Fréttablaðið - 02.03.2010, Blaðsíða 8
Meðan björgunarsveitir unnu baki
brotnu við að leita að fólki á lífi í
rústum húsa voru hersveitir sendar
til þess að stöðva þjófnað úr versl-
unum á jarðskjálftasvæðunum í
Chile.
Hamfarirnar bitnuðu illa á
íbúum borgarinnar Concepcion,
sem er næststærsta borg lands-
ins. Nokkur sjávarþorp urðu einn-
ig mjög illa úti, og nánast jöfnuðust
við jörðu eftir að hafa fyrst orðið
fyrir jarðskjálftanum snemma á
laugardagsmorgun og síðan mik-
illi flóðbylgju sem skjálftinn hratt
af stað.
Krafturinn í flóðbylgjunni var
það mikill að heilu húsin lyftust af
grunni og bárust lengra inn á land-
ið, en önnur hús molnuðu hreinlega
í sundur.
Francisco Vidal, varnarmála-
ráðherra landsins, viðurkenndi að
það hefðu verið mistök að gefa ekki
þegar í stað út flóðaviðvörun eftir
skjálftann, því aðeins hálftími leið
frá skjálftanum þangað til flóð-
bylgjan skall af fullum krafti á
strandbyggðunum.
Alls er talið að ein og hálf milljón
heimila hafi skemmst illa eða
gjöreyðilagst. Í gær var staðfest
að rúmlega sjö hundruð lík væru
fundin, en talið var fullvíst að sú
tala myndi hækka verulega.
Skjálftinn mældist 8,8 stig og
telst með þeim allra stærstu sem
orðið hafa það sem af er þessari
öld.
Tíðir eftirskjálftar töfðu björg-
unarstörf og urðu til þess að fjöldi
fólks hafðist frekar við úti á götum
en inni í húsum, sem þó höfðu
sloppið óskemmd.
„Ef maður er inni í húsinu sínu
þá hreyfast húsgögnin úr stað,“
sagði Monica Aviles, kona sem
hafði vafið sig þykku sjali til að
verjast kuldanum þar sem hún sat
við eld sem kveiktur hafði verið úti
á götu skammt frá heimili hennar.
gudsteinn@frettabladid.is
8 2. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Hamfara-
svæðin
C H I L E
A
R
G
E
N
T
ÍN
A
A
N
D
E
S
F
J
Ö
L
L
300 km 100 km
Constitucion
350 manns
fórust í þorpi
sem varð bæði
fyrir jarðskjálfta
og flóðbylgju
VERSTA
SKJÁLFTA-
SVÆÐIÐ
Upptök skjálftans
Ky r r a h a f
Curico: Um 90
prósent gamla mið-
bæjarins eyðilögðust
Maule: Útgöngu-
bann að næturlagi
í héraðinu og borg-
inni Concepcion
Concepcion:
Næststærsta borg
landsins varð verst úti.
Björgunarsveitir vinna
baki brotnu en herinn
sendur til að stöðva
óeirðir og gripdeildir.
Temuco
Chillan
M A U L E
B I O B I O
Rancagua
Santíagó
MendozaColina
C H I L E A R G E N T Í N A
Valparaiso
Heimildir: USGS, Eqecat
JARÐSKJÁLFTARNIR Í CHILE
Nokkur sjávarþorp
jöfnuðust við jörðu
Sífelldir eftirskjálftar gera það að verkum að íbúar jarðskjálftasvæðanna í Chile
þora ekki annað en að hafast við úti á götu, þótt kalt sé á næturnar. Skjálftinn
varð að minnsta kosti 700 manns að bana og eyðilagði 1,5 milljónir heimila.
KOMU SÉR FYRIR ÚTI Á GÖTU Þessir tveir menn í borginni Talcahuano fengu sér sopa úti á götu þar sem eyðileggingin blasir við.
NORDICPHOTOS/AFP
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, sendi í gær sam-
úðarkveðju til Michelle Bachel-
et, forseta Chile, fyrir sína hönd
og íslensku þjóðarinnar vegna
jarðskjálftanna í landinu.
Í tilkynningu frá embætti for-
setans kemur fram að í kveðjunni
hafi Ólafur lýst þeirri von sinni að
samstaða Chilebúa og alþjóðlegur
stuðningur muni draga úr hörm-
ungum sem jarðskjálftarnir
hafi haft í för með sér. Hugur
Íslendinga sé með fjölskyldum
og vinum þeirra sem látist hafi í
skjálftunum. - bj
Samúðarkveðjur frá forsetanum og íslensku þjóðinni:
Samstaða dragi úr hörmungunum
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON Forseti
segir hug þjóðarinnar vera hjá fórnar-
lömbum jarðskjálftans.
Rauði kross Íslands hefur ákveð-
ið að senda þrjár milljónir króna
til neyðaraðgerða í kjölfar jarð-
skjálftans í Chile nú um helgina.
Alþjóða Rauði krossinn hefur
þegar veitt 360 milljónum króna
úr neyðarsjóði sínum og Rauði
krossinn í Chile hefur hrint af
stað fjáröflun til aðstoðar fórnar-
lömbum hamfaranna.
Hægt er að styðja hjálpar-
starfið í Chile með því að leggja
inn á reikning Rauða krossins
í banka 0342, hb. 26, reikn. 555,
kt. 530269-2649, eða greiða með
kreditkorti.
Rauði krossinn í Chile hefur
unnið sleitulaust frá því jarð-
skjálftinn reið yfir að björgun
úr rústum, aðhlynningu slas-
aðra og dreifingu hjálpargagna.
Rauði krossinn hefur gríðar-
lega mikla reynslu af viðbrögð-
um vegna jarðskjálfta og ann-
arra náttúruhamfara og hefur
mikilvægu hlutverki að gegna í
almannavörnum landsins.
Systurfélög Rauða krossins í
Suður-Ameríku og Alþjóða Rauði
krossinn eru reiðubúinn að senda-
hjálparstarfsmenn og hjálpargögn
á vettvang með litlum fyrirvara.
Rauði kross Íslands hefur beðið
sendifulltrúa sína að vera í við-
bragðsstöðu vegna hamfaranna
komi beiðni um aðstoð.
Rauði kross Íslands veitir fólki
sem misst hefur samband við ást-
vini í Chile einnig aðstoð með sál-
rænum stuðningi og hjálp við að
nýta leitarþjónustu Alþjóða Rauða
krossins.
Enn er gífurleg þörf á neyðar-
aðstoð á Haítí í kjölfar jarðskjálft-
ans sem þar varð fyrir sex vikum.
Tólf hjálparstarfsmenn frá Rauða
krossi Íslands hafa verið þar að
störfum og enn þá eru átta sendi-
fulltrúar á svæðinu, einkum
hjúkrunarfólk. - gb
Brugðist við hamförunum í Suður-Ameríku:
Rauði Kross Íslands
sendir fé til Chile
Ekkert amar að tveimur
íslenskum starfsmönn-
um Landhelgisgæslunnar
(LHG) og fjórum dönskum
sérfræðingum sem voru á
hennar vegum í borginni
Concepcion í Chile þegar
jarðskjálftinn dundi yfir
á laugardag.
Mennirnir hafa komið
sér fyrir heima hjá einum
af Dönunum, segir Georg
Lárusson, forstjóri Landhelgis-
gæslunnar.
„Þeir kvarta ekki nema undan
matarleysi, en það er rafmagns-
og vatnslaust í borginni,“ segir
Georg. Hann náði sambandi við
Ragnar Ingólfsson, annan starfs-
manna gæslunnar, og einn af
dönsku sérfræðingunum í gær.
„Þeir eru uggandi yfir fréttum
af ræningjahópum sem fara um
borgina,“ segir Georg. Mennirn-
ir hafi sagt sér að þeir hafi orðið
sér úti um vopn til að verjast, þó að
vonandi muni ekki reyna á það.
„Mér skilst að það sé skálmöld í
Concepcion. Í útjaðri borgarinnar
eru stór fátækrahverfi þar sem allt
er í rúst, og fólkið reynir hvað sem
er til að bjarga sér,“ segir Georg.
Hann segir mennina ekki hafa
heimildir til að beita vopnunum, en
eðlilega hljóti þeir að íhuga það í
algerri sjálfsvörn. „Það er neyðar-
ástand og spurning um að lifa af,“
segir Georg.
Mennirnir áttu bókað flug frá
Chile í gær. Þegar þeir komu á flug-
völlinn var hann lokaður. Ómögu-
legt er að fá bensín á ökutæki,
og komast mennirnir því
hvorki lönd né strönd.
Verið var að smíða nýtt
varðskip Landhelgis-
gæslunnar í skipasmíða-
stöð sjóhersins í Chile í
Concepcion þegar skjálfta-
hrinan hófst. Georg segir
að enn hafi enginn feng-
ið að fara um borð í skip-
ið þar sem það sé á hættu-
svæði.
Ekki er ljóst hversu mikið tjón
hafi orðið í skjálftanum. Vitað er
að flóðbylgjur skullu á skipinu og
það féll niður í skipasmíðastöðinni.
Um 30 gráðu halli er á skipinu og
er óttast að sjór hafi komist í vél-
arrúmið. Það getur haft alvarlegar
afleiðingar enda hefur ekki verið
gengið frá raflögnum og stýri-
tækjum, segir Georg.
„Ég er bjartsýnn á að ekki sé
um stórkostlegar skemmdir að
ræða,“ segir Georg. Eftir að hafa
farið yfir samninga um smíðina
með lögfræðingi segir hann það
skilning Landhelgisgæslunnar
að skipasmíðastöðin beri ábyrgð
á tjóninu, og íslenska ríkið verði
því ekki fyrir fjárhagslegu tjóni.
Skipasmíðastöðin er í eigu sjóhers
Chile og þar með í ríkiseigu.
Viðbúið er að afhendingu skips-
ins seinki talsvert vegna tjóns-
ins, mögulega um sex mánuði eða
meira. Georg segir að samkvæmt
sínum upplýsingum sé skipasmíða-
stöðin gersamlega í rúst. Líklega
þurfi að draga skipið í aðra skipa-
smíðastöð til að ljúka smíðinni.
- bj
Starfsmenn LHG ekki skoðað tjón á nýju varðskipi:
Bíða þess vopnaðir
að komast á brott
GEORG LÁRUSSON
VARÐSKIP Nýtt varðskip Landhelgisgæslunnar skemmdist í jarðskjálfta á laugar-
daginn. Talið er að það geti seinkað afhendingu skipsins. MYND/LANDHELGISGÆSLAN