Fréttablaðið - 02.03.2010, Blaðsíða 40
24 2. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
BRÁÐSKEMMTILEG RÓMANTÍSK GAMANMYND
Anna hafði í hyggju að biðja um hönd
kærastans þann 29. febrúar...
...en þetta er ekki kærastinn hennar!
600 600
600
600
600
114.000 GESTIR!
Gildir ekki í Lúxus
600
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 564 0000
16
14
14
10
16
L
10
L
SHUTTER ISLAND kl. 5 - 8 - 11
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 5 - 8 - 11
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 3.30 - 6.30 - 9.30 LÚXUS
THE LIGHTNING THIEF kl. 5.30 - 8
EDGE OF DARKNESS kl. 10.30
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 3D kl. 3.40 ísl.tal
AVATAR 3D kl. 6 - 9.15
ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 3.30 íslenskt tal
SÍMI 462 3500
12
L
14
12
10
L
PRECIOUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
LEAP YEAR kl. 8 - 10.15
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 5 - 8 - 11
IT´S COMPLICATED kl. 8 - 10.35
AVATAR 3D kl. 5
MAMMA GÓGÓ kl. 6
SÍMI 530 1919
L
14
10
12
L
16
LEAP YEAR kl. 5.45 - 8 - 10.15
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 6 - 9
THE LIGHTNING THIEF kl. 5.30
IT´S COMPLICATED kl. 8 - 10.30
NIKULÁS LITLI kl. 6
THE WOLFMAN kl. 8 - 10.20
SÍMI 551 9000
.com/smarabio
AÐDÁENDUR GETA UNNIÐ BÍÓKORT ÚT ÁRIÐ,
BOÐSMIÐA Á FORSÝNINGAR O.M.FL.
16
14
SHUTTER ISLAND kl. 6 - 9
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 6 - 9
ATH: Tilboðin eiga ekki við um Borgarbíó
Þ.Þ. - Fbl T.V. - kvikmyndir.is Ó.H.T. - Rás2
T.Þ.T. - DVD
sýnd með íslensku tali
Stórkostlegt mynd frá DISNEY fyrir alla fjölskylduna
7
16
16
12
12
V I P
V I P
L
L
L
L
L
L
L
L
L
L L
THE REBOUND kl. 5:50 - 8 - 10:10
THE REBOUND VIP kl. 8 - 10:10
BROTHERS kl. 8 - 10:20
VALENTINE ‘S DAY kl. 8 - 10:30
THE WOLFMAN kl. 8 - 10:10
THE WOLFMAN VIP kl. 5:50
SHERLOCK HOLMES kl. 8
THE BOOK OF ELI kl. 10:30
TOY STORY 2 M/ ísl. Tali kl. 5:50 3D
AN EDUCATION kl. 5:50
UP IN THE AIR kl. 5:50
BJARNFREÐARSON kl. 5:50
SHUTTER ISLAND kl. 5:10 - 8 - 10:50
THE REBOUND kl. 8:10 - 10:20
INVICTUS kl. 8
BROTHERS kl. 10:40
VALENTINE ‘S DAY kl. 5:30D
MAYBE I SHOULD HAVE kl. 6D Síðastu sýningar
16
16
12
12
12
VALENTINE ‘S DAY kl 8
BROTHERS kl 10:20
THE BOOK OF ELI kl. 8
SHERLOCK HOLMES kl. 10:20
TOY STORY 2 M/ ísl. Tali kl. 6 3D
sýnd með íslensku tali
ÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í SAMBÍÓUNUM Í DAG KR. 600
GILDIR EKKI Í VIP, Á ÍSLENSKAR MYNDIR OG Á
MYNDIR Í 3D OG BEINAR ÚTSENDINGAR
- bara lúxus
Sími: 553 2075
SHUTTER ISLAND kl. 7 og 10 16
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 7 og 10 14
EDGE OF DARKNESS kl. 10.20 16
IT’S COMPLICATED kl. 5.40 og 8 12
ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 5 - Ísl. tal L
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM... kl. 5 - Ísl. tal L
ÞRIÐJUDAGUR
TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
900 KR. Í 3D
Þ.Þ. -FBLT.V. -KVIKMYNDIR.IS
T.V. -KVIKMYNDIR.IS
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
600 kr.
Ó.H.T. -RÁS 2
H.S.S. -MBL
Leiklist ★★★★★
Hænuungarnir
eftir Braga Ólafsson
Leikarar: Eggert Þorleifsson,
Ragnheiður Steindórsdóttir,
Kristbjörg Kjeld, Pálmi Gestsson,
Friðrik Friðriksson, Vigdís Hrefna
Pálsdóttir. Leikmynd: Börkur Jóns-
son Búningar: Ríkey Kristjánsdótt-
ir Lýsing: Halldór Örn Óskarsson
Leikstjóri: Stefán Jónsson
Það var glatt á hjalla í Kassa Þjóð-
leikhússins á laugardagskvöldið.
Eggert Þorleifsson í hlutverki Sig-
urhans, frystikistueiganda í Hlíð-
unum, og Ragnheiður Steindórs-
dóttir í hlutverki Olgu, eiginkonu
hans, buðu okkur með á húsfund
þar sem við fengum að kynnast
skrautlegum nágrönnum þeirra.
Bragi Ólafsson sagði í viðtali sama
dag að hann ætti nú ekki nema
60% af textanum, hópurinn og
leikstjórinn stæðu fyrir restinni.
Það er alveg sama hver á hvaða
prósentu af þessum texta, hann
gekk upp. Orðin fléttuðust saman
í slíkan kímnisvef að hláturbylgj-
urnar liðuðust um húsið, og þó svo
að nokkur kyrrstaða væri í fyrri-
partinum þá snerust hjólin nú held-
ur betur í þeim seinni. Nágrannar
Olgu og Sigurhans, feðgarnir Carl
og Anastasias, eru fyrirvaralaust
boðaðir á húsfund. Pálmi Gestsson
leikur síðhærðan miðaldra heiðar-
legan mann sem á sér enga ósk
æðri en að fá bara að vera í friði,
og er afskaplega ánægður með nýja
flatskjáinn sinn þrátt fyrir að það
séu 35 afborganir eftir. Carl er 29
ára, býr hjá föður sínum, starfar
á trésmíðaverkstæði og má ekki
vamm sitt vita. Friðrik Friðriksson
fer með hlutverk hans og er sann-
færandi sem þessi friðsami ungi
maður. Pálmi er eins og blanda af
stóískum indjánahöfðingja og upp-
gjafarhippa. Einhvern veginn tekst
honum að gera sig stærri en hann
í raun er og það er þessi klunna-
lega stærð sem hann leikur á um
leið og barnsleg einlægni fylg-
ir hverju orði sem fram af vörum
hans hrýtur. Flottur leikur. Hér er
handbragð leikstjórans svo sannar-
lega merkjanlegt og öll tímasetn-
ing með afbrigðum góð.
Ragnheiði Steindórsdóttur tekst
vel í túlkun sinni á Olgu að koma
því til skila hvern mann hún hefur
að geyma, hvernig er að búa með
manni með söfnunaráráttu og
kannski aðrar fíknir.
Elín er fullorðin kona sem er
aðeins farin að kalka, yfirfull af
eigin hugmyndum og talar út í eitt.
Kristbjörg Kjeld dillar sér í þessu
frábæra hlutverki þar sem hún
ekki aðeins leikur fantavel held-
ur er búningur hennar einnig svo
ótrúlega vel við hæfi. Ríkey Kristj-
ánsdóttir sér um búningana og þeir
eru hreint frábærir. Vigdís Hrefna
Pálsdóttir leikur unga stúlku sem
er vel undir áhrifum ankannalegra
lyfja. Vigdís bregður upp góðri
mynd af mátulegu kæruleysi þess-
arar stúlku sem kemur til þess að
taka til í íbúð nýlátins föður á efri
hæðinni í þessu húsi sem stendur
nær fullbyggt á sviðinu. Ætli flest-
ir hafi ekki fundið hjá sér hvöt til
þess að snerta myndina, svo raun-
veruleg var hún um leið og skop-
stælingin með opnum götum inn í
tvær íbúðir var svo skýr. Lýsingin
var góð. Börkur Jónsson á heiður-
inn af þessari heillandi mynd þar
sem hjónin Sigurhans og eiginkon-
an Olga búa í heldur hversdagslegu
umhverfi, hann safnar jazzplöt-
um og kannski er svar hennar við
þeirri geggjun að hún safnar kakt-
usum. Það er ansi stór lekablettur í
einu horni loftsins fyrir svo utan að
sjónvarpið er eldgamalt, þannig að
þau virðast hafa önnur áhugamál
en innréttingar.
Sigurhans boðar til húsfundar
þar sem hann heldur að feðgarn-
ir í næstu íbúð hafi stolið kjúkl-
ingum úr frystikistu þeirra hjóna
sem stendur niðri í kjallara í ein-
hverri sameign. Í næstu íbúð sem
við einnig fáum að sjá inn í búa
svo feðgarnir. Hjá þeim er flat-
skjár og leðursófi. Að öðru leyti
virðast þeir ekki leyfa sér margt.
Þetta er sagan um Sigurhans sem
veður fram úr sjálfum sér og hinar
persónurnar verða eins og mynd-
skreytingar í sögunni hans. Eggert
er stjarna kvöldsins. Sigurhans
sýpur rauðvín og diggar jazz milli
þess sem hann bullar og missir ein-
beitinguna í fundamálinu eftir því
sem hann drekkur meira. Oft hefur
nú Eggerti tekist að kitla hlátur-
taugar áhorfenda sinna en núna
var það meira en kitl. Þótt hér sé
verið að fjalla um ákveðið siðferði,
þá er enginn vísifingur á lofti né
heldur hrun eða krepputal sem er
mikill léttir fyrir áhorfendur sem
eru farnir að þrá bara venjulega
plötuþjófa. Sigurhans ásakar aðra
um þjófnað en er ekki svo sterkur
á svellinu sjálfur því hann verður
þjófsnautur.
Þetta er skemmtileg og áheyri-
leg hnökralaus sýning, aðeins eitt
atriði sem sló út trúverðugleikann
eða stakk í stúf við heildina og það
er þegar brotist er inn til feðganna,
faðirinn fær fyrir hjartað og fjórar
fullorðnar persónur missa rænuna.
Það kunna allir neyðarnúmerið,
þannig að þessi hópgleymska í pan-
íkinni þegar enginn man símanúm-
erið verður svolítið klúðursleg. Á
meðan situr Sigurhans í sinni íbúð
og fær að vita að plöturnar sem
hann og félagar hans höfðu keypt
væri þjófagóss, sem þyrfti að skila
en hann velur engu síður að halda
einni eftir.
Bragi Ólafsson kann svo sannar-
lega að leika sér að orðum eins og
um jazzspuna sé að ræða fyrir svo
utan að skýr afmörkuð persónu-
sköpun gerir verkið heilsteypt.
Framsögn og meðferð texta var til
fyrirmyndar og það er svo sannar-
lega óhætt að hvetja fólk til þess
að fara með stálpaða krakka og
unglinga á þessa sýningu.
Elísabet Brekkan
Niðurstaða: Skemmtileg og áheyri-
lega hnökralaus sýning.
Hver er þjófur í raun?
ÚR HÆNUUNGUM BRAGA ÓLAFSSONAR „Bragi Ólafsson kann svo sannarlega að
leika sér að orðum eins og um jazzspuna sé að ræða,“ segir Elísabet Brekkan í gagn-
rýni sinni á Hænuungana.
Kaffi Hljómalind, sem þjónaði sem
hálfgerð félagsmiðstöð fyrir fjöl-
skyldufólk og ungmenni um ára-
bil, hætti rekstri í október í fyrra.
Ástæða þess var sú að Hljóma-
lindarfólkið fékk ekki framlengd-
an leigusamninginn og missti því
húsnæðið.
Helena Stefánsdóttir, einn eig-
enda Kaffi Hljómalindar, segir
hópinn vera með augun opin fyrir
hentugu húsnæði fyrir reksturinn.
Hún segir hópinn jafnframt vera
að leggja drög að reglugerð fyrir
nýtt samvinnufélag sem mun reka
kaffihúsið í framtíðinni. „Það eru
alls konar plön í gangi. Hljóma-
lind var eignarhaldsfyrirtæki en
var rekið sem samvinnufélag, nú
ætlum við að taka þetta alla leið og
hafa þetta löglega sem samvinnu-
félag. Við viljum hafa fjölbreytt-
ari rekstur þegar við opnum aftur
því hópurinn sem að þessu stendur
er svo fjölbreyttur og áhugamálin
mörg,“ segir Helena.
Aðspurð segir hún samvinnu-
félög sem þetta hafa ákveðinn til-
gang og í þessu tilfelli sé það að
hafa uppbyggileg og skapandi
áhrif á umhverfið. Hún segir hóp-
inn ekki tilbúinn til að leigja hvaða
húsnæði sem er því þau vilji hafa
svigrúm fyrir aukinni starfsemi
líkt og námskeiðahald og verk-
stæði. „Við höfum fengið marg-
ar fyrirspurnir frá gömlum við-
skiptavinum sem vilja vita hvort
Hljómalind verði ekki örugglega
opnuð aftur. Það er gott að finna
fyrir slíkum áhuga og stuðningi.
Við erum rosalega varkár í allri
ákvarðanatöku út af fyrri reynslu,
en ástríðan er enn til staðar,“ segir
Helena að lokum. - sm
Ástríðan er enn til
staðar í Hljómalind
VARKÁR Helena Stefánsdóttir, einn
eigenda Kaffi Hljómalindar, segist vera
með augun opin fyrir nýju húsnæði en
vilji þó ekki taka hvaða tilboði sem er.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
P Diddy
ætlar að
kenna
bresku
hljómsveit-
inni Arctic
Monkeys
að rappa.
Diddy og
Monkeys
kynntust á
síðasta ári
og síðan þá
hafa þeir
verið óað-
skiljanleg-
ir. Strák-
arnir eru
á leiðinni
til Banda-
ríkjanna
á næst-
unni þar sem Diddy mun taka á
móti þeim og kenna þeim leynd-
armál rappheimsins. „Við tölum
við hann að minnsta kosti þrisvar
í viku. Við ætlum að hitta hann í
Miami eftir nokkrar vikur,“ sagði
trommarinn Matt Helders. Svo
gæti farið að Diddy og Monkeys
semji lag saman en það á eftir að
koma betur í ljós.
Diddy kennir
Monkeys
P DIDDY P Diddy ætlar að
kenna bresku hljómsveit-
inni Arctic Monkeys að
rappa.