Fréttablaðið - 01.03.2010, Side 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
VIÐHALD 2010 er sýning um viðhaldsmál fyrir
húseigendur sem haldin verður í Smáralind um
næstu helgi. Þar fá einstaklingar, húseigendur og
húsfélög upplýsingar um skattamál, réttindi, skyldur,
tryggingar, fjármögnun og margt annað.
„Konan mín gaf mér þessa ísvél
í jólagjöf fyrir nokkrum árum
og hún er uppáhaldið mitt í eld-
húsinu,“ segir Jón Yngvi glað-
lega og bætir við að frúin njóti
að sjálfsögðu góðs af þeirri gjöf.
„Hún segist að minnsta kosti hafa
gefið mér hana í eigin hagsmuna-
skyni,“ segir hann hlæjandi. Held-
ur hefur þó dregið úr notkun vélar-
innar á síðustu mánuðum að hans
sögn. „Ég bý aðeins sjaldnar til ís
núna en ég gerði til að byrja með,“
viðurkennir hann og gefur upp
ástæðuna. „Ég bý við Laugalækinn
og þar var opnuð fyrirtaks ísbúð
fyrir nokkrum mánuðum sem ótrú-
lega freistandi er að fara í. Samt
nota ég vélina alltaf öðru hverju.“
Ein þekktasta afurðin hjá
Jóni Yngva er berjaís, að því er
hann upplýsir. „Ég er með dellu
fyrir íslensku hráefni og bý til
rifsberjaís sem er bleikur og fal-
legur. Nú var ég bara dálítið latur
að tína rifsber síðasta sumar en
amma mín í sveitinni á svo mikið
af rifsberjarunnum að það dugar
fyrir alla ættina. Þar fæ ég rabar-
bara líka sem ég bý til ís eða
sorbet úr og þessi framleiðsla er
ekki bara vinsæl hjá mér heldur
öllum á heimilinu.“
Engin rós er án þyrna og Jón
Yngvi lenti í smá hremmingum
með þessa góðu græju. „Ég varð
fyrir því að tapa einu stykki úr
vélinni – ég veit það hljómar illa
fyrir konuna mína – en hún henti
úr henni hrærispaðanum í tiltekt,
hann fylgdi óvart með gamalli
matvinnsluvél sem var verið að
henda. Ég lenti í vandræðum því
þetta er svo lítill hlutur að umboðið
á Íslandi harðneitaði að selja mér
hann og þrætti fyrir að hægt væri
að panta hann. Ég þurfti sjálfur að
hafa fyrir því að finna hann á Net-
inu og kaupa hann beint utanlands
frá. Síðan hef ég ekki treyst lager-
mönnum í sambandi við varahluti
í heimilistæki enda hef ég oftar
þurft að panta þá sjálfur,“ segir
Jón Yngvi og hvetur fólk til þess að
henda ekki búshlutum þótt því sé
haldið fram í verslunum að vara-
hlutir séu ekki til. gun@frettabladid.is
Slær í gegn á heimilinu
með rifsberjaísnum
Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur þarf engan umhugsunarfrest þegar hann er spurður hver sé
eftirlætisgripur hans á heimilinu. Valið er einfalt því hann á ísvél sem ótvírætt er í fyrsta sæti.
Jón Yngvi með ísvélina sem hann segist nota aðeins sjaldnar eftir að ísbúð var opnuð hinum megin við götuna. Á bak við hann
eru dóttirin Silja og Margrét Erla Þórsdóttir, vinkona hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu
Takmarkað magn af IQ-Care heilsudýnum
og Proflex stillanlegum rúmum
á sértilboði frá framleiðanda
lex 2x80x200 með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu
kr. 339.900 - verð áður kr. 429.000
lex 2x90x200 með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu
kr. 349.900 - verð áður 459.000
Listh
Fermingartilboð
sjá
www.svefn.is
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447