Fréttablaðið - 26.02.2010, Qupperneq 22
2 föstudagur 26. febrúar
núna
✽ nýtt og spennandi
þetta
HELST
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Valgarður Gíslason Ritstjórn Anna M. Björnsson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Fisk
isló
ð
Gra
nda
gar
ður
MýrargataÁna
nau
st
SALON REYKJAVÍK
Vertu velkomin(n)!
GET INSPIRED. SEE YOUR STYLIST.
REDKEN.IS
REDKEN 50 ÁRA
FASHION, SCIENCE, INSPIRATION
Keyptu 2 + 1 frítt
Redken ShampooRedken vörur
Takmarkað tilboð
- meðan birgðir endast.
DÖMULEG Victoria Beckham var
settleg í svörtum „fiftís“-legum kjól
úr eigin hönnunarlínu á tískuvikunni
í London.
Leikkonur selja fötin sín
Leikkonurnar Elma Lísa
Gunnarsdóttir, Tinna Hrafnsdóttir
og María Heba Þorkelsdóttir
standa fyrir markaði í húsnæði
Félags íslenskra leikara á
Lindargötu 6 um helgina. Allar eru
þær miklar smekkkonur og má
því búast við að þar verði ýmis-
legt góss að finna. Kjólar, pels-
ar, kápur, buxur, bolir og gling-
ur eru meðal þess sem leikkon-
urnar ætla að losa sig við. Þær
lofa huggulegri stemningu, heitt
verði á könnunni og heimabakað
bakkelsi í boði. Tekið skal fram að
engir posar eru á staðnum og því
upplagt að koma við í hraðbanka
á leiðinni og ná sér í reiðufé. Opið
verður á á laugardaginn milli 12
og 19 og sunnudag milli 13
og 16.
B iblía kúlsins, hið hnausþykka tímarit Another Magazine, fjallar um íslenska
fatahönnun í marshefti sínu. Blaðamaðurinn
Emma Reeves segir að fatahönnun hafi tekist á
flug á Íslandi með tilkomu fatahönnunardeild-
ar í Listaháskóla Íslands og sé enn á uppleið
þrátt fyrir kreppuna. Rætt er við Lindu Björgu
Árnadóttur, hönnuð og fagstjóra hjá LHÍ, hönn-
uðina Steinunni Sigurðar, Hugrúnu og Magna
í KronKron, Andreu Maack og Munda, Önnu
Clausen og Bjarna Einarsson í Belleville og
einnig er fjallað um merkið Aftur og hönn-
uðinn Hildu Gunnarsdóttur og merki hennar,
Milla Snorrason.
Myndir með greininni eru hinar glæsi-
legustu en þær voru teknar af fyrir-
sætunni og ljósmyndaranum Elísa-
betu Davíðsdóttur. Í viðtali segir Linda
Björg Árnadóttir að fólk á Íslandi sé loks
að sjá tísku sem alvöru iðn-
grein sem er þess virði að
fjárfesta í. „Tíska á Íslandi
er ekki alveg jafn þróuð
og tónlistin okkar en von-
andi fer hún að ná henni,“
bætir hún við. Mundi segir
í viðtalinu að kreppan hafi
gert honum auðveldara
fyrir að opna sína eigin
verslun þar sem verðið
hafi lækkað. Sagt er frá
hvernig Andrea Maack
blandar saman skúlptúr
og tísku og geri kjóla úr
pappír. „Þetta er góður tími
til að vera í sköpunargeir-
anum,“ segir Andrea. „Fólk
skilur núna að við erum að
skapa verðmæta útflutnings-
vöru.“
Blaðamaður bætir við í lokin að ef sé litið til
þess mikla magns af hæfileikaríku ungu fólki
sem er að útskrifast úr Listaháskóla Íslands
sé augljóst að framtíðarmöguleikar íslenskr-
ar fatahönnunar séu verulegir. Tímaritið má
nálgast í Eymundsson. - amb
Another Magazine fjallar um Ísland:
Íslensk fatahönnun
blómstrar í kreppunni
Kreppan auðveldaði málin Mundi er einn af fjölmörgum hönnuðum sem tímaritið ræddi
við í ítarlegri umfjöllun Another Magazine um íslenska tískuhönnun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Nýr staður opnaður í
Tryggvagötu
Ný hipstera-búlla opnar dyr sínar
í Tryggvagötu á laugardagskvöld-
ið í stað skemmtistaðarins Club
101 sem er beint fyrir aftan lista-
spírubarinn Bakkus. Staðurinn
hefur tekið miklum stakkaskiptum
á undanförnum vikum og orðið
á götunni er að þar komi til með
að verða svipuð stemning og á
Jacobsen síðastliðið vor. Nafna-
keppni stóð yfir á Facebook um
þennan nýja stað og nafnið verður
tilkynnt á laugardagskvöldið þegar
gestir fá að berja nýjar innréttingar
augum.
Undratæki sem Íslendingar
eru byrjaðir að kalla „hrukku-
straujárnið“ fer eins og eldur í sinu
um Reykjavík. Tækið er framleitt
af fyrirtækinu Nu-Skin en ekki er
um raunverulegt „straujárn“ að
ræða heldur sérstakt „Gal-
vanic“-raftæki sem er
jákvætt hlaðið en
meðferð með slíkum
tækjum hefur tíðkast
á snyrtistofum um
heim allan í mörg ár.
Hin byltingarkennda
tækni sem Nu-
S k i n s e g i s t
hafa fundið
upp snýst um
notkun sér-
stakra yng-
ingargela í
andlit sem
eru notuð
ásamt
tækinu og
virðast bera undraverðan árang-
ur á hrukkur sem sést eftir aðeins
eina meðferð. „Gelin innihalda
efni sem stuðla að virkni húð-
frumna og flýta fyrir endurnýjun
þeirra,“ útskýrir Íris Hall, söluaðili
NuSkin. „Tækið er líka hægt að
nota til meðferðar á appels-
ínuhúð og til að örva hár-
vöxt. Tækin eru seld ásamt
gelunum til heimanotkunar
og mælt er með að fólk noti
það þrisvar í viku.“ Þess má
geta að Hollywood-stjörn-
ur eru víst óðar í
tækið enda um
náttúrulegri og
heilsuvænni
lausn að ræða
en eitrið Botox.
- amb
Hrukkustraujárn slær í gegn
Notað af Holly-
wood-stjörnum
Undraverður ár-
angur á hrukkur
Íris Hall með Gal-
vanic-tækið.
BJÖRG ALFREÐSDÓTTIR FÖRÐUNARFRÆÐINGUR Ég
ætla að öllum líkindum að kíkja á systur mína og fjölskyldu í bústað á Þing-
völlum um helgina og þar verður spilað partý og co, trivial og fleiri skemmti-
leg spil. Svo hef ég í hyggju að dusta rykið af myndavélinni, fara í skemmti-
legan göngutúr og ná fallegum vetrarmyndum.