Fréttablaðið - 02.03.2010, Qupperneq 2
2 2. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Þorsteinn Geirsson, ráðuneytis-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu,
er látinn.
Þorsteinn
fæddist í
Reykjavík
15. febrúar
1941. Hann
lauk stúd-
entsprófi frá
MA 1961 og
prófi í lög-
fræði frá HÍ 1966.
Þorsteinn hóf starfsævina
sem fulltrúi hjá Árna Guð-
jónssyni hæstaréttarlög-
manni en fór til starfa í fjár-
málaráðuneytinu 1971. Hann
var ráðuneytisstjóri í fjár-
málaráðuneytinu, sjávarút-
vegsráðuneytinu og dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu.
Þorsteinn gegndi ýmsum
öðrum ábyrgðar- og trúnaðar-
störfum innan stjórnsýslunnar
og var meðal annars formað-
ur samninganefndar ríkisins í
launamálum.
Þorsteinn var kvæntur
Maríu Friðriku Haraldsdóttur.
Fyrri maki hans var Guðrún K.
Sigurðardóttir sem lést 1983.
Þorsteinn átti fjögur börn og
eitt stjúpbarn.
Þorsteinn
Geirsson látinn
VARNARMÁL Loftrýmisgæsla á
vegum Atlantshafsbandalags-
ins hefst á ný hér við land í dag
og stendur til 30. mars. Flugs-
veit frá danska flughernum sinnir
gæslunni að þessu sinni.
Um 50 liðsmenn danska flug-
hersins eru staddir á Íslandi
vegna verkefnisins, að því er segir
á heimasíðu Varnarmálastofnun-
ar. Gæslunni er sinnt með fjór-
um F-16 orrustuþotum í samræmi
við loftrýmisgæsluáætlun NATO
fyrir Ísland. - pg
Loftrýmisgæsla hefst í dag:
50 danskir her-
menn komnir
Gísli, geturðu nú kallað þig
talsmann neitenda?
„Allavega sögðu allir fjölmiðlar „nei“
við því að fjalla um áskorun mína
fyrr en eftir úrslitin.“
Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda,
beið ósigur í prófkjöri Framsóknarflokks-
ins í Kópavogi um helgina.
HEILSA „Við teljum að nálgast þurfi
karlmenn öðruvísi en konur þegar
kemur að svona málum,“ segir
Gústaf Gústafsson hjá Krabba-
meinsfélagi Íslands, sem fer þá
óvenjulegu leið að nota grín til að
vekja athygli á árverkniátakinu
Karlmenn og krabbamein.
Átakið hefst í dag með öflugri
auglýsingaherferð þar sem ýmsir
landsþekktir leikarar og grínist-
ar leggja baráttunni lið. Þótt her-
ferðin sé öll á léttu nótunum liggur
mikil alvara að baki þar sem mark-
miðið er að draga úr dauðsföllum
karla af völdum krabbameins.
- sg / karlar og krabbamein
Árvekniátak um krabbamein:
Með húmor að
vopni í herferð
ÁTAK Á LÉTTU NÓTUNUM Torfi Geir-
mundsson rakari ræðir skegghirðu í
upphafi mottumars. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VINNUMARKAÐUR Vinnumálastofnun
greiddi í gær rúmlega 2,1 milljarð
króna í atvinnuleysistryggingar til
um 15.500 manns.
Á heilu ári hefur stofnunin greitt
24,8 milljarða í atvinnuleysistrygg-
ingar.
Hæsta fjárhæðin kom til
greiðslu í maí í fyrra, 2,4 milljarð-
ar króna, en þá fengu um 17.300
greitt úr atvinnuleysistrygginga-
sjóði. 2,3 milljarðar voru greiddir
úr sjóðnum í júní og júlí.
Atvinnuleysistryggingar eru að
jafnaði greiddar fyrir tímabilið frá
frá 20. hvers mánaðar til 19. næsta
mánaðar.
Allt árið 2008 voru 4,7 milljarð-
ar króna greiddir út í atvinnuleys-
istryggingar og árinu áður nam
fjárhæðin 2,4 milljörðum króna.
Samkvæmt vef Vinnumála-
stofnunar voru 17.520 á skrá yfir
atvinnulausa í gær. 10.466 karlar
og 7.054 konur. Fimmtungur hóps-
ins er í hlutastarfi.
Atvinnuleitendur geta fengið
margvíslega aðstoð við atvinnu-
leit á þjónustuskrifstofum Vinnu-
málastofnunar. - bþs
Rúmlega tveir milljarðar króna greiddir í atvinnuleysisbætur um mánaðamótin:
Um 25 milljarðar í bætur á einu ári
KÖNNUN Sjálfstæðisflokkurinn
er stærsti stjórnmálaflokkurinn
og fengi 32 prósent atkvæða yrði
gengið til kosninga nú. Þetta er
niðurstaða skoðanakönnunar
Capacent Gallup sem sagt var frá
í fréttum Sjónvarpsins í gær.
Vinstri græn mælast með 25
prósenta fylgi, meira en Samfylk-
ingin, sem nýtur stuðnings 23
prósenta. Ríkisstjórnin nýtur 47
prósenta fylgis.
Um 14 prósent sögðust styðja
Framsóknarflokkurinn, en fimm
prósent sögðust myndu kjósa
aðra flokka, til dæmis Hreyfing-
una, Borgarahreyfinguna eða
Frjálslynda flokkinn. - bj
Skoðanakönnun Capacent:
Flestir styðja
Sjálfstæðisflokk
ÚTIVIST Skíðasvæði höfuðborgar-
svæðisins í Bláfjöllum opnaði í
gær í fyrsta skipti í vetur. Rúmlega
2.000 manns renndu sér á skíðum
og snjóbrettum í þeim fimm brekk-
um sem hægt var að opna.
„Fyrsti dagurinn gekk frá-
bærlega, það komu margfalt
fleiri en við þorðum að ímynda
okkur,“ segir Magnús Árnason,
framkvæmdastjóri skíðasvæða
höfuðborgarsvæðisins. Hann segir
áhuga á skíðaíþróttinni sífellt að
aukast.
Áform um uppsetningu snjó-
framleiðslutækja hafa síður en
svo verið sett á ís, segir Magnús.
Orkuveita Reykjavíkur hafi ætlað
að fjármagna kaupin en hrunið
hafi komið í veg fyrir það. „En það
er ekki spurning um hvort, heldur
hvenær við setjum upp snjófram-
leiðsluna,“ segir Magnús. - bj
Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins í Bláfjöllum opnað í fyrsta skipti í vetur:
Fjöldinn langt framar vonum
Á BRETTINU Ekki voru allir háir í loftinu sem skemmtu sér í Bláfjöllum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
15
.0
00
17
.3
00
16
.0
00
17
.0
00
15
.5
00
15
.7
00
15
.2
00
14
.2
00
14
.8
00
15
.9
00
16
.2
00
15
.5
00
ap
r
m
aí
jú
n jú
l
ág
ú
se
p
ok
t
nó
v
de
s
ja
n
fe
b
m
ar
Fj
öl
di
a
tv
in
nu
la
us
ra
2009 2010
ATVINNULEYSISBÆTUR
Frá 1. apríl 2009 til 1. mars 2010
Milljarðar króna
2,1 2,1
2,0 2,0
1,81,8
2,1
1,9
2,32,3
2,4
2,0
STJÓRNSÝSLA Bjartsýni ríkir um
það í stjórnkerfinu að til form-
legra funda komi hjá Bretum og
Íslendingum í London. Íslenska
sendinefnd-
in frestaði för
sinni heim í
gær. Vonast er
eftir fundi síð-
degis í dag.
Steingrímur J.
Sigfússon fjár-
málaráðherra
var í samskipt-
um við Paul
Myners, banka-
málaráðherra Breta, seinni
partinn í gær.
Guðmundur Árnason, ráðuneyt-
isstjóri fjármálaráðuneytisins, er
í London. Hann sagði menn hafa
rætt saman og skipst á gögnum í
gær. „Við fengum í dag [gær] við-
brögð við lauslegum hugmyndum
sem við höfum sett fram og þau
viðbrögð gáfu tilefni til að fresta
heimför.“ Guðmundur segir
stöðuna verða metna í dag.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins ganga hugmyndirnar
út á að Íslendingar greiði höfuð-
stól skuldarinnar og fjármögn-
unarkostnað. Þar er reiknað með
vaxtaviðmiði, föstum alþjóðleg-
um vöxtum, og vaxtaprósentum
þar ofan á. Hver sú prósenta verð-
ur er meðal þess sem verið er að
semja um. Samkvæmt heimildum
er þó um mun lægri vaxtakostn-
að að ræða en gert er ráð fyrir í
fyrri samningi.
Bretar krefjast þess að Íslend-
ingar greiði þann kostnað sem
þeir sjálfir hafa orðið fyrir. Þeir
sjóðir sem lánuðu Íslendingum
fé til að standa skil á lágmarks-
tryggingu innstæða, 20.887
evrum, þurftu að fjármagna sig
og hafa allir borið kostnað við
það. Þann kostnað vilja Bretarnir
fá til baka.
Hollendingar fylgjast átekta
með en eru ekki í London. Guð-
mundur segir að það geti breyst í
dag. „Okkar samskipti hafa verið
við Bretana, en nú getur vel verið
að það breytist. Það er ekki loku
fyrir það skotið að það gætu orðið
einhverjir fundir síðla á morgun
[í dag].“
Samkvæmt nýrri könnun Gallup
munu 74 prósent landsmanna
greiða atkvæði gegn því að frum-
varp um breytingar á lögum um
ríkisábyrgð vegna Icesave taki
gildi, í þjóðaratkvæðagreiðslunni
á laugardag. Fréttastofa Ríkis út-
varpsins greindi frá þessu.
Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra sagði á þingi í gær
að þjóðaratkvæðagreiðslan yrði
haldin. Hún spurði þó hvort ekki
væri um hálfgerðan hráskinna-
leik að ræða ef betri samningar
liggi fyrir.
Verði af fundum og skrif-
að verði undir betri kjör munu
stjórnarflokkarnir fara fram á
það við stjórnarandstöðuna að
fallið verði frá atkvæðagreiðsl-
unni.
kolbeinn@frettabladid.is
Vonast er eftir fundi
síðla dags í London
Bretar hafa tekið vel í hugmyndir Íslendinga um lausn á Icesave-deilunni. Enn
sé tekist á um fjármögnunarkostnað. Hafa þegar samþykkt mun lægri vaxta-
greiðslur. Vonast er eftir fundi síðla dags sem Hollendingar myndu einnig sitja.
GUÐMUNDUR
ÁRNASON
SAMNINGURINN KYNNTUR Forystumenn ríkisstjórnarinnar kynntu niðurstöðu samn-
ings um Icesave við Breta og Hollendinga í byrjun júní. Nú er verið að ná nýjum
samningum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Þau viðbrögð gáfu tilefni
til að fresta heimför.
GUÐMUNDUR ÁRNASON
RÁÐUNEYTISSTJÓRI FJÁRMÁLARÁÐU-
NEYTIS
SPURNING DAGSINS