Fréttablaðið - 01.03.2010, Side 20
1. MARS 2010 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
Á Steinsteypudeginum 2010
var veitt viðurkenning fyrir
mannvirki þar sem saman fer
frumleg og vönduð notkun
á steinsteypu í manngerðu
umhverfi. Göngubrýrnar yfir
Njarðargötu og Hringbraut
hlutu titilinn að þessu sinni.
Dómnefnd skipuð fagaðilum úr
byggingariðnaðinum stóð fyrir
vali á steinsteyptu mannvirki síð-
ustu fimm ára á Steinsteypudeg-
inum 2010. Forseti Íslands, herra
Ólafur Ragnar Grímsson, veitti
Reykjavíkurborg, Vegagerðinni og
forsvarsmönnum Studio Granda,
Eflu, Háfells og Eyktar viðurkenn-
ingu fyrir hönnun og verklega
framkvæmd á göngubrúnum yfir
Njarðargötu og Hringbraut.
„Mannvirkin eru bæði falleg og
falla vel að umhverfinu. Brýrn-
ar endurspegla ýmislegt úr sínu
nánasta umhverfi og minna meðal
annars svolítið á vænghaf sem
er bein skírskotun í varpsvæðið
og flugvöllinn. Yfir þeim er svo
ákveðinn léttleiki þar sem engu
líkara er en að formið sé teygt til
hins ýtrasta og massívur kjölurinn
látinn þynnast út í endana,“ segir
Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, stjórn-
armaður í Steinsteypufélaginu
og formaður dómnefndar, beðin
um að skýra aðeins betur valið á
mannvirki ársins.
Þetta er í fyrsta sinn sem val á
steinsteyptu mannvirki fer fram
en til stendur að gera það að ár-
legum viðburði. Var það gert að
frumkvæði Ólafs Wallevik frá
Nýsköpunarmiðstöð Íslands, sem
styrkti það ásamt Íbúðalánasjóði.
Leitað var til fagmanna úr ólík-
um stéttum innan byggingariðn-
aðarins og óskað eftir tilnefning-
um um steinsteypt mannvirki. Að
sögn Þorbjargar bárust dómnefnd-
inni 24 tilnefningar um 22 ólík en
glæsileg mannvirki. „Skemmtileg-
ast þótti okkur að sjá fjölbreytnina
í tillögum þar sem opinberar bygg-
ingar, samgöngumannvirki, heim-
ili og heilsulindir voru á meðal
þeirra mannvirkja sem komu til
greina,“ segir hún.
Þorbjörg segir að dómnefnd-
in hafi tekið sér dágóðan tíma til
að fara yfir tillögurnar sem bár-
ust þar sem valið hafi verið erfitt.
Fyrrtéðir kostir brúnna hafi þó að
lokum ráðið niðurstöðu dómnefnd-
ar, auk þess sem þær hafi þótt end-
urspegla góða þekkingu í meðferð
og notkun steinsteypu. „Verkleg
framkvæmd ekki síður en arki-
tektúr er til fyrirmyndar.“ - rve
Brúin fellur vel að umhverfi sínu
Auðvelt er að gerbreyta stíl herbergja og innréttinga með því
einu að skipta um höldur og hnúða á skápum og skúffum. Hér í
bæ er ágætis úrval af slíkum gripum. Útsendari Fréttablaðsins
tók smá rúnt.
Stíll eldhúsinnréttinga, fataskápa og kommóða ræðst oft mikið af útliti
haldanna eða hnúðanna. Þannig má gera sömu innréttinguna rómantíska
og stílhreina, allt eftir því hvaða höldur eru valdar. Rétt er að geta sérstak-
lega verslunarinnar Sirku á Akureyri sem er með mikið úrval af höldum og
borgarbúum bent á að kíkja við í versluninni ef þeir eiga erindi norður. - jma
Höldur og hnúðar
Gyllt og blátt er afar
fallegt saman og þessar
kæmu eflaust vel út á
kommóðunni. Sirka,
Skipagötu 5, Akureyri.
Formfagur
hnúður úr
burstuðu stáli.
Húsasmiðjan,
Skútuvogi.
Ryðfrír hnúður sem fæst
hjá Esju, Bíldshöfða 14,
en fyrirtækið er með
ljómandi úrval af alls kyns
höldum.
Bláa lónið, lækn-
ingalind, Svarts-
engi, var einnig
tilnefnt. Húsið er
að hluta byggt
úr forsteyptum
einingum frá fyrir-
tækinu Smellinn á
Akranesi þar sem í
fyrsta sinn er notað
hraun af lóðinni
sem yfirborðsáferð
veggja, utanhúss
og innan. Á þann
eru umhverfi og
hús tvinnað saman
í eina heild.
MYND/BJÖRN TH.
SIGURÐSSON
Safnaðarheimili Kársneskirkju er
staðsteypt bygging þar sem notuð var
„mjallahvít“ steinsteypa. Byggingin
hefur sinn eigin byggingarstíl án þess að
taka of mikla athygli frá Kársneskirkju.
Bogadregnar línur kirkjunnar eru end-
urvaktar í safnaðarheimilinu og opna
fyrir ásýnd upp að kirkjunni, ásamt því
að sveigja út á móti útsýninu til norðurs.
MYND/JÓHANNES ÞÓRÐARSON
Rauðar ANNARS-höldur eru á tilboði þessa dagana í IKEA,
Kauptúni.
Flöt halda sem kæmi
vel út á eldhúsinnrétting-
unni. Esja, Bíldshöfða 14.
Afar stílhrein og
falleg hvít halda úr
Byko, Breiddinni.
Litlir og krúttlegir rósahnúðar úr
versluninni Sirku, Skipagötu 5, Akureyri.
Töff svört halda úr
Byko, Breiddinni.
Margir muna eftir Hewi-höldunum sem
tröllriðu öllu upp úr 1980. Þær standast
tímans tönn og hægt er að panta þær í
fallegum litum hjá Epal, Skeifunni.
Steyptir stöplar við höfnina í Gleðivík
á Djúpavogi sem áður voru notaðir
undir löndunarbúnað fiskimjölsverk-
smiðju staðarins eru nú notaðir undir
útilistaverk eftir Sigurð Guðmundsson.
Listaverkið, sem ber nafnið „Eggin í
Gleðivík“, er allt unnið úr granít. Um
er að ræða þrjátíu og fjórar nákvæmar
eftirmyndir eggja valinna íslenskra
varpfugla. MYND/ ANDRÉS SKÚLASON
Göngubrýrnar við Njarðargötu og Hringbraut tengjast stígakerfinu í grennd og leysa
samgönguleiðir gangandi og hjólandi vegfarenda í Vatnsmýrinni.
Guðmundur Valur Guðmundsson frá Eflu og Steve Christer, arkitekt hjá Studio
Granda, standa hér á sameiginlegu sköpunarverki. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
M
YN
D
/SIG
U
RG
EIR SIG
U
RJÓ
N
SSO
N
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki