Fréttablaðið - 27.02.2010, Blaðsíða 88
56 27. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
IE-deild karla:
Keflavík-Tindastóll 106-73
Stig Keflavíkur: Hörður Axel Vilhjálmsson 29,
Draelon Burns 21, Þröstur Jóhannsson 15, Uruela
Igbabova 13, Sigurður Þorsteinsson 9, Sverrir
Sverrisson 5, Davíð Jónsson 5, Gunnar Stefáns-
son 3, Guðmundur Gunnarsson 2, Alfreð Elíasson
2, Jón Nordal Hafsteinsson 2.
Stig Tindastóls: Cedric Isom 30, Donatas
Visockis 20, Axel Kárason 7, Helgi Viggósson 6,
Friðrik Hreinsson 5, Svavar Birgisson 3, Sigmar
Björnsson 2.
Hamar-KR 88-116
Stig Hamars: Marvin Valdimarsson 38, Andre
Dabney 21, Svavar Pálsson 9, Viðar Hafsteinsson
8, Páll Helgason 3, Oddur Ólafsson 3, Hjalti
Þorsteinsson 2, Bjarni Lárusson 2, Ragnar
Nathanaelsson 2.
Stig KR: Brynjar Þór Björnsson 42, Morgan Lewis
21, Pavel Ermolinskij 17 (14 frák., 16 stoðs.),
Tommy Johnson 8, Darri Hilmarsson 8, Jón Orri
Kristjánsson 8, Fannar Ólafsson 4, Skarphéðinn
Ingason 4, Finnur Magnússon 4.
Breiðablik-Njarðvík 77-120
Stig Breiðabliks: Arnar Pétursson 18, Jeremy Cald-
well 11, Rúnar Pálmarsson 9, Jonathan Schmidt
9, Þorsteinn Gunnlaugsson 8, Daníel Guðmunds-
son 6, Ívar Hákonarson 6, Ágúst Angantýsson 4,
Trausti Jóhannsson 3, Hjalti Friðriksson 3.
Stig Njarðvíkur: Magnús Þór Gunnarsson 25,
Jóhann Árni Ólafsson 18, Nick Bradford 17, Páll
Kristinsson 17, Kristján Sigurðsson 10, Hjörtur
Einarsson 8, Friðrik Stefánsson 6, Grétar Garðars-
son 6, Guðmundur Jónsson 4, Egill Jónasson 4,
Elías Kristjánsson 3, Rúnar Erlingsson 2.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Það verður mikið um að
vera í enska boltanum um helg-
ina eins og alltaf en úrslitaleik-
ur deildarbikarsins fer fram á
Wembley-leikvanginum á sunnu-
dag. Núverandi deildarbikarmeist-
arar, Manchester United, eiga þar
titil að verja en þeir mæta Aston
Villa sem hefur ekki landað titli í
fjórtán ár.
United verður án varnarmanns-
ins Rio Ferdinand sem er meidd-
ur í baki auk þess sem Ryan Giggs
og Anderson eru einnig frá vegna
meiðsla og Nani tekur út leik-
bann. Aston Villa vonast hins
vegar til þess að endurheimta
Stiliyan Petrov, James Collins og
Emile Heskey úr meiðslum fyrir
leikinn.
Aston Villa hefur haft betur í
viðureignum liðanna til þessa á
tímabilinu en Aston Villa vann
United á Old Trafford-leikvang-
inum og liðin skildu jöfn á Villa
Park.
Sagan er þó aftur á móti á bandi
United þar sem Englandsmeist-
ararnir hafa aðeins tapað einum
af síðustu tuttugu og sex leikjum
sínum gegn Aston Villa og knatt-
spyrnustjórinn Sir Alex Ferguson
hjá United hefur því ærna ástæðu
til bjartsýni.
„Wembley er sérstakur leikvang-
ur og það er mikil upplifun að spila
þar. Eina leiðin til að njóta þess að
vera þar er hins vegar með því að
vinna leikinn sem þú ert að spila.
Það er ekki góð tilfinning að fara
þangað og tapa,“ sagði Ferguson á
blaðamannafundi í gær.
Kaldar kveðjur á Brúnni
Leikur Chelsea og Manchester City
í ensku úrvalsdeildinni á Stamford
Bridge-leikvanginum í dag er fyrir
margra hluta sakir merkilegur.
Chelsea situr á toppi deildarinn-
ar fyrir leiki helgarinnar en City
er aftur á móti í harðri baráttu við
Liverpool, Aston Villa og Totten-
ham um fjórða sæti deildarinnar,
sem gefur þátttökurétt í Meistara-
deildinni.
Flestra augu munu hins vegar
beinast að John Terry og Wayne
Bridge, fyrrum liðsfélögum hjá
Chelsea, en kapparnir hafa verið
í eldlínunni síðustu vikur eftir að
upp komst um framhjáhald Terry
með barnsmóður og fyrrum kær-
ustu Bridge. Terry var í kjölfar-
ið sviptur fyrirliðastöðunni hjá
enska landsliðinu og Bridge gefur
ekki lengur kost á sér í landslið-
ið þar sem hann vill ekki þurfa
að umgangast Terry. Það má því
búast við köldum kveðjum þegar
þeir mætast á vellinum og spurn-
ing hvort þeir heilsist með handa-
bandi fyrir leikinn eins og tíðk-
ast gjarnan fyrir leiki í ensku
úrvalsdeildinni. omar@frettabladid.is
United á titil að verja
Úrslitaleikur deildarbikarsins fer fram á morgun þar sem Manchester United
mætir Aston Villa. Í dag mætast hins vegar John Terry og Wayne Bridge í fyrsta
skiptið eftir framhjáhaldshneykslið sem hefur gert allt brjálað á Englandi.
ÓVINIR Það er heldur búið að slettast
upp á vinskap Waynes Bridge og Johns
Terry á síðustu vikum. NORDIC PHOTOS/AFP
FÖGNUÐUR Manchester United hampaði deildarbikarmeistaratitlinum á síðasta
tímabili eftir sigur gegn Tottenham. NORDIC PHOTOS/AFP
LEIKIR HELGARINNAR
Laugardagur:
Chelsea-Manchester City kl. 12.45
Birmingham-Wigan 15.00
Bolton-Wolves 15.00
Burnley-Portsmouth 15.00
Stoke-Arsenal 15.00
Sunnudagur:
Tottenham-Everton 13.00
Liverpool-Blackburn 15.00
Sunderland-Fulham 15.00
Aston Villa-Manchester United 15.00
Fjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun!
Hefst 15. mars nk. og gildir jafnt fyrir allar
íþróttagreinar. 1. stig alm. hluta og er námskeiðsgjald
kr. 24.000.- Skráning fyrir 12. mars á namskeid@isi.is
eða í síma 514-4000. Nánari uppl. í síma 460-1467 og á
vidar@isi.is
Sjá einnig á www.isi.is
Pósthúsið | Suðurhraun 1 | S: 585 8300 | www.posthusid.is
og af því tilefni minnum við
íbúa höfuðborgarsvæðis
og Akureyrar að moka
gangveginn að húsum
sínum til að tryggja
aðgengi blaðbera
Fréttablaðsins
að lúgu.
Með fyrirfram þökk,
Úti er farið að snjóa .......
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
KÖRFUBOLTI Þeir Pavel Ermolinskij
og Brynjar Þór Björnsson fóru
algjörlega hamförum þegar
Íslandsmeistarar KR völtuðu yfir
Hamar í Hveragerði.
Pavel var með tvöfalda þrennu
en hann spilar betur með hverjum
leik hjá KR og er farinn að skila
ótrúlegum tölum. Brynjar var
ekki síður heitur en hann skoraði
42 stig og þar af níu þriggja stiga
körfur.
KR er á toppi deildarinnar með
30 stig en Keflavík kemur næst
með 28 stig. Keflavík vann auð-
veldan sigur á Tindastóli í gær
þar sem Hörður Axel Vilhjálms-
son skoraði 28 stig.
Njarðvík er komið með 26 stig
eins og Stjarnan og Grindavík
eftir afar léttan sigur á Blikum í
Kópavogi. - hbg
Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla:
Pavel og Brynjar fóru
á kostum með KR
KÁTUR Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, gat
leyft sér að brosa í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM