Fréttablaðið - 02.03.2010, Side 36

Fréttablaðið - 02.03.2010, Side 36
20 2. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott Medúsa heimsækir Indland... Jahérna! Loks- ins er maður orðinn meðlim- ur í leynilegu ofurhetjufélagi! Nú verð ég að vera tilbúinn í verkefni sem krefjast allra styrkleika minna: gáfna, styrks og sniðugheita! Alveg eins og venjulega, sem sagt! Palli, viltu gera það fyrir mig að hægja fyrr á þér áður en þú kemur að stöðvunar- skyldu. Hefurðu alltaf verið svona bílhrædd, eða er þetta eitthvað nýtt? SÍGILT BARNALÁN Það er fimm ára afmæli hjá Klemens í dag. Teiknaðu fimm kerti á kökuna hans. Hver er Klemens? Krakkinn í orðagátunni. Ég þekki engan Klemens. Klemens er ekki til í alvörunni... hann er bara búinn til fyrir þessa æfingu. Nú, ef þetta er ekki kakan hans Klem- ensar, hver á hana þá? Ég teikna ekki kerti á köku fyrr en ég veit hver á hana! Ég held að það sé komið nóg af heima- námi í kvöld. Ég vissi ekki að stærð- fræði væri svona lúmsk grein. BAKÞANKAR Hólmfríður Helga Sigurðardóttir Það var með trega í hjarta sem ég stóð í dyrunum heima hjá mér á sunnudaginn með hvítan vasaklút í hendi og veifaði á eftir svila mínum. Eins og svo margir aðrir er hann farinn til hins nýja fyrirheitna lands Íslendinga – Noregs. Þangað ætlar hann líka að hrífa ástkæra mágkonu mína með sér, þegar líða tekur á árið. ÞAÐ er sjálfsvorkunn Gýpu sem veldur ógleði minni. Svili minn er nefnilega ekkert venjulega góður kokkur. Drekk- hlaðið borð af framandi réttum full- komlega framreiddum á ég ekki von á að sjá aftur fyrr en eftir nokkra mánuði. Það þykir mér miður, enda kann ég vel að meta góðan mat sem aðrir hafa fyrir að útbúa. FLEIRA kemur reyndar til, enda eru þau mörgum fleiri kostum búin, hjónaleysin, en að kunna að halda frábærar veislur. Til dæmis dýrka börnin í stórfjölskyldunni þau og vildu örugglega helst fá að skipta og eiga þau fyrir foreldra. Og litla systirin er límið sem heldur syst- kinahópnum saman. Strákarnir sem eftir verða mega hafa sig alla við að halda bræðralaginu eftir brotthvarf hennar. ÞETTA verður sannarlega dapurlegt líf fyrir okkur sem heima höngum. Fyrir kærustuparsins hönd er mér hins vegar ekk vorkunn í huga. Hans bíður spennandi vinna, góð laun og stuttur vinnutími. Henn- ar sérhæft framhaldsnám sem okkar litlu háskólar hafa ekki burði til að bjóða sjálfir. Saman fá þau nú nýjar götur til að mæla, vini til að bæta í safnið, perlur til að upp- götva og vonandi bara örfáar hindranir til að sigrast á. UM daginn var ég að hlusta á einhvern þjóðmálaþáttinn í útvarpinu. Inn hringdi kona, stórhneyksluð á öllu því fé sem okkur Íslendingum dytti í hug að senda til Haítí, í kjölfar hörmunganna þar. Hvort okkur bæri nú ekki meiri skylda til að styðja við aumingja „flóttafólkið“ okkar, sem neyðist til að flýja land vegna ástandsins? MÁGKONA mín og svili tilheyra að vísu ekki flóttahópnum, enda bæði í góðum störfum hérna heima þegar þau tóku ákvörðun um að fara. En hvað svo sem rekur fólk héðan er það móðgun við raun- verulegt flóttafólk að líkja aðstæðum okkar við neyð þeirra. Upp til hópa er því fólki sem fer ekki nokkur vorkunn. Á meðan lægðin liggur yfir eigum við að þakka fyrir að eiga þess kost að komast í burtu og máta okkur við önnur lönd, í stað þess að svamla öll saman í súru súpunni og bíða eftir betri tíð. Vertu sæll, kæri svili HVAÐ ER Í MATINN? Á kynnir skemmtilegan sérvef um matargerð og hagkvæm matarinnkaup. Með því að nota einfalt og skemmtilegt kerfi útbúum við handa þér matseðil eftir þínu höfði. Kynntu þér ótrúlegan fjölda gómsætra uppskrifta á Hvað er í matinn? á ...ég sá það á visir.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.