Fréttablaðið - 01.03.2010, Qupperneq 12
12 1. mars 2010 MÁNUDAGUR
Unnið er að heildarendur-
skoðun sveitarstjórnarlaga
og liggur þar allt undir,
hvort sem varðar tekjur
eða stærð sveitarfélaganna.
Fjárhagsreglum verður
breytt og væntanlegt er
frumvarp um bráðaaðgerð-
ir í þeim efnum. Samstarf
ríkis og sveitarfélaga verð-
ur meira í framtíðinni og
eftirlitshlutverk skerpt.
Í haust er von á drögum að nýjum
sveitarstjórnarlögum. Í þeim
verða lögin endurskoðuð frá a
til ö og því von á breytingum á
málaflokknum. Umræða um fjár-
mál sveitarfélaga undanfarið ýtti
við þeirri vinnu, en allir þættir
laganna liggja undir.
Starfandi er nefnd um tekju-
stofna og önnur um jöfnunarsjóð.
Þá er einnig unnið að sameiningar-
málum. Að auki eru fjárhagsregl-
ur í endurskoðun, en þegar hefur
því verið komið þannig fyrir að
rekstrarleigusamningar um fast-
eignir verði færðir í efnahags-
reikninga. Þá er í sífelldri endur-
skoðun að færa frekari verkefni
frá ríki til sveitarfélaganna.
Úrræði hefur vantað
Meðal þess sem gagnrýnt hefur
verið er að eftirlitsnefnd með fjár-
málum sveitarfélaga hafi engin
úrræði til að grípa inn í, stefni í
óefni. Sveitarstjórnarlögum var
breytt árið 1998 og þá voru sett
ákvæði um eftirlitsnefndina. „Þá
var þetta dálítið nýtt og menn
vildu ekki ganga lengra í þessu
eftirliti en hóflegt þótti,“ segir
Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri
hag- og upplýsingasviðs Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
„Menn eru alltaf á eftir, það er
verið að skoða ársreikninga sem
eru gerðir upp við áramót en lagð-
ir fram einhvern tímann í júní.
Þeir eru til skoðunar, kannski eftir
sumarfrí, þannig að ef eitthvað
hefur gerst þá er liðinn tölu-
vert langur tími og menn standa
frammi fyrir orðnum hlut.“
Hallalaus rekstur
Þetta er meðal þess sem horft
er til í endurskoðuninni. Kristj-
án Möller, samgöngu- og sveit-
arstjórnarráð-
herra, segir að
leiði endurskoð-
unin í ljós að
nefndin þurfi
beittari úrræði
verði tekið á
því. Nú þegar sé
unnið að breyt-
ingum varðandi
upplýsingagjöf.
„Við förum
með frumvarp inn í þingið fljót-
lega sem verður bráðaaðgerð. Þar
er hnykkt á því að sveitarfélög
skili inn upplýsingum ársfjórð-
ungslega. Þá er aðgengi eftirlits-
nefndarinnar að upplýsingunum
aukið verulega. Ég mun leggja
þetta fljótlega fyrir ríkisstjórn
en þetta eru hlutir sem við viljum
gera strax.“
Kristján segir að vissulega
verði að virða sjálfsákvörðunar-
rétt sveitarfélaga, en hann megi
ekki vera það mikill að menn setji
sveitarfélög á höfuðið.
„Menn geta spurt sig að því
hvort sveitarfélag megi skuld-
setja sig nema upp að vissu marki,
kannski tvöfaldar eða 1,5-faldar
skatttekjur. Það gæti verið regla
sem þyrfti undantekningu til að
víkja frá.
Svo má spyrja hvort önnur regla
gæti verið sú að sveitarfélög megi
ekki reka sig með halla. Þau verði
að skila hallalausum rekstri nema
þau fái heimild til annars. Þá verði
að vinna hallann upp á þremur
árum.
Svona fjármálareglur gætu
skilað sér inn í lögin.
Samskiptin bætt
Meðal þess sem lengi hefur verið
gagnrýnt er skortur á samskipt-
um ríkis og sveitarfélaga. Þau
síðarnefndu véla með þriðjung af
opinberum fjármunum, en tveir
þriðju eru á borði ríkisvaldsins.
Það er því nokkuð mikilvægt að
samskipti þar á milli séu góð.
Sveitarstjórnarmönnum hefur
þótt skorta á þetta samstarf og
nægir að sitja landsþing eða fjár-
málaráðstefnu sveitarfélaganna
til að heyra þá gagnrýni. Þar á
bæ hefur þótt skorta á skilning
hjá ríkisvaldinu við að verkefn-
um þurfi að fylgja fjármunir og
að ákvarðanir teknar á Alþingi
geti haft útgjaldaauka í för með
sér víða um land.
Í nágrannalöndunum eru fjár-
hagsleg samskipti í stöðugri
endurskoðun árlega. „Hérna stofna
menn tekjustofnanefnd út af krísu-
ástandi annað og þriðja hvert ár,
svo byrjar allt
að hlaðast upp
aftur,“ segir
Gunnlaugur.
Þessi sam-
skipti eru til
gagngerrar
endurskoðun-
ar og mun ætl-
unin að koma
á fyrirkomu-
lagi svipuðu
og í nágranna-
löndunum. Kristján Möller segist
hlynntur árlegri endurskoðun. „Já
ég er hlynntur því, þetta á bara að
vera hluti af samfélaginu. Það er
betra að ræða hlutina strax út frá
þeim gögnum sem til eru.“
Taka á í gagnið hagstjórnar-
samninga sem ríki og sveitarfélög
gera sín á milli. Þar verði almenn
hagstjórnarmarkmið beggja
aðila og tilgreindar þær sérstöku
aðgerðir sem vinna á saman á
tímabilinu. Samningurinn verði
svo endurnýjaður árlega.
Verkefnum fylgi tekjur
Sveitarfélögin taka að sér æ fleiri
verkefni og í bígerð er að færa
enn fleiri yfir til þeirra. Stærsta
einstaka verkefnið sem um ræðir
var flutningur grunnskólans frá
ríkinu árið 1994. Sveitarstjórnar-
mönnum þykir sem ekki hafi fylgt
nægir fjármunir með ábyrgðinni.
Víða erlendis er óheimilt að
flytja verkefni á milli stjórn-
sýslustiga án þess að fjármunir
fylgi með. Sveitarstjórnarmönn-
um hefur þótt skorta á þetta. Í orði
kveðnu eigi ráðuneyti að kostnað-
armeta frumvörp og reglugerðar-
drög, en á það hafi skort. Fjöldi
verkefna sytri hins vegar yfir á
sveitarfélögin án þess að búið sé
að greina hvaðan kostnaðurinn
eigi að koma.
Á þessu verður tekið í hagstjórn-
arsamningunum.
www.sff.is
Kynning á verklagsreglum
Brynhildur Georgsdóttir,
Umboðsmaður viðskiptavina Arion banka
Verklagsreglur og siðferðissjónarmið
Stefán Einar Stefánsson, siðfræðingur
Verklagsreglur og lagaleg álitaefni
Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður
Verklagsreglur og hlutverk eftirlitsnefndar
María Thjell, formaður eftirlitsnefndar
Fundarstjóri: Andrés Magnússon,
framkvæmdastjóri SVÞ
Skráning með tölvupósti á sff@sff.is
Morgunverðarfundur
um sameiginlegar
verklagsreglur um úrlausn
skuldavanda fyrirtækja
Miðvikudaginn 3. mars kl. 8:30–10:00
á Hilton Reykjavík Nordica –fundarsal I
FRÉTTASKÝRING: Sveitarfélög 2. hluti
Skuldaþak og hallalaus rekstur í skoðun
KRISTJÁN MÖLLER
GRUNNSKÓLI Sveitarfélögin tóku yfir rekstur grunnskólanna árið 1996. Síðan hefur verið unnið að frekari flutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga. Fjárhagsmál, meðal annars
tengd slíkum verkefnum, verða tekin til gagngerrar endurskoðunar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GUNNLAUGUR
JÚLÍUSSON
VEGVÍSIRINN
Í byrjun október rituðu tveir
ráðherrar, Kristján Möller og Stein-
grímur J. Sigfússon, og formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
Halldór Halldórsson, undir vegvísi
að gerð hagstjórnarsamnings ríkis
og sveitarfélaga. Þar er að finna
þau markmið sem sett verða
í vinnu slíkra samninga í átta
töluliðum.
■ Samstarf verði aukið um stjórn
opinberra fjármála
■ Þeim verði hagað í samræmi
við ákveðin mörk og viðmið
hagstjórnar
■ Tekjur og útgjöld taki mið af
markmiðum um þjóðhagslegan
stöðugleika
■ Afkoma verði í samræmi við
markmið um jöfnuð í fjármál-
um hins opinberra
■ Vinna fjármálareglur fyrir sveit-
arfélög
■ Laga forsendur fyrir fjárhags-
áætlunum sveitarfélaga og
framkvæmd að efnahagsstefnu
ríkisstjórnar og búa þannig til
samræmda heildarstefnu
■ Samstarf um lánamál hins
opinbera
■ Kostnaðarmeta lagafrumvörp
og reglugerðir sem geta haft
áhrif á útgjöld ríkissjóðs og
sveitarfélaga
FRÉTTASKÝRING
KOLBEINN
ÓTTARSSON PROPPÉ
kolbeinn@frettabladid.is
Annar hluti af þremur
Næsta grein: Sameining.
Árið 1996 fluttist grunnskólinn til sveitarfélaganna frá ríkisvaldinu. Óhætt er
að segja að um gríðarlega umfangsmikið verkefni hafi verið að ræða og er
rekstur grunnskóla nú mikilvægur þáttur sveitarstjórna.
Um næstu áramót flytjast verkefni fatlaðra yfir til
sveitarfélaga og hefur lengi verið unnið að því. Þá er
í pípunum að flytja annan stóran málaflokk, málefni
aldraðra, yfir til sveitarfélaganna.
„Við vildum slaka á eftir flutning grunnskólans,“ segir
Halldór Halldórsson. „Ríkið hefur nefnilega þann háttinn
á að vera með fastar fjárhæðir þegar kemur að sam-
starfsverkefnum.“ Halldór segir að það norm sem ríkið
gefi sér sé oftar en ekki undir raunverulegum kostnaði.
Því hafi aukinn kostnaður lent á sveitarfélögunum sem
oft megi illa við því.
Hugmyndafræðin er sú að nærþjónustan, persónu-
bundin þjónusta, sé á ábyrgð sveitarfélaganna. Þessi almenna alltumlykj-
andi þjónusta sé hins vegar á ábyrgð ríkisvaldsins.
Kristján Möller segir að eftir því sem sveitarfélögin verði stærri og öflugri
geti þau tekið yfir fleiri verkefni. Hann sjái fyrir sér að það geti átt við verk-
efni á samgöngusviði, rekstur flugvalla og viðhald vega, svo dæmi sé tekið.
NÆRÞJÓNUSTAN
HALLDÓR HALL-
DÓRSSON