ára
þegar meint kynferðisbrot manns-
ins gegn henni átti sér stað.
Mál þriggja stúlkna, sem maður-
inn er grunaður um að hafa nauðgað
eftir að hafa komist í kynni við þær
á Facebook, eru komin til ákæru-
valdsins. Mikið magn af barnaklámi
hefur fundist í tölvubúnaði sem lög-
regla tók hjá manninum á sínum
tíma, samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins. Barnaklámsmálið
hefur einnig verið sent til ákæru-
valdsins.
Maðurinn, sem situr í gæsluvarð-
haldi til 3. mars, var í fyrstu talinn
hafa tælt þrjár stúlkur á aldrinum
þrettán til fjórtán ára til að hitta
sig eftir að hafa komist í kynni við
þær á Facebook, með ofangreindum
afleiðingum.
Kæra vegna fjórðu stúlkunnar
sem maðurinn er grunaður um að
hafa tælt barst nokkru seinna og
nú hefur fimmta kæran borist eins
og áður sagði. Lögregla rannsakar
meðal annars hvort maðurinn hafi
beitt tvær síðastnefndu stúlkurnar
kynferðislegu ofbeldi, en vitað er að
hann náði að hitta þær báðar. - jss
FACEBOOK-MAÐURINN Situr í gæslu-
varðhald til 3. mars.
Mikið magn af barnaklámi í tölvu Facebook-mannsins:
Fimm stúlkur tældar á Netinu
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 25.02.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
230,4607
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,80 129,42
197,04 198,00
173,80 174,78
23,349 23,485
21,621 21,749
17,839 17,943
1,4414 1,4498
196,90 198,08
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
VM krefst ...
Nánari upplýsingar á www.asi.is
E
N
N
E
M
M
/
SÍ
A
/ N
M
40
92
4
... þess að rekstur
fyrirtækja sé reistur
á ábyrgð og siðferði.
KÖNNUN Töluverð andstaða er við
það að rekstur spilavíta verði
leyfður á Íslandi, ef marka má
nýja könnun Markaðs- og miðla-
rannsókna. Tæplega 64 prósent
þátttakenda í könnuninni sögðust
því andvíg, þar af tæp 40 prósent
mjög andvíg.
Athygli vekur að 71 prósent
karla undir þrítugu er frekar eða
mjög hlynnt lögleiðingu spilavít-
is. Það er eini hópurinn þar sem
meirihluti er fyrir hugmyndinni.
Mest mælist andstaðan hjá eldri
konum, eða 83 prósent.
Könnunin var gerð 12. til 17.
febrúar og þátttakendur voru
902. - sh
Andstaða við spilavíti:
Bara ungir karl-
ar vilja spilavíti
ÚKRAÍNA, AP Viktor Janúkovitsj
sór embættiseið sinn í gær sem
forseti Úkraínu, þrátt fyrir að
mótframbjóðandi hans, Júlía
Tímosjenko forsætisráðherra,
hafi ekki enn viðurkennt úrslit
forsetakosninganna.
Þingsalurinn var hálftómur
þar sem flokksfélagar forsætis-
ráðherrans létu ekki sjá sig. Fátt
bendir því til þess að lát verði á
hinum þrálátu deilum sem lamað
hafa stjórnmál landsins árum
saman.
Janúkovitsj hét því að gera
Úkraínu að Evrópuríki utan allra
ríkjabandalaga. - gb
Janúkovitsj tekinn við:
Lofar að standa
utan bandalaga
ALÞINGI Álfheiður Ingadóttir heil-
brigðisráðherra efast um ágæti
hugmynda um uppbyggingu
einkarekins
sjúkrahúss á
flugvallarsvæð-
inu í Keflavík.
Þetta kom fram
í máli ráðherr-
ans á þingi í
gær. „Ég tel að
þessi viðskipta-
hugmynd sé
engu betri nú
heldur en hún
var árið 2007 þegar hún gekk
ekki upp,“ sagði Álfheiður á þingi
í gær.
Erla Ósk Ásgeirsdóttir, vara-
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
lagði fram fyrirspurn til ráð-
herra um málið og vildi fá skýr
svör um afstöðu Álfheiðar.
„Ef þetta er svona hagkvæmt,
af hverju gerir einkaframtakið
þetta ekki bara sjálft?“ spurði
Álfheiður. - gb
Einkasjúkrahús á vallarsvæði:
Ráðherra efast
um hagkvæmni
DÓMSTÓLAR Maður á þrítugsaldri
hefur verið dæmdur í Hæstarétti
í þriggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að hafa farið óboð-
inn inn í svefnherbergi konu, þar
sem hún lá sofandi, afklætt sig úr
öllu nema nærbuxum, lagst upp í
rúm hjá henni, kysst hana á háls-
inn og káfað á henni utanklæða.
Hann var dæmdur til að greiða
henni 250 þúsund krónur í bætur.
Héraðsdómur hafði dæmt mann-
inn í sex mánaða fangelsi, þar af
þrjá á skilorði, og til að greiða kon-
unni 500 þúsund í skaðabætur. - jss
Hæstiréttur mildar refsingu:
Þrír mánuðir
og skaðabætur
ÁLFHEIÐUR
INGADÓTTIR