Fréttablaðið - 26.02.2010, Side 38
14 •
Leikaranum Ewan McGregor finnst allt í
lagi að fækka fötum á hvíta tjaldinu. Þessi
skoska stjarna fer úr öllu í nýjustu mynd
sinni The Ghost, sem Roman Polanski
leikstýrir. „Eiginkonu minni hefur alltaf
fundist þetta í lagi, nema þegar hún gekk
með fyrstu dóttur okkar, Clara. Þá lék
ég í kynlífsatriði í Trainspotting,“ sagði
McGregor. „Hormónarnir hjá henni voru úti
um allt og við rifumst harkalega um þetta.
En þetta var í eina skiptið sem þetta hefur
verið eitthvert mál.“ Hann bætir við að hann
hafi alls enga sýningarþörf en honum finnst
þetta samt ekkert mál. „Mér finnst bara
mjög þægilegt að vera nakinn í
bíómyndum vegna þess
að þær endurspegla lífið
sjálft. Mér hefur aldrei
fundist þetta asnalegt.“
EWAN MCGREGOR Skot-
anum finnst allt í lagi
að fækka fötum á hvíta
tjaldinu.
Jack White gefur
út plötu kærustunnar
Það er misjafnt
hvað strákarn-
ir gera fyrir
stelpurnar sínar
á konudaginn,
en það er erfitt
að toppa Jack
White, for-
sprakka White
Stripes. White stjórnaði upp-
tökum á fyrstu plötu Karenar
Elson, kærustunnar sinnar.
Platan kemur út í sumar og
eins og White sé ekki búinn að
gera nóg þá ætlar hann líka að
gefa plötuna út í gegnum út-
gáfufyrirtækið sitt, Third Man
Records. Fallega gert af manni
sem barði einu sinni söngvara
The Von Bondies í klessu og
skildi hníf eftir á hurð búnings-
herbergis hans.
Súr gúrka vinsælli
en Nickelback
Grúppan „Can this pickle get
more fans than Nickelback?“
eða „Getur þessi súra gúrka
eignast fleiri aðdáendur en
Nickelback“ hefur á tveimur
vikum eignast fleiri aðdáend-
ur en Nickelback. Gúrkan er
komin með hátt í 1,5 milljón að-
dáendur, en Nickelback er með
rúmlega 1,4 milljónir. Nú þurfa
aðdáendur þessarar hrikalegu
hljómsveitar að hugsa
sinn gang því þeir
myndu vafalaust
njóta þess
betur að
hlusta á
gúrkuna.
Cobain-myndin
drattast af stað
Framleiðslufyrirtækið Universal
Pictures hefur loksins ákveð-
ið að halda áfram með mynd
byggða á bókinni
Heavier Than
Heaven, eftir
Charles R.
Cross. Leik-
stjórinn Oren
Moverman er
orðaður
við verk-
efnið.
GOTT AÐ VERA NAKINN
FYLL‘ANN TAKK Þetta tæki, hvað sem það heitir, þarf eldsneyti eins og jeppinn.
OPNA MUNNINN 2 Er þetta einhvers konar fiskeldi?
HVÍTIR HRAFNAR? Þetta er sjaldgjæf sjón
á Íslandi.
OPNA MUNNINN Spurning hvenær hann tekst á loft.
EFTIR ERFIÐAN VINNUDAG 2 Gott að fá
sér blund. Spurning að nota sófann næst.
EFTIR ERFIÐAN VINNUDAG Dreymir hana
illa?
ÖSKUDAGURINN? Við búumst ekki við
hann hafi prjónað húfuna sjálfur.
HISSA AÐ SJÁ MIG? Ugla sat á kvisti.
Taktu mynd með símanum og sendu okkur. Við birtum bestu myndirnar og höf-
undur langbestu myndarinnar fær tvo kassa af Doritos. Myndirnar geta verið af
hverju sem er, einhverjum atburði, Sveppa, Michael Jackson, Jóhönnu Guðrúnu
eða bara góðu flippi.
TAKTU SÍMAMYND!
Bensín-
lítrinn kostar
um 204 til 205
krónur í dag þannig
að það er spurning
hvað kostar að fylla
tankinn á svona græju
í dag. Það er allavega
ódýrara en að fylla
á jeppann.
ÞÚ GÆTIR
UNNIÐ TVO
KASSA AF
DORITOS
SENDU OKKUR ÞÍNA
SÍMAMYND Í SÍMA 696
7677 EÐA Á POPP@
FRETTABLADID.IS OG
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ TVO
KASSA AF DORITOS!
BESTA
MYNDIN!