Fréttablaðið - 02.03.2010, Page 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Eva Margrét Einarsdóttir, hug-
búnaðarsérfræðingur hjá Íslands-
banka, hefur æft langhlaup í nokk-
ur ár. Nýlega gekk hún til liðs við
hlaupahóp sem stofnaður er að
frumkvæði fyrirtækisins Sportís
með það að leiðarljósi að auka veg-
ferð þessarar stækkandi íþróttar
á Íslandi.
„Þetta er í fyrsta sinn sem
styrktaraðili á Íslandi smalar
reyndum hlaupurum úr gras-
rótinni saman í hóp, en auðvit-
að eru fjölmörg dæmi þess að
afreksíþróttamenn séu styrkt-
ir með þessum hætti,“ segir Eva
og bætir við að góð reynsla og
árangur hafi ráðið vali á meðlim-
um hópsins, sem samanstendur af
fimm körlum og þremur konum
sem eru öll þekkt innan hlaupa-
heimsins hérlendis.
Sjálf náði Eva langt í Kaup-
mannahafnar-maraþoninu árið
2008, með þrjá tíma og níu mín-
útur sem er fimmti besti tími
íslenskrar konu frá upphafi. Sama
ár vann hún Laugavegshlaupið í
flokki kvenna. Hún kveður þennan
árangur hafa vakið athygli Sport-
ís-manna á henni. „Upp frá því
buðu þeir mér styrktarsamning
og sömuleiðis Birgi Sævarssyni,
sem hefur meðal annars náð besta
árangri karla í maraþoni hérlendis
síðustu ár. Þannig kviknaði hug-
myndin að stofna hlaupahóp.“
Hópurinn mun á árinu taka þátt
í margvíslegum hlaupaviðburð-
um og keppa sem liðsheild undir
merkjum íþróttavöruframleiðand-
ans Asics sem Sportís er umboðs-
aðili fyrir á Íslandi. „Hluti hópsins
fer til að taka þátt í maraþoninu
í París í apríl og svo munu sum
okkar keppa í ýmsum maraþon-
um,“ tekur Eva sem dæmi og bætir
við að Sportís greiði götuna fyrir
liðsmönnum með því að sjá þeim
fyrir öllum íþróttabúnaði út árið.
„Það er mjög þægilegt að þurfa
ekki að hafa áhyggjur af fatnað-
inum og búnaðinum sem er mjög
dýr og geta þess í stað einbeitt sér
að sjálfu sportinu,“ segir hún glöð
í bragði.
Hægt verður að fylgjast með
æfingum og afrekum Asics-liðsins
á Hlaupadagbókinni á vefslóðinni
www.hlaup.com og www.asicsli-
did.com. Þar verður einnig hægt
að afla sér upplýsinga um einstaka
liðsmenn sem skiptast á að skrifa
hugleiðingar sínar, mataræði og
þau markmið sem hópurinn hefur
einsett sér að ná. roald@frettabladid.is
Úrvalshlauparar í einu liði
Eva Margrét Einarsdóttir er meðlimur í Asics-liðinu, nýlega stofnuðum hlaupahópi sem samanstendur af
hlaupurum sem allir þykja hafa náð eftirtektarverðum árangri í þessari ört vaxandi íþrótt á Íslandi.
Frá því að Eva fór að æfa langhlaup fyrir átta árum hefur hún náð góðum árangri. Hún varð meðal annars fyrst í flokki kvenna í
Laugavegshlaupinu árið 2008, með fimm tíma og 42 mínútur. Sama ár náði hún fimmta besta árangri íslenskra kvenna frá upp-
hafi í Kaupmannahafnar-maraþoninu með þrjá tíma og níu mínútur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÍÞRÓTTAKENNARAFÉLAG ÍSLANDS efnir til
málþings um íþróttir og íþróttakennslu í framhaldsskól-
um á Íslandi. Málþingið verður í húsakynnum HR við
Menntaveg 1 hjá Nauthólsvík á morgun frá 13 til 16.15.
Sjá www.ikfi.net.
Tímapantanir 534 9600
Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur www.heyrn.is
* Tal fólks í margmenni
* Hjal smábarns
* Marr í snjónum
Ertu að fara á mis við hljóð sem skipta miklu máli?
GRÍPTU TIL ÞINNA RÁÐA
Láttu sérmenntaðan
heyrnarfræðing mæla
heyrnina og fáðu faglega
ráðgjöf.
– Lifið heil Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
4
92
84
0
2/
10
Otrivin
tveir í einum
- fjölskyldupakki
8% ódýrari
1.234 kr.
Nicotinell Mint
2 mg, 300 stk.
19% ódýrara
en 204 stk. pakkning
með myntubragði miðað
við hvert tyggjó.
8.127 kr.
Láttu þér líða vel í sófa frá Patta
226.710
kr
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
Patti húsgögn
Landsins mesta úrval af sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is