Fréttablaðið - 02.03.2010, Qupperneq 20
2. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR4
SÆNGUR BARNA ættu ekki að vera of
þungar eða stórar. Þá er nauðsynlegt að
viðra sængina reglulega og helst láta
hreinsa hana eftir þörfum.
„Áhuginn á útsaumi hefur reynd-
ar alltaf verið til staðar og aldrei
horfið,“ segir Alda Sigurðardótt-
ir, eigandi Alvörubúðarinnar á
Selfossi, en hún teiknar munstur á
vöggusett til að sauma út. „Algeng-
ast er að ömmurnar saumi út en
það er líka alltaf eitthvað um það
að stúlkurnar saumi sjálfar.“
Alda hefur teiknað munstur á
vöggusett í tuttugu ár en hún er
myndlistarmaður að mennt og
ólst upp við handavinnu á heimili
ömmu sinnar. Einnig hefur móðir
Öldu rekið Hannyrðabúðina, sem
nú er í Hveragerði, í rúm fjörutíu
ár og fór Alda snemma að teikna
fyrir hana munstur. „Ég bý bæði
til munstur sjálf en eins hef ég
unnið upp úr gömlum munstrum.
Sömu munstrin hafa verið gegn-
umgangandi á vöggusettin þessi
tuttugu ár þótt eitthvað hafi bæst
við. „Sofðu rótt“ er alltaf mjög
vinsælt. Við seljum efnið niður-
klippt með teiknuðum útlínum,
svo verður fólk að bródera sjálft
og sauma rúmfötin saman. Þetta
kallast áteiknuð handavinna og
er fyrir frjálsan útsaum. Algengt
er að sauma munstrin út með
kontórsting eða flatsaumi, lykkju-
spori og kappmellu.“
Alda opnaði Alvörubúðina á Sel-
fossi fyrir sjö árum en auk þess
að útbúa vöggusett til útsaums
framleiðir Alvörubúðin marg-
ar gerðir af handavinnupökkum
sem byggja á gömlum íslenskum
munstrum og hefðum. Ullarvörur
eftir handverksfólk úr nágrenninu
er einnig að finna í hillunum svo
og indverskt handverk sem Alvöru-
búðin flytur sérstaklega inn. Hægt
er að skoða þau munstur sem í boði
eru á heimasíðunni www.alvara.is.
Eins er tekið við pöntunum gegn-
um heimasíðuna. heida@frettabladid.is
Sofðu rótt á svæflinum
Falleg ver eru vinsæl sængurgjöf og hlýleg. Útsaumuð vöggusett eftir ömmur og langömmur ganga
gjarnan í erfðir og þykja gersemi enda liggur talsverð vinna bak við saumsporin.
Alda Sigurðardóttir segir áhugann á útsaumi aldrei hafa
horfið. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Algengt er að sauma munstrin með lykkjuspori og kontórsting eins og hér sést eða
með flatsaum og kappmellu. MYND/ALDA SIGURÐARDÓTTIR
Hrönn Vilhelmsdóttir textílhönnuður sýnir þróun verka sinna
á Kaffi Loka, Lokastíg 28, og í vinnustofu sinni á annarri hæð í
sama húsi dagana 5. til 31. mars. Hrönn hefur hannað og hand-
málað sængurver, púða, rúmteppi o.fl. fyrir þúsundir íslenskra
barna og foreldra þeirra í 20 ár.
Á sýningunni verða gömul og margnotuð ver/verk sett í sam-
hengi við það nýjasta sem Hrönn er að gera í dag. Efnistök og
stíll hafa þróast mikið þó sterk einkenni hönnuðar hafi komið
snemma fram.
Vinnustofan verður opin gestum í mars, meðan á sýningu
stendur. Hægt verður að sjá hvernig hlutirnir verða til, skoða
gömul munstur og myndir og spjalla við hönnuðinn. Hönnunar-
saga Hrannar er uppfull af litríkum textíl sem hefur fylgt fólki
og fjölskyldum í 20 ár. Margir eiga sögur um sængurverið eða
púðann sem barnið tók ástfóstri við og vill Hrönn gjarnan fá að
heyra sögur frá viðskiptavinum sínum.
Kaffihúsið Loki er opið frá 10 til 18 á virkum dögum og laugar-
dögum en frá 12 til 18 á sunnudögum.
Tuttugu ár í textíl
TEXTÍLHÖNNUÐURINN HRÖNN VILHELMSDÓTTIR HELDUR SÝN-
INGU Á GÖMLUM OG NÝJUM VERKUM Í KAFFI LOKA Í MARS.
Hrönn Vilhelmsdóttir textílhönnuður.
Fermingartilboð
20% afsláttur af hágæða gæsadúnsængum
Fatabúðin • Skólavörðustíg 21 • sími 551 4050
Glæsileg fermingartilboð
Dún og fiður • Laugavegi 87
101 Reykjavík • sími 511 2004
Handmáluð og þrykkt
rúmföt í 20 ár.
Íslensk hönnun og handverk fyrir alla fjölskylduna
Yndisleg bómull sem þolir mjög vel allan þvott.
Hönnun Hrannar Vilhelmsdóttur
Textíll • Lokastíg 28 • www.textil.is
Sængurverasett frá Småfolk
Falleg og tilvalin gjöf fyrir fermingarbarnið
Bíbí & blaka • Þönglabakka 6
109 Reykjavík • www.bibiogblaka.is
Alda hefur saumað munstur á vöggusett í tuttugu ár.
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447
Föstudaga