Fréttablaðið - 01.03.2010, Page 21
FASTEIGNIR.IS
1. MARS 20109. TBL.
Valhöll Fasteignasala hefur til sölu vandaða og
mikið endurnýjaða eign við Hamrahlíð.
Um heildareign er að ræða, aðalíbúð á tveimur hæðum
og aukaíbúð í kjallara með sérinngangi en mögulegt er
að sameina eignirnar í eina eign eða stækka aukaíbúð-
ina. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni arkitekt og
hefur eignin öll verið tekin í gegn að utan sem innan.
Í aðalíbúð er flísalagt anddyri með fataskápum og
gestasalerni og þaðan er gengið inn í stofu með fallegu
eikarparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir til
suðurs. Borðstofa er í beinu framhaldi af stofu með opnu
eldhúsi til hliðar, með HTH-innréttingu og AEG-tækj-
um, svo sem gaseldavél. Parket er þar einnig á gólfum.
Flísalagt búr eða þvottahús er inn af eldhúsi og skilið
er á milli með rennihurð.
Stigi upp á efri hæð er lagður ullarteppi og komið er
upp í hol þar sem gengið er út á stórar suðursvalir. Á
hæðinni eru fjögur svefnherbergi með parketi á gólf-
um og í hjónaherbergi eru fataskápar með rennihurð-
um. Á snyrtingu er baðker og sturta, upphengt klósett,
skápar og handklæðaofn.
Innangengt er úr aðalíbúð í kjallara en þar eru
meðal annars tvær geymslur, inntaksrými og þriggja
herbergja íbúð sem auk sérinngangs hefur inngang
frá gamla sameignarhlutanum. Í anddyri íbúðarinn-
ar er fatahengi og í holi skápur með rennihurð. Bað-
herbergi er með nýrri handlaug og sturtuklefa frá
Tengi. Á svefnherbergjum er plastparket og stofa og
eldhús eru parketlögð. HTH-innrétting er í eldhúsi.
Sérþvottaherbergi er innan íbúðar.
Bílskúr er með gryfju í gólfi og hillum. Hitalögn er í
innkeyrslu og tröppum upp að anddyri.
Falleg eign í Hlíðunum
Fallegt eikarparket er á gólfum aðalíbúðar og opið milli stofu,
borðstofu og eldhúss.Tvennar svalir snúa mót suðri, aðrar sérstaklega stórar.
Daníel
Björnsson
lögg. leigumiðlari
Bogi
Pétursson
lögg. fasteignasali
Finnbogi
Hilmarsson
lögg. fasteignasali
Einar
Guðmundsson
lögg. fasteignasali
Daníel
Björnsson
lögg. leigumiðlari
Bogi
Pétursson
lögg. fasteignasali
Finnbogi
Hilmarsson
lögg. fasteignasali
Einar
Guðmu dsson
lögg. fasteignasali
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.