Fréttablaðið - 01.03.2010, Síða 8
8 1. mars 2010 MÁNUDAGUR
HEIMILDIR: FRÉTTASTOFUR
JARÐSKJÁLFTINN Í CHILE
Skjálftinn mældist 8,8 stig. Hann kom verst
niður á borginni Concepcion en eyðilagði
einnig byggingar í höfuðborginni Santíagó
sem er í 325 km fjarlægð.
CHILE
K Y R R A H A F I Ð
Juan Fernandes-eyjar
urðu fyrir flóðbylgju
Perral, kl. 3.34
Upptök skjálftans
á 35 km dýpi.
Flóðbylgjuráðstafanir:
Chile, Perú,
Ekvador,
Kólumbía,
Panama,
Kostaríka,
Havaí,
Suðurskautslandið
ARGENTÍNA
200 mílur
320 km
Santíagó
Talca
Chillan
Concepcion
Temuco
12. JANÚAR 2010
Jarðskjálfti sem mældist 7 stig varð
230 þúsund manns að bana á Haítí.
6. APRÍL 2009
Jarðskjálfti sem mældist 6,3 stig
varð 300 manns að bana í L‘Aquila
á Ítalíu.
29. OKTÓBER 2008
Jarðskjálfti sem mældist 6,4
stig varð 300 manns að bana í
Balukistan í Pakistan.
12. MAÍ 2008
Jarðskjálfti sem mældist 7,8 stig
varð 87 þúsund manns að bana í
Sechuan-héraði í Kína.
15. ÁGÚST 2007
Jarðskjálfti sem mældist 7,9 stig
varð 519 manns að bana í Perú.
17. JÚLÍ 2006
Jarðskjálfti sem mældist 7,7 stig
varð 650 manns að bana á eyjunni
Jövu í Indónesíu.
27. MAÍ 2006
Jarðskjálfti sem mældist 6,2 stig
varð 5.700 manns að bana á Jövu í
Indónesíu.
1. APRÍL 2006
Jarðskjálfti sem mældist 6 stig varð
70 manns að bana í Íran.
8. OKTÓBER 2005
Jarðskjálfti sem mældist 7,6 stig
varð 73 þúsund manns að bana í
Pakistan.
28. MARS 2005
Jarðskjálfti sem mældist 8,7 út af
ströndum Indónesíu varð 1.300
manns að bana á eyjunni Nias.
22. FEBRÚAR 2005
Jarðskjálfti sem mældist 6,4 stig
varð hundruðum manna að bana
í Íran.
26. DESEMBER 2004
Jarðskjálfti við Indónesíu sem
mældist 9,2 stig hratt af stað flóð-
bylgju sem varð nærri 230 þúsund
manns að bana í löndum við
Indlandshaf.
VERSTU JARÐSKJÁLFTAR SÍÐUSTU ÁRA
CHILE, AP Jarðskjálftinn í Chile á
laugardag mældist 8,8 stig og olli
gríðarlegu tjóni í landinu. Þetta er
með allra sterkustu jarðskjálftum
sem riðið hafa yfir í Chile.
Stjórnvöld sögðu í gær meira
en 700 manns hafa fundist látna,
en talið var fullvíst að sú tala yrði
hærri þegar nánari fréttir bærust
af ástandinu.
Skjálftinn reif í sundur bygg-
ingar, brýr og vegi. Íbúar skammt
frá upptökum skjálftans hristust
hreinlega út úr rúmum sínum
þegar skjálftinn reið yfir um hálf-
fjögurleytið að staðartíma aðfara-
nótt laugardags.
Töluvert var um þjófnað úr
verslunum í gær, þar sem fólk not-
færði sér ringulreiðina til að taka
vörur ófrjálsri hendi.
Um það bil hálf milljón heim-
ila eyðilagðist eða skemmdist illa,
en talið er að skjálftinn hafi með
beinum hætti snert líf 1,5 milljóna
manna.
Flestir létu lífið í borginni Conc-
epcion, sem er nálægt upptökum
skjálftans. Þar búa um 200 þús-
und manns, en vitað var um hundr-
að dauðsföll í borginni af völdum
skjálftans.
Skjálftinn hratt af stað flóð-
bylgju á Kyrrahafi. Hún hafði þó
lítil áhrif í öðrum löndum, en olli
töluverðu tjóni og kostaði nokkra
manns lífið á ströndum Chile og
eyjum úti fyrir landinu.
Michelle Bachelet forseti, sem
lætur af embætti 11. mars, segir
hamfarirnar hafa haft skelfilegar
afleiðingar. Hún sagði landsmenn
þiggja með þökkum boð um aðstoð
sem borist höfðu víða að.
Brýn þörf væri fyrir færanleg
sjúkrahús og bráðabirgðabrýr,
auk þess sem nauðsynlega vanti
hreinsibúnað fyrir vatn og svo
þarf sérfræðinga sem geta metið
umfang tjónsins.
Hjálparstarfsfólk og björgunar-
fólk hefur unnið baki brotnu síðan
jarðskjálftinn varð, og þörf er á
fleira fólki til þeirra starfa.
Í borginni Concepcion voru göt-
urnar þaktar braki úr húsum og
öðrum mannvirkjum. Hópur fanga
slapp úr fangelsi sem skemmdist
verulega.
Lögreglan greip meðal annars til
þess ráðs að beita háþrýstivatns-
slöngum til að dreifa mannfjölda
sem hafði brotist inn í stórmarkað
og hirti þaðan vörur af öllu tagi.
Handan fljótsins Bio Bio í borg-
inni San Pedro tókst hópi fólks
nánast að tæma verslunarmiðstöð
af vörum. Kveikt var í verslunum
og hraðbankar voru brotnir upp,
svo fátt eitt sé nefnt. Þegar líða
tók á daginn í gær sendu stjórn-
völd herinn á vettvang til að stöðva
þessa þjófnaðaröldu.
Stærsta byggingin sem skemmd-
ist í Concepcion var nýbyggð
fimmtán hæða íbúðablokk sem
valt um koll með þeim afleiðing-
um að um það bil 60 manns lok-
uðust inni í íbúðum sínum. Sólar-
hring eftir að þetta gerðist hafði
einungis tekist að bjarga sextán
manns á lífi úr blokkinni, en sex
lík höfðu fundist.
„Það er mjög erfitt að athafna
sig í myrkrinu þegar allir þessir
eftirskjálftar ríða yfir, og inni í
húsinu er þetta býsna flókið. Íbúð-
irnar eru gjöreyðilagðar. Menn
þurfa að sýna ýtrustu aðgæslu,“
sagði Paolo Klein, sem var í farar-
broddi fyrir hóp björgunarmanna
frá Puerto Montt. gudsteinn@
Skjálftinn reif í sundur
byggingar, brýr og vegi
Jarðskjálftinn í Chile varð 700 manns að fjörtjóni, eyðilagði 500 þúsund heimili og hafði áhrif á tilveru 1,5
milljóna manna. Verst var ástandið í borginni Concepcion. Skjálftinn mældist 8,8 stig og hratt af stað flóð-
bylgju, sem olli þó litlu tjóni í öðrum löndum. Björgunarfólk vann af kappi við að bjarga fólki úr rústum.
BRÚ SEM HRUNDI Í höfuðborginni Santíagó gjöreyðilagðist þessi brú með hörmulegum afleiðingum. NORDICPHOTOS/AFP
ÞJÓFNAÐUR Víða freistaðist fólk til þess
að notfæra sér ringulreiðina og taka
vörur úr verslunum ófrjálsri hendi.
NORDICPHOTOS/AFP
JARÐSKJÁLFTARNIR Í CHILE
„Ég hef aldrei fyrr séð hús dansa,“ segir Harpa
Elín Haraldsdóttir, sem var sofandi á heimili sínu,
á níundu hæð fjölbýlishúss í hverfinu Las Condes
í Santíagó, þegar skjálftinn reið yfir. „Veggirnir
bylgjuðust um og allt fór af stað inni hjá mér –
sjónvarpið lenti úti í horni og kryddið hentist yfir
eldhúsgólfið. En það brotnaði bara eitt glas, sem er
til marks um góðan undirbúning hér í Chile. Þeir
hafa lært af reynslunni í byggingu nýrra húsa.
Eyðileggingin í mínu hverfi er í lágmarki.“
Sömu sögu er ekki að segja af öðrum og eldri
hverfum í Santíagó, sem mörg hver eru illa farin.
Mörg hús hrundu í miðbænum, þar er nú fjöldi
fólks heimilislaus og hafa margir hverjir hvorki
aðgang að vatni né rafmagni.
Harpa segir náttúruna halda áfram að minna
á kraft sinn eftir stóra skjálftann. Um 75 eftir-
skjálftar hafi riðið yfir sterkari en 4 á Richter.
Hún segir engan sjást á götunum í sínu hverfi og
varla sé bíll á ferð. Nær allar verslanir séu lok-
aðar og samgöngur liggi niðri. Í öðrum hverfum,
þar sem eyðilegging varð meiri, ríki meiri upp-
lausn. „Fólk er almennt mjög slegið, sorgmætt og
óöruggt með framhaldið. Það er enn að reyna að
hafa uppi á ættingjum sínum og vinum og reyna
að gera sér grein fyrir hvað er í gangi. Það er þó
sterk tilfinning fyrir því að nú þurfi þjóðin að
standa saman og vinna að uppbyggingunni.“ - hhs
Harpa Elín Haraldsdóttir vaknaði við skjálftann á heimili sínu í Santíagó í Chile:
Ég hef aldrei fyrr séð hús dansa
MEÐ SANTÍAGÓ Í BAKSÝN Mörg hverfi í Santíagó eru illa leik-
in eftir skjálftann. Skemmdirnar eru þó með minnsta móti í
hverfinu Las Condes þar sem Harpa býr. MYND/ÚR EINKASAFNI
„Samkvæmt okkar upplýsingum
er skipasmíðastöðin ónýt og þar
skilst okkur að ekkert verði gert
næsta hálfa til eitt árið,“ segir
Georg Lárusson, forstjóri Land-
helgisgæslunnar.
Varðskipið Þór hefur verið í
smíðum í ASMAR-skipasmíða-
stöðinni í Talcahuano í Chile.
Einhverjar
skemmdir
munu hafa
orðið á skipinu,
en það átti að
afhenda Land-
helgisgæslunni
eftir fjórar
vikur.
Tveir
íslenskir menn,
Ragnar Ing-
ólfsson og Unnþór Torfason,
hafa verið við eftirlit með loka-
frágangi skipsins.
Öðrum þeirra hafði tekist
að koma þeim skilaboðum til
gæslunnar að aðstæður væri
helvíti líkastar og þeir yrðu að
komast í burtu.
„Við teljum þá ekki vera í
lífshættu, en það er auðvitað
hörmulegt ástand á þeim,“ segir
Georg og bætir við að Landhelg-
isgæslan sé búin að kaupa fyrir
þá miða heim í dag, frá borginni
Concepcion í gegnum Santíagó.
Þó væri óljóst hvort þeir kæmust
úr landi, enda flugvellir beggja
borga lokaðir. - hhs
Íslendingar í Chile:
Líkja aðstæð-
um við helvíti
GEORG LÁRUSSON