Fréttablaðið - 02.03.2010, Blaðsíða 34
18 2. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
„Þetta eru umbrotatímar en jafn-
framt spennandi tími til að taka við
þessu starfi,“ segir Hrafnhildur
Gunnarsdóttir, nýskipaður formaður
Félags kvikmyndagerðarmanna. Ný
stjórn var mynduð á aðalfundi félags-
ins fyrir skömmu en fráfarandi for-
maður, Hjálmtýr Heiðdal, hafði gegnt
starfinu í þrjú ár þar á undan.
Að sögn Hrafnhildar hefur af ein-
hverjum ástæðum vantað nokkuð upp
á samstöðu hjá íslenskum kvikmynda-
gerðarmönnum undanfarin ár. „Hags-
munir hafa rekist dálítið á, en núna
eru kvikmyndagerðarmenn nokkuð
samstiga í fyrsta skipti í langan tíma.
Það er mjög ánægjuleg þróun sem ég
held að megi rekja í átt til kreppunn-
ar og yfirlýsinga Páls Magnússonar
um niðurskurð á kaupum á íslenskum
kvikmyndum,“ segir Hrafnhildur.
Hún segir smæð landsins lengi
hafa gert það að verkum að gerð
kvikmynda hafi verið ákveðin
einyrkja starfsemi. Fólk hafi þurft
að ganga í mörg störf tengdum verk-
um sínum, sem sé ekki hollt til lengd-
ar. „Undanfarin ár hefur bransinn
loksins komist á iðnaðarstig og er að
verða sambærilegur við það sem ger-
ist í Evrópu og víðar. Þess vegna er
heldur súrt að þurfa skyndilega að
setja sig í einhverjar kreppustelling-
ar,“ segir Hrafnhildur og vísar þar til
fyrirhugaðs niðurskurðar hins opin-
bera til kvikmyndagerðar. Hún tekur
sem dæmi að Þjóðleikhúsið þurfti að
sæta mun minni niðurskurði, sem
kvikmyndagerðarmenn séu ósátt-
ir við. „Við lítum á kvikmyndir sem
leikhús fólksins. Þær fara víðar og
fleiri hafa tækifæri til að berja þær
augum. Við erum ósátt við að vera
sett á höggstokkinn.“
Mörg brýn verkefni bíða nýrrar
stjórnar félagsins, að sögn Hrafnhild-
ar. „Það er mjög mikilvægt að þrýsta
á endurskoðun á málefnum RÚV,
stofnunar sem við erum í miklum
samskiptum við. Yfirstjórn RÚV er
enn pólitískt skipuð og nauðsyn fag-
legrar stjórnar þar er mikil. Þá viljum
við að Kvikmyndamiðstöð Íslands þró-
ist áfram og viljum beita okkur fyrir
því að fjármagnið sem kemur inn í
geirann frá miðstöðinni verði ekki
skert frekar.“
Um þrjú hundruð eru skráðir í
Félag kvikmyndagerðarmanna í dag.
Hrafnhildur segir eitt af því góða við
kreppuna vera það að stéttarvitund
fólks lifni við svo um munar. „Á síð-
ustu mánuðum höfum við fengið um
áttatíu nýja meðlimi í félagið, en marg-
ir hafa áhyggjur af réttindum sínum.
Það er í okkar verkahring að skoða
hvort við getum ekki aðstoðað við mál-
efni fagfólksins okkar, ljósamanna,
hljóðmanna og fleiri, sem oft þurfa að
vinna langar vinnustundir við aðstæð-
ur þar sem öryggi er ábótavant,“ segir
Hrafnhildur. kjartan@frettabladid.is
FÉLAG KVIKMYNDAGERÐARMANNA: SKIPAR NÝJAN FORMANN OG STJÓRN
Stéttarvitund aukist til muna
NÝR FORMAÐUR „Við lítum á kvikmyndir sem leikhús fólksins,“ segir Hrafnhildur Gunnarsdóttir. Hér er hún ásamt hundi sínum, Jöklu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á þessum degi árið 1963 kom fyrsta
stóra plata Bítlanna út á vegum
plötufyrirtækisins Parlaphone. Plat-
an, sem ber titilinn Please, Please
Me eftir samnefndu lagi sem gefið
var út á smáskífu í byrjun árs 1963,
náði toppsætinu á breska vinsælda-
listanum í maí og hélt því sæti
í heilar þrjátíu vikur. Platan sem
leysti Please, Please Me af hólmi í
toppsætinu var önnur plata Bítlanna,
With the Beatles.
Smáskífan með laginu Please, Please Me var
önnur smáskífa Bítlanna en sú fyrsta var Love
Me Do. Please, Please Me tyllti sér á topp breska
smáskífulistans 22. febrúar 1963 og í kjölfarið
ákvað Parlaphone að hraða
útkomu fyrstu stóru plötunnar til
að nýta sér hinar miklu vinsældir
smáskífunnar. George Martin,
upptökustjóri Bítlanna, íhugaði að
hljóðrita plötuna fyrir framan áhorf-
endur í hinum fræga Cavern Club í
Liverpool, hljómleikastaðnum þar
sem Bítlarnir slitu barnsskónum.
Slíkt reyndist ekki hægt vegna
tæknilegra flækna og því bókaði
Martin sveitina í EMI-hljóðverið í London, sem
síðar var endurnefnt Abbey Road, þar sem hljóð-
rituð voru tíu lög á tæplega tíu klukkustundum.
Alls eru fjórtán lög á plötunni, en fjögur þeirra
höfðu áður komið út á smáskífum.
ÞETTA GERÐIST: 2. MARS 1963
Fyrsta LP-plata Bítlanna gefin út
PLEASE PLEASE ME
JON BON JOVI ER 48 ÁRA Í DAG
„Velgengni er að detta níu
sinnum en rísa aftur upp
tíu sinnum.“
Tónlistarmaðurinn og leik-
arinn Jon Bon Jovi fæddist í
New Jersey-ríki Bandaríkj-
anna árið 1962. Hljómsveitin
Bon Jovi, sem hann stofnaði
árið 1983, hefur notið mikilla
vinsælda æ síðan með lögum
á borð við Livin‘ On a Prayer,
You Give Love a Bad Name,
Blaze of Glory og It‘s My Life.
MERKISATBURÐIR
1855 Alexander II. verður keis-
ari í Rússlandi.
1956 Bandarísk herflutninga-
flugvél ferst með sautj-
án mönnum djúpt úti af
Reykjanesi.
1982 Bíóhöllin í Reykjavík tekur
til starfa.
1985 Kraftlyftingasamband Ís-
lands er stofnað.
1995 Yahoo! verður hlutafélag.
2003 Pakistönsk yfirvöld hand-
sama Khalid Shaikh Mo-
hammed sem var álit-
inn vera heilinn á bak
við árásina á Tvíburaturn-
ana í New York-borg og
Pentagon í Washington
11. september 2001.
Sauðfé, hlýri, hross og geit, er yfir-
skrift sýningar Ragnars G. Einars-
sonar á bókbandsverki. Sýningin er á
skörinni hjá Handverki og hönnun að
Aðalstræti 10 og var opnuð 26. febrúar
síðastliðinn.
Á sýningunni gefur að líta fjölbreytt-
ar bækur sem Ragnar hefur bundið inn
á undanförnum árum.
Bókband er gamalgróin iðngrein sem
á sér langa sögu. Hún byggist á vönd-
uðu handverki þar sem rétt handbragð
og auga fyrir formfegurð ráða ferðinni.
Listbókband er hreint handverk sem í
mörgu styður sig við sömu markmið
og aðrar listgreinar. Skilin milli hand-
verks og listar eru því óljós þar sem
greinarnar styðja hvor aðra.
Ragnar nam bókband í Iðnskólanum
í Reykjavík og í Hólabókbandi. Hann
lauk meistaraprófi árið 1972.
Sýningin stendur til 15. mars og er
opin alla virka daga frá kl. 9 til 18 og
frá 12 til 17 um helgar.
Bókband á skörinni
FALLEGT BÓKBAND Snorra-Edda bundin í
geitarskinn.
Ástkær sonur okkar og bróðir,
Ríkharður Líam
Róbertsson (Rikki)
lést í Gautaborg í Svíþjóð 19. febrúar. Jarðarförin fer
fram frá Bifrostkirkjunni í Mölndal, Svíþjóð, föstudag-
inn 12. mars kl. 15.00. Minningarathöfn verður haldin
í Áskirkju, miðvikudaginn 31. mars kl. 12.00.
Vigdís Hansdóttir Lars-Peter Sörensen
Robert A. H. Downey Ingigerður Hjaltadóttir
Tómas Róbertsson Nickila Robertsson
Árni Hreiðar Róbertsson Sigríður Hermannsdóttir
Róbert Róbertsson Ingigerður Jónasdóttir
Vilhjálmur Róbertsson
Fréttablaðið býður nú upp
á birtingu æviminninga á
tímamótasíðum blaðsins.
Hafið samband í síma
512 5490-512 5495 eða sendið
fyrirspurnir á netfangið
timamot@frettabladid.is
Æviminning
Gísli Eirík
ur Helgaso
n
Laugateigi 7
2, Reykjavík
Gísli Eirík
ur Helgaso
n fæddist
í
Reykjavík
1. janúar 1
931. Hann
lést á Hraf
nistu í Ha
fnarfirði 1
2.
janúar síð
astliðinn.
Foreldrar
hans
voru Guðr
ún Jónsdót
tir frá Þing
eyri
í Dýrafirði
f. 1917, d.
1988, og H
elgi
Gíslason fr
á Ísafirði,
f. 1915, d.
1970.
Gísli Eirík
ur bjó fyrs
tu æviár sí
n í
Reykjavík
en fluttist
eftir það v
estur
til Ísafjarð
ar með for
eldrum sín
um
og systkin
um.
Systkini G
ísla Eiríks
eru Jón
Hannes, f.
1933, Sigrí
ður Ása, f.
1936 og G
uðmundur
, f.
1941.
Eiginkona
Gísla Eirí
ks er Marg
rét Magnú
sdóttir hjúk
r-
unarfræði
ngur, f. 4.
apríl 1937
. Þau geng
u í hjóna-
band árið
1960. Börn
Gísla Eirí
ks og Mar
grétar eru:
1) Magnús
kennari, f
. 1.5. 1972
, kvæntur
Guðbjörgu
Björnsdótt
ur kennara
, f. 30.11. 1
971. Börn
þeirra eru
Margrét, f.
17.2. 1997
og Björn J
óhann, f. 2
0.1. 1999.
2) Helgi tæ
knifræðin
gur, f. 18.6
. 1975, í sa
mbúð með
Jórunni Dr
öfn Ólafsdó
ttur leiksk
ólakennar
a, f. 15.2.
1975. Þeir
ra dóttir e
r Þórunn Á
sta, f. 24.12
. 2001. 3)
Guðrún læ
knir, f. 14.
11. 1979, í
sambúð m
eð Þór
Halldórssy
ni stjórnm
álafræðing
i, f. 6.6. 19
80.
Gísli Eirík
ur lauk sk
yldunámi
á Ísafirði e
n hélt suð
ur
til Reykjav
íkur 17 ára
gamall til
að nema h
úsasmíði.
Húsasmíð
ar urðu æv
istarf hans
. Framan a
f starfsæv-
inni vann
hann á Tré
smíðaverk
stæðinu Fu
ru en eftir
að
hafa fengi
ð meistara
réttindi í i
ðn sinni st
ofnaði han
n
sitt eigið f
yrirtæki, G
ísli, Eiríku
r, Helgi, se
m hann át
ti
og rak þar
til fyrir fá
einum áru
m.
Stangveið
i var aðalá
hugamál G
ísla Eiríks
alla tíð
og sinnti h
ann meða
l annars tr
únaðarstö
rfum fyrir
Stangveið
ifélag Reyk
javíkur.
Útför Gísla
Eiríks fer
fram í dag
kl. 13.00 í
Fossvogskir
kju.
G
1
s
gason
æddist í
Hann
firði 12.
drar hans Þingeyri , og Helgi5, d. 1970. ár sín í
að ve tur m sínum
ur, f.
úkr-
u:
u
ð
ur
ð
Gísli Eiríkur HelgasonTrésmíðameistariGísli Eiríkur Helgason fæddist í Reykjavík 1. janúar
1931. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. janúar
síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir frá
Þingeyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og Helgi Gíslason
frá Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eiríkur bjó fyrstu
æviár sín í Reykjavík en fluttist eftir það vestur til
Ísafjarðar með foreldrum sínum og systkinum.
Systkini Gísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigríður
Ása, f. 1936 og Guðmundur, f. 1941.
Eiginkona Gísla Eiríks er Margrét Magnúsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, f. 4. apríl 1937. Þau gengu í hjóna-
band árið 1960. Börn Gísla Eiríks og Margrétar eru:
1) Magnús kennari, f. 1.5. 1972, kvæntur Guðbjörgu
Björnsdóttur kennara, f. 30.11. 1971. Börn þeirra eru
Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn Jóhann, f. 20.1. 1999.
2) Helgi tæknifræðingur, f. 18.6. 1975, í sambúð með
Jórunni Dröfn Ólafsdóttur leikskólakennara, f. 15.2.
1975. Þeirra dóttir er Þórunn Ásta, f. 24.12. 2001. 3)
Guðrún læknir, f. 14.11. 1979, í sambúð með Þór
Halldórssyni stjórnmálafræðingi, f. 6.6. 1980.
Gísli Eiríku lauk skyldunámi á Ísafirði en hélt suður
til Reykjavíkur 17 ára gamall til að nema húsasmíði.
Húsasmíðar urðu ævistarf hans. Framan af starfsæv-
inni vann hann á Trésmíðaverkstæðinu Furu en eftir að
hafa fengið meistararéttindi í iðn sinni stofnaði hann
sitt eigið fyrirtæki, Gísli, Eiríkur, Helgi, sem hann átti
og rak þar til fyrir fáeinum árum.
Stangveiði var aðaláhugamál Gísla Eiríks alla tíð
og sinnti hann meðal annars trúnaðarstörfum fyrir
Stangveiðifélag Reykjavíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskirkju.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður B. Sigurðsson
lést að Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, 22. febrúar sl.
Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn
3. mars kl. 14.00.
Svavar Sigurðsson
Bogi Sigurðsson
Enrique Llorens Izaguirre Auður Finnbogadóttir
Gunnar Sigurðsson Sigríður Guðmundsdóttir
Sigrún Sigurðardóttir Hörður Ó. Helgason
Sigurður Rúnar Sigurðsson Rósa Finnbogadóttir
Ómar Sigurðsson Una Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur bróðir okkar og mágur,
Einar Hreiðar Árnason
verkfræðingur,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn 28.
febrúar.
Árni Hreiðar Árnason Jytte Inge Árnason
Rannveig Árnadóttir
Ólafur Hreiðar Árnason Magnúsína Guðmundsdóttir
Margrét Steingrímsdóttir