Fréttablaðið - 02.03.2010, Blaðsíða 4
4 2. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Fyrrverandi umdæm-
isstjóri Þróunarsamvinnustofn-
unar Íslands (ÞSSÍ) í Mósambík
er grunaður um að hafa dregið
sér um eða yfir tíu milljónir af fé
stofnunarinnar í starfi sínu.
Jóhann Pálsson lét af störfum
sem umdæmisstjóri um miðjan
janúar síðastliðinn. Við umdæmis-
stjóraskiptin kom í ljós að hann
lét í nokkrum tilvikum stofnunina
greiða reikninga vegna persónu-
legra útgjalda hans. Hann viður-
kenndi í kjölfarið að hafa brotið af
sér í starfi.
„Þetta er mikið áfall fyrir okkur,
fyrir þessa stofnun og fólkið sem
starfar hér, ekki síst þá sem hafa
bundist þessum manni vináttu-
böndum,“ segir Sighvatur Björgv-
insson, framkvæmdastjóri ÞSSÍ.
Hann segir málið fordæmalaust
innan stofnunarinnar og Jóhann
hafi notið mikils trausts í sínu
starfi sem umdæmisstjóri.
„Hann viðurkenndi að þarna
væri um misferli að ræða, en svo
er það lögreglu að rannsaka hvers
eðlis það var,“ segir Sighvatur.
Ríkisendurskoðun vinnur nú að
því að fara yfir bókhald ÞSSÍ frá
Mósambík frá árinu 2006, þegar
Jóhann tók við störfum umdæmis-
stjóra, segir Helgi Magnús Gunn-
arsson, saksóknari efnahagsbrota
hjá Ríkislögreglustjóra.
Hann segir að þegar hafi komið
í ljós reikningar fyrir rúmlega tíu
milljónir króna. Meira gæti komið
í ljós þegar búið verði að yfir-
fara bókhaldið. Einnig sé verið að
kanna hvort Jóhann hafi sjálfur
gefið út tilhæfulausa reikninga.
Jóhann hefur ekki verið yfir-
heyrður vegna málsins, og mun
það bíða niðurstöðu rannsóknar á
bókhaldinu, segir Helgi. Ekki leik-
ur sérstakur grunur á að hann hafi
átt sér vitorðsmenn.
Sighvatur segir mjög mikið eftir-
lit haft með fjárútlátum stofnunar-
innar. Þjófnaður af þessu tagi eigi
ekki að vera mögulegur, en ekkert
eftirlit sé svo nákvæmt að ekki sé
hægt að blekkja það.
Vegna þessa máls verða regl-
ur og starfsferlar stofnunarinnar
yfirfarnir svo hægt verði að betr-
umbæta það sem fór úrskeiðis,
segir Sighvatur. „Við erum stöðugt
með úttekt á starfsstöðvunum, en
við munum skoða framkvæmdina
á því í kjölfar þessa máls.“
Jóhann hafði unnið hjá stofnun-
inni vel á annan áratug, en lét af
störfum við heimkomuna í janúar.
Sighvatur segir starfslok Jóhanns
ekki tengjast brotum hans.
brjann@frettabladid.is
Talinn hafa dregið
sér yfir tíu milljónir
Fyrrverandi umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar í Mósambík er grun-
aður um fjárdrátt. Hefur viðurkennt brot. Áfall fyrir stofnunina og starfsmenn,
segir framkvæmdastjóri. Allt eftirlit hjá stofnuninni verður yfirfarið í kjölfarið.
MÓSAMBÍK Starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Mósambík hófst árið 1989. Verkefni stofnunarinnar í landinu hafa
verið fjölbreytt, allt frá stuðningi við fiskveiðar og fiskeldi að heilbrigðis- og skólamálum.
pakkinn
Fyrsti
á aðeins
845 krónur!
klubbhusid
.is
528-2000
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
15°
15°
5°
1°
7°
8°
9°
0°
0°
20°
9°
17°
7°
22°
-2°
11°
15°
-5°
Á MORGUN
3-10 m/s,
hægast SA-til.
FIMMTUDAGUR
8-15 m/s A-til ,
annars hægari.
4
3
2
2
-2
-1
-3
4
4
7
7
9
10
6
4
8
3
9
5
9
5-3
2
1 0
1
4 4
-2
-2
-1
4
HLÁNAR
SUNNANLANDS
Snjórinn stoppar
stutt við sunnan
til, í það minnsta á
láglendi. Í dag má
búast við einhverri
hláku enda ætti
hitinn að komast
vel upp fyrir frost-
mark, allra syðst.
Áfram verður vægt
frost norðanlands
í dag og næstu
daga.
Soffía
Sveinsdóttir
Veður-
fréttamaður
SVEITARFÉLÖG Þótt eftirlitsnefnd
með fjármálum sveitarfélaga
ætli ekki að aðhafast í málefnum
Hafnarfjarðar að svo stöddu telur
hún skuldir og skuldbindingar bæj-
arins yfir „þeim mörkum sem talist
getur viðunandi og sveitarfélagið
getur búið við til lengri tíma litið“
eins og segir í bréfi eftirlitsnefnd-
arinnar til bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar.
Í bréfinu er sagt mikilvægt að
vinna markvisst að því að lækka
skuldabyrðina. Bæjarstjórnin er
minnt á að samkvæmt sveitar-
stjórnarlögum sé sveitarstjórn
skylt að gæta þess eins og kostur
er að „heildar útgjöld sveitarfélags,
þar með talin rekstrarútgjöld, fari
ekki fram úr heildartekjum þess“.
Eftirlitsnefndin segist „fylgjast
með framvindu rekstrar og fjár-
hagsáætlunar á næstu mánuðum“
og óskar eftir því að ársreikning-
ur fyrir 2009 verði sem fyrst lagð-
ur fram fyrir 2009. Sömuleiðis vill
hún fá í hendur á þriggja mánaða
fresti reikningsskil sveitarfélagins
með samanburði við fjárhagsáætl-
un. Bréf EFS verður kynnt bæjar-
ráði Hafnarfjarðar síðar í vikunni.
- pg
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sendir Hafnarfirði bréf:
Skuldirnar yfir viðunandi mörkum
BÆJARSTJÓRINN Lúðvík Geirsson þarf
að skila eftirlitsnefndinni reikningsskil-
um bæjarsjóðs á þriggja mánaða fresti
þetta árið.
VIÐSKIPTI Eyrir Invest seldi á
hlutabréfamarkaði í Kaupmanna-
höfn í Danmörku í gær 16,9 millj-
ónir hluta í stoðtækjafyrirtæk-
inu Össuri á genginu 7,25 danskar
krónur á hlut, jafnvirði 170
íslenskra króna. Söluandvirðið
þessu samkvæmt nemur tæpum
2,9 milljörðum króna.
Eftir því sem næst verður kom-
ist var ákveðið að selja hlutinn
ytra þar sem mun meiri hreyfing
á hlutabréfum er þar en hér og
alþjóðlegir fjárfestar sæki í þau.
Eyrir Invest er annar stærsti
hluthafi Össurar. Fyrir söluna
átti hann 18,9 prósenta hlut en
hann fer niður í 15,1 prósent við
söluna. - jab
Eyrir Invest selur hlutabréf:
Fá 2,9 milljarða
í Danmörku
SÓMALÍA, AP Danski tundurspillir-
inn Absalon hefur sökkt sjóræn-
ingjaskipi úti af ströndum Sómal-
íu. Áhöfn sjóræningjaskipsins
var gefinn kostur á að fara í land
áður en því var sökkt.
Sómalska skipið er móðurskip
sem sjóræningjar hafa notað
sem bækistöð, en þaðan hafa þeir
herjað á minni bátum á skip á
siglingaleiðinni fyrir utan strend-
ur Sómalíu. Danska herskip-
ið er á þessum slóðum á vegum
Atlantshafsbandalagsins. - gb
Danska herskipið Absalon:
Móðurskipi sjó-
ræningja sökkt
ÁHÖFN DANSKA TUNDURSPILLISINS
Herskipið Absalon lagði af stað frá Dan-
mörku á sjóræningjaslóðir í ársbyrjun.
NORDICPHOTOS/AFP
KÍNA, AP Áhugi Kínverja er vakn-
aður á þeim tækifærum sem
gefast þegar Norðurskautsleiðin
opnast við bráðnun ísbreiðunnar
þar. Þetta segir Linda Jakobsson
hjá SIPRI, alþjóðlegri rannsókn-
arstofnun í alþjóðastjórnmálum
og öryggismálum.
Hún segir hlutleysi kín-
verskra stjórnvalda gagnvart
Norðurskautinu hafa sætt gagn-
rýni af hálfu kínverskra fræði-
manna. Kínverjar hafi hins
vegar sýnt áhuga á að verða
virkari aðilar að Norðurskauts-
ráðinu, þar sem þeir hafa ein-
göngu fengið að vera áheyrnar-
fulltrúar.
Þótt Kínverjar eigi ekki land
að Norðurskautshafinu hafa
þeir stundað veiðar á norður-
slóðum og hefðu hag af styttri
flutningaleið til Evrópu. - gb
Bráðnun á Norðurskauti:
Áhugi Kínverja
er vaknaður
ORKUMÁL Sérleyfi til rannsókna
og vinnslu á olíu og gasi á Dreka-
svæðinu verða boðin út að nýju á
tímabilinu 1. ágúst til 1. desember
2011 á næsta ári. Fyrra útboðið
fór fram í fyrra, en þau tvö fyrir-
tæki sem buðu í verkið féllu síðar
frá tilboðum sínum.
Í tilkynningu frá iðnaðarráðu-
neytinu kemur fram að stefnt sé
að sýnatöku á svæðinu til að afla
upplýsinga fyrir útboðið. Dreka-
svæðið er hafsvæði á mörkum
íslensku efnahagslögsögunnar
norðaustur af landinu. Talið er að
olíu og gas megi finna undir hafs-
botni, en erfitt er að vinna það
vegna hafdýpis. - bj
Olíuleit á Drekasvæðinu:
Sérleyfi verða
boðin út aftur
SAMGÖNGUR Félagsmenn í Flug-
virkjafélagi Íslands felldu kjara-
samning við Icelandair á félags-
fundi í gærkvöldi. Flugvirkjarnir
fara því í verkfall 22. mars takist
ekki samningar fyrir þann tíma.
Kristján Kristinsson, formaður
samninganefndar félagsins, segir
mikla óánægja með breytingu
sem gera átti á vinnufyrirkomu-
lagi samkvæmt samningnum.
Stuttu verkfalli flugvirkja
sem hófst 23. febrúar var afstýrt
þegar skrifað var undir samning-
ana sem nú hefur verið hafnað. - bj
Flugvirkjar höfnuðu samningi:
Verkfall boðað
semjist ekki
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 01.03.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
229,9574
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,97 128,59
192,24 193,18
174,17 175,15
23,399 23,535
21,595 21,723
17,848 17,952
1,4316 1,44
195,92 197,08
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR