Fréttablaðið - 01.03.2010, Blaðsíða 42
26 1. mars 2010 MÁNUDAGUR
Enska úrvalsdeildin
Chelsea-Manchester City 2-4
1-0 Frank Lampard (42.), 1-1 Carlos Tevez (45.),
1-2 Craig Bellamy (51.), 1-3 Tevez (76.), 1-4
Bellamy (87.), 2-4 Lampard (90.).
Birmingham-Wigan 1-0
1-0 James McFadden (45.).
Bolton-Wolves 1-0
1-0 Zat Knight (45.).
Burnley-Portsmouth 1-2
0-1 Frederic Piquionne (25.), 1-1 Martin Paterson
(31.), 1-2 Hassan Yebeda (76.).
Stoke-Arsenal 1-3
1-0 Danny Pugh (8.), 1-1 Nicklas Bendtner (32.),
1-2 Cesc Fabregas (90.), 1-3 Thomas Vermaelen
(90+3.).
Tottenham-Everton 2-1
1-0 Roman Pavlyuchenko (11.), 2-0 Luka Modric
(28.), 2-1 Yakubu Aiyegbeni (55.).
Liverpool-Blackburn 2-1
1-0 Steven Gerrard (20.), 1-1 Keith Andrews(40.),
2-1 Fernando Torres (44.).
Sunderland-Fulham 0-0
STAÐAN Í DEILDINNI
1. Chelsea 28 19 4 5 +39 61
2. Man. Utd 28 19 3 6 +42 60
3. Arsenal 28 18 4 6 +35 58
4. Tottenham 28 14 7 7 +23 49
5. Man. City 27 13 10 4 +17 49
6. Liverpool 28 14 6 8 +17 48
7. Aston Villa 26 12 9 5 +16 45
8. Birmingham 27 11 7 9 -2 40
9. Fulham 28 10 8 10 +3 38
10. Everton 27 10 8 9 0 38
11. Stoke 27 8 10 9 -5 34
12. Blackburn 28 9 7 12 -15 34
13. West Ham 27 6 9 12 -8 27
14. Sunderl. 27 6 9 12 -12 27
15. Bolton 27 6 8 13 -19 26
16. Wigan 27 6 7 14 -27 25
17. Wolves 27 6 6 15 -24 24
------------------------------------------------------------
18. Hull 27 5 9 13 -29 24
19. Burnley 27 6 5 16 -29 23
20. Portsm. 27 5 4 18 -22 19
Enski deildabikarinn
Aston Villa-Manchester United 1-2
1-0 James Milner (víti 5.), 1-1 Michael Owen (13.)
1-2 Wayne Rooney (74.).
Enska b-deildin
Barnsley-Blackpool 1-0
Emil Hallfreðsson sat á bekknum hjá Barnsley.
Coventry-Scunthorpe 2-1
Aron Gunnars lék allan leikinn fyrir Coventry.
Reading-Sheffield Wednesday 5-0
Gylfi Sigurðsson og Ívar Ingimarsson voru í liði
Reading en Gunnar Heiðar Þorvaldsson var á
bekknum.
Sheffield United-Plymouth 4-3
Kári Árnason lék allan leikinn fyrir Plymouth.
Watford-Newcastle 1-2
Heiðar Helguson lék allan leikinn fyrir Watford.
Spænska deildin
Tenerife-Real Madrid 1-5
0-1 Gonzalo Higuain (29.), 0-2 Higuain (41.), 1-2
Garcia Ayoze (47.), 1-3 Kaka (48.), 1-4 Cristiano
Ronaldo (80.), 1-5 Raúl González (90.).
Barcelona-Malaga 2-1
1-0 Pedro (69.), 1-1 Valdo (81.), 2-1 Lionel Messi
(84.).
Ítalska deildin
Lazio-Fiorentina 1-1
1-0 Sebastiano Siviglia (7.), 1-1 Keirrison (90.).
AC Milan-Atalanta 3-1
1-0 Alexandre Pato (30.), 2-0 Pato (41.), 2-1
Jaime Valdes (55.), 3-1 Marco Borriello (60.).
Udinese-Inter 2-3
1-0 Simone Pepe (2.), 1-1 Mario Balotelli (6.), 1-2
Maicon (21.), 1-3 Diego Milito (45.).
Napoli-Roma 2-2
0-1 Julio Babtista (59.), 0-2 Mirko Vucinic (65.),
1-2 German Denis (76.), 2-2 Marek Hamsik (90.).
Þýski handboltinn
Flensburg-Dusseldorf 34-23 (19-9)
Alexander Pettersson skoraði 5 mörk f. Flensburg
og Sturla Ásgeirsson skoraði 2 mörk f. Dusseldorf.
Melsungen-Grosswallstadt 26-29 (9-18)
Sverre Jakobsson lék m. Grosswallstadt.
Lemgo-Wetzlar 29-18 (16-5)
Vignir Svavarsson skoraði 2 mörk f. Lemgo.
Hannover-Magdeburg 27-25 (11-9)
Hannes Jón Jónsson skoraði 3 mörk f. Hannover.
Göppingen-Fuchse Berlin 29-25 (15-15)
Rúnar Kárason skoraði 1 mark f. Fuchse Berlin.
Meistaradeildin í handbolta
Chambery Savoie-RN Löwen 24-29 (13-12)
Ólafur Stefánsson skoraði 3 mörk og Snorri
Steinn Guðjónsson skoraði 2 mörk.
Kiel-Kolding 38-23 (20-10)
Aron Pálmarsson skoraði 3 mörk fyrir Kiel.
Iceland Express-deild karla
Snæfell-ÍR 96-86 (48-42)
Stig Snæfells: Sigurður Þorvaldsson 25 (18
fráköst), Sean Burton 23, Jón Ólafur Jónsson 13,
Pálmi Freyr Sigurgeirsson 11, Martins Berkis 11
(9 fráköst, 7 stoðsendingar), Páll Fannar Helgason
6, Sveinn Arnar Davíðsson 4, Emil Þór Jóhanns-
son 3.
Stig ÍR: Robert Jarvis 24, Nemanja Sovic 16,
Eiríkur Önundarson 16, Steinar Arason 14,
Kristinn Jónsson 9, Ólafur Þórisson 3,
Hreggviður Magnússon 2, Ásgeir Hlöðversson 2.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Topplið ensku úrvals-
deildarinnar, Chelsea, tapaði illa
fyrir Manchester City á laugar-
dag sem þýðir að Manchester
United er aðeins stigi á eftir Lund-
únaliðinu. Allra augu á Stamford
Bridge beindust að kviðmágunum
John Terry og Wayne Bridge sem
þarna mættust.
Eins og venja er heilsuðust leik-
menn liðanna fyrir leik en Bridge
bauð þó Terry ekki hönd sína og
skyldi engan undra. Um ekkert
hefur verið fjallað meira í ensk-
um fjölmiðlum en málefni þess-
ara fyrrum samherja eftir að upp
komst að Terry hélt við fyrrum
unnustu Bridge á meðan þau voru
saman.
John Terry hefur átt betri daga
en laugardaginn og það sama má
segja um Chelsea. Carlos Tevez
var mættur aftur í lið City eftir
frí vegna persónulegra mála og
átti flottan leik. Hann skoraði tví-
vegis þegar hans lið tryggði sér
glæsilegan 4-2 útisigur. Craig
Bellamy var einnig í stuði og skor-
aði hin tvö fyrir City. Mótlætið
fór illa í heimamenn sem misstu
tvo leikmenn af velli, en Juliano
Belletti og Michael Ballack voru
sendir í bað.
Þar sem Petr Cech verður á
meiðslalistanum næstu vikurn-
ar stóð Henrique Hilário í marki
Chelsea í gær. Frammistaða
þess portúgalska var herfileg og
fyrstu tvö mörk gestanna skrif-
ast að stórum hluta á hann. Það
er nokkuð hnyttið að lesa ummæli
Terry um Hilário í leikskránni
fyrir leik.
„Hann hefur staðið sig það vel
að mér finnst að hann gæti farið
með portúgalska landsliðinu á
heimsmeistaramótið í sumar.
Allir hérna hafa mikla trú á
honum,“ sagði Terry fyrir leikinn
en ómögulegt er að Carlos Queir-
oz, þjálfari Portúgals, hafi hrifist
af leik Hilário um helgina.
Stór hluti stuðningsmanna
Chelsea baulaði á Bridge meðan á
leik stóð af óskiljanlegum ástæð-
um. Sá hlær best sem síðast hlær,
Chelsea fékk ekkert út úr leikn-
um og flestir stuðningsmenn liðs-
ins höfðu yfirgefið sæti sín áður
en leik lauk. - egm
Wayne Bridge neitaði að taka í höndina á John Terry fyrir viðureign Manchester City og Chelsea:
Þetta var ekki dagurinn hans Terry
EKKERT HANDABAND Bridge sleppti því
að heilsa Terry. NORDICPHOTOS/GETTY
FRJÁLSÍÞRÓTTIR Fjórða bikar-
keppni Frjálsíþróttasambands
Íslands innanhúss var haldin í
Frjálsíþróttahöllinni í Laugar-
dal í gærdag þar sem ÍR vann
sameiginlega stigakeppni nokk-
uð örugglega. ÍR-ingar unnu því
bikarkeppnina innanhúss annað
árið í röð.
ÍR hafði betur í sameiginlegu
stigakeppninni eftir harða bar-
áttu við Ármann/Fjölni en ÍR
endaði keppnina með 132 stig og
Ármann/Fjölnir var með 111,5
stig. FH krækti í þriðja sætið
með 100,5 stig, hálfu stigi á undan
Breiðablik sem endaði í fjórða
sæti. Alls mættu sjö keppnislið
til leiks en 165 keppendur voru
skráðir til leiks.
FH vann stigakeppnina hjá
körlunum og fékk 61,5 stig en
ÍR vann stigakeppnina hjá kon-
unum og fékk 75 stig, en gríðar-
lega mikil breidd og liðsheild ÍR-
inga í karla- og kvennaflokki skóp
tvímælalaust sigurinn. Þess má
einnig geta að hinn öflugi Einar
Daði Lárusson gat ekki keppt með
ÍR vegna meiðsla þannig að ÍR-
ingar virðast enn eiga talsvert
inni.
Annars voru flestir af sterk-
ustu keppendum landsins mættir
til leiks í Laugardalinn en engin
Íslandsmet féllu í eldri keppnis-
flokkum á mótinu að þessu sinni.
Enda er bikarkeppnin stiga-
keppni og keppendur einbeita
sér því fyrst og fremst að því að
ná sætum og aðeins einn kepp-
andi frá hverju félagi má keppa í
hverri grein fyrir sig. Arna Stef-
anía Guðmundsdóttir úr ÍR bætti
þó eigið Íslandsmet í 400 metra
hlaupi í meyja- og stúlknaflokk-
um þegar hún hljóp á tímanum
56,94 sekúndur. - óþ
Bikarkeppni FRÍ innanhúss fór fram í gær þar sem ÍR-ingar fóru með sigur:
ÍR náði að verja titil sinn
Á FLUGI ÍR-ingar náðu að vinna Bikar-
keppni FRÍ innanhúss annað árið í röð.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI „Það er mögnuð tilfinn-
ing að skora sigurmarkið í úrslita-
leik á Wembley,“ sagði Wayne
Rooney eftir að Manchester Unit-
ed vann Aston Villa 2-1 í úrslita-
leik deildabikarsins. Hann skor-
aði sigurmark leiksins með skalla
eftir fyrirgjöf Antonio Valencia á
74. mínútu.
Umdeildasta atvik leiksins
gerðist strax í upphafi hans. Ser-
binn Nemanja Vidic braut þá á
Gabriel Agbonlahor og dómarinn
Phil Dowd dæmdi réttilega víta-
spyrnu. Mótherjar United vildu þó
klárlega fá rautt spjald en Dowd
lyfti ekki einu sinni því gula.
„Þetta var óskiljanleg ákvörðun
hjá annars góðum dómara leiks-
ins. Þetta verður orðið gleymt
og grafið eftir nokkrar vikur
en ákvörðunin var slæm,“ sagði
Martin O’Neill, knattspyrnu-
stjóri Villa. Sjálfur viðurkennir
Vidic að vítaspyrnudómurinn hafi
verið réttur en segist ekki hafa átt
skilið að fá brottvísun.
„Ég hefði getað gert betur en
Agbonlahor gerði vel. Ég tel að
þetta hafi ekki verið rautt spjald
því ég komst fyrir framan hann.
Ef ég hefði brotið fyrir aftan hefði
þetta átt að vera rautt,“ sagði
Vidic.
Á 13. mínútu jafnaði Manchest-
er United eftir hroðaleg mistök
varnarmannsins Richard Dunne.
Sir Alex Ferguson fór fögrum
orðum um Dunne fyrir leikinn og
virðist hafa unnið ákveðinn sál-
fræðisigur. Michael Owen þakkaði
Dunne fyrir með því að skora.
Owen fór meiddur af velli fyrir
hálfleik og þá kom Rooney inn
á en hann hefur verið sjóðheit-
ur á tímabilinu. Hann tryggði
Manchester United sigur en þetta
er í fyrsta sinn í tuttugu ár sem
lið nær að verja þennan titil.
„Það var gaman að vinna,
gaman að skora og gaman að taka
þátt í þessum leik,“ sagði Michael
Owen. „Það eina sem skyggði á
þetta var að ég meiddist aftan
í læri og þurfti að fara af velli.
Þetta eru fyrstu meiðslin sem ég
verð fyrir síðan ég kom til Unit-
ed. Þetta hefur samt verið góður
dagur.“
Menn velta því fyrir sér hvort
þetta mark auki möguleika Owen
á að vera í leikmannahópi Eng-
lands á HM í sumar en sjálfur
segist hann lítið velta sér upp úr
því. elvargeir@frettabladid.is
Enn einn gullskalli Rooney
Wayne Rooney kom af varamannabekknum og tryggði Manchester United
sigur í deildabikarnum. Þetta er annað árið í röð sem United vinnur keppnina.
BIKARINN Á LOFT Wayne Rooney lyftir deildabikarnum. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Aaron Ramsey, hinn
ungi miðjumaður Arsenal, verð-
ur frá út tímabilið og líklega enn
lengur eftir að hafa fótbrotnað
illa í leik gegn Stoke á laugardag.
Ryan Shawcross fór í klaufalega
tæklingu með skelfilegum afleið-
ingum og fékk í kjölfarið rauða
spjaldið.
Shawcross yfirgaf völlinn grát-
andi en fleiri leikmenn voru í
miklu áfalli. Brotið var það ljótt
að það var ekki endursýnt í sjón-
varpsútsendingu og ekki voru
sýndar nærmyndir af Ramsey
liggjandi á vellinum.
Síðar um kvöldið gat Shawcross
leyft sér að gleðjast aðeins en
hann var þá valinn í landsliðshóp
Englands fyrir vináttuleik gegn
Egyptalandi á miðvikudag. - egm
Ryan Shawcross hjá Stoke:
Táraðist eftir að
hafa brotið
SÁ RAUTT Shawcross fékk sitt fyrsta
rauða spjald á ferlinum. NORDICPH/GETTY
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohn-
sen kom inn á sem varamaður
og lék síðustu tuttugu mínúturn-
ar í 2-1 sigri Tottenham gegn
Everton í ensku úrvalsdeildinni
í gær.
Eiður Smári verður hins vegar
ekki með íslenska landsliðinu
sem mætir Kýpur í vináttu-
landsleik á miðvikudag. Jónas
Guðni Sævarsson, leikmaður
Halmstad í Svíþjóð, hefur verið
kallaður upp í íslenska landsliðs-
hópinn fyrir leikinn.
Þrír leikmenn sem upphaflega
voru valdir í hópinn verða ekki
með. Auk Eiðs Smára, sem fær
frí frá leiknum, þá eiga Brynjar
Björn Gunnarsson og Grétar
Rafn Steinsson við meiðsli að
stríða og spila ekki. - egm
Eiður Smári Guðjohnsen:
Eiður fær frí
gegn Kýpur
EIÐUR SMÁRI Verður ekki með íslenska
landsliðinu gegn Kýpur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM