Fréttablaðið - 27.02.2010, Blaðsíða 44
27. febrúar 2010 LAUGARDAGUR2
Helstu verkefni
Vörustjóri er ábyrgur fyrir innri markaðssetningu á þeim vörum sem undir
hann heyra og verðlagningu þeirra. Starfið felur einnig í sér ábyrgð
á birgðahaldi, pöntunum, vörustýringu og samskiptum við erlenda birgja,
ábyrgð á vöruframboði og vöruþróun auk ábyrgðar á stærri útboðsverkum.
Hæfniskröfur
• Bakgrunnur úr öryggis- eða tæknigeiranum er kostur
• Starfsreynsla sem vöru- eða sölustjóri
• Auðvelt með að tileinka sér nýjungar
• Hæfni til að koma auga á tækifæri á markaðnum
• Hæfni til að greina vöru- og þjónustuframboð og verð
• Kraftur og vilji til að ná árangri
• Góð færni í mannlegum samskiptum
• Gott vald á íslenskri og enskri tungu í rituðu og töluðu máli
Vörustjóri
Umsóknarfrestur er til 5. mars næstkomandi. Nánari upplýsingar um starfið
veitir Daði Þór Veigarsson í síma 570-2400.
Umsókn skal senda á netfangið atvinna@oryggi.is merkt „Vörustjóri”
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Eldri umsóknir óskast
endurnýjaðar. Vakin er athygli á að allir starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar
þurfa að skila inn sakavottorði. Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja
um starfið.
www.oryggi.is
Öryggismiðstöðin er framsækið og kraftmikið
þjónustufyrirtæki sem býður upp á heildarlausnir
í öryggismálum fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Öryggismiðstöðin leitast við að ráða til sín
framúrskarandi starfsfólk sem sýnir ábyrgð,
mikla þjónustulund og frumkvæði í starfi og
getur þannig stuðlað að framþróun fyrirtækisins.
Lögð er áhersla á góða vinnuaðstöðu og
tækifæri til starfsþróunar innan fyrirtækisins.
Mannauðsstefna Öryggismiðstöðvarinnar byggir
á gildunum: öryggi, kraftur og samheldni.
Veislan veisluþjónusta óskar eftir:
Starfsmann í smurbrauðsdeild 100% starf,
íslensku kunnátta nauðsynleg
Nánari upplýsingar um störfi n eru veittar í Veislunni á
Austurströnd 12, Seltjarnarnesi, eða í síma 561-2031,
einnig er hægt að senda tölvupóst á arny@veislan.is
Ert þú lagerstjóri?
Við leitum að öflugum verkstjóra á lagerinn okkar.
Lagerstjóri hefur yfirumsjón með skráningu á búnaði
inn og út af leigunni auk þess sem hann annast
verkstjórn á lager.
Við leitum að öflugum aðila sem er tilbúinn að takast
á við krefjandi verkefni.
Haldgóð tölvukunnátta er æskileg og reynsla af
lagervinnu og stjórnun er kostur.
Ef þú telur þig hafa það sem til þarf og hefur áhuga á
að starfa í framsæknum hópi og góðum starfsanda -
hafðu þá samband.
Exton er leiðandi fyrirtæki í sýningartækni á Íslandi.
Hjá okkur starfa 25 manns við hönnun, ráðgjöf og
þróun hagkvæmra lausna m.a. í fundarherbergi,
ráðstefnusali, verslanir, fjölmiðla og leikhús.
Þá starfrækir félagið stærstu tækjaleigu landsins með
tæknibúnað fyrir hvers konar viðburði s.s. tónleika,
ráðstefnur, vörusýningar og veislur.
www.exton.is
Nánari upplýsingar veitir Ingólfur Magnússon,
í síma 575 4600 og í tölvupósti golli@exton.is
Umsjónarmaður
meistaranáms
Háskólans á Bifröst
Háskólinn á Bifröst óskar eftir að ráða
umsjónarmann meistaranáms sem
jafnframt er aðstoðarmaður
kennslustjóra.
Leitað er að einstaklingi með áhuga á akademískri
stjórnun og ríka samskiptahæfni. Starfið krefst
sjálfstæðrar hugsunar, frumkvæðis og skipulags-
hæfileika.
Háskólinn á Bifröst býður upp á meistaranám í fjarnámi
og staðnámi í lögfræði, viðskiptafræði, Evrópufræði,
menningarstjórnun og stjórnun í heilbrigðisþjónustu.
Umsjónarmaður meistaranáms starfar með kennslu-
stjóra, öðru starfsfólki stjórnsýslu og akademískum
starfsmönnum skólans að skipulagi námslína og
einstakra námskeiða, annast samskipti við nemendur,
skipuleggur kennslu, próf og meistaravarnir og tekur þátt
í áframhaldandi þróun og uppbyggingu námsins.
Hæfniskröfur:
• Meistarapróf, helst á sviði hug-, félags- eða
menntavísinda
• Mjög góð enskukunnátta
• Starfsreynsla á sviði akademískrar stjórnunar
eða sambærileg reynsla
• Góð tölvukunnátta
Umsóknir ásamt upplýsingum og starfsferilsskrá
sendist til Háskólans á Bifröst, 311 Borgarnes, merkt
„Umsjón meistaranáms“ fyrir 15. mars nk.