Fréttablaðið - 02.03.2010, Blaðsíða 46
30 2. mars 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Frétt Fréttablaðsins af
úthlutun listamanna-
launa varð útvarpsfólkinu
í Íslandi í bítið tilefni til
umræðu í gærmorgun.
Þar fór tæknitröllið
Þráinn Steinsson
mikinn og lýsti þeirri
skoðun sinni að
listamannalaun
væru „snobb-
atvinnuleysisbæt-
ur“. Undir þessa skoðun hans tók
Heimir Karlsson. Munu fjölmargir
listamenn hafa sett sig í samband
við þá Bylgjumenn og lýst óánægju
sinni með skoðanir þeirra. Þráinn
gengur meira að segja svo langt að
kalla suma póstana „haturspósta“.
Hvort einn þeirra sem lýstu
óánægju með umræðuna
var Þráinn Bertelsson
skal ósagt látið en þó
mun frágengið vera að
hann mætir í þáttinn
í dag og mun ætla að
útskýra út á hvað
listamannalaun ganga.
Eins og alþjóð veit
varð Þráinn að ein-
hvers konar talsmanni
listamannalauna
þegar hann neitaði
að afsala sér heiðurslaunum
Alþingis þegar hann tók þar sæti.
Þráinn fjallar einmitt um fjárhag
sinn í pistli á Smugunni í gær. Þar
segist hann rétt lafa í hálfri milljón
á mánuði eftir skatt og telur sig
greinilega ekki ofalinn.
Kvikmyndatónskáldið Atli Örvars-
son sést taka létt harmonikkusóló
á litlum bát í tónlistarmyndbandi
sem gert var til þess að kynna
tónlist Hans Zimmer úr kvik-
myndinni Sherlock Holmes fyrir
Óskarsakademíuna. Meðal annarra
sem leggja sitt á vogarskálarnar eru
leikstjóri myndarinnar, Guy Ritchie,
og bandaríski stórleikarinn
Robert Downey sem
leikur einmitt Holmes
auk annarra tónlistar-
manna. Atli hefur unnið
náið með Hans
Zimmer við gerð
kvikmyndatónlistar
fyrir kvikmyndir á
borð við Angels &
Demons og The
Simpsons.
- hdm, fgg
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
„Hann missteig sig ansi hressilega
þarna ef hann lítur á það sem hlut-
verk sitt að segja grínistum að
hverju má gera grín að og að hverju
ekki,“ segir Davíð Þór Jónsson,
guðfræðingur og grínisti. Hann
er undrandi á ummælum landbún-
aðarráðherrans Jóns Bjarnason-
ar um auglýsingu Símans en Jón
sagði símafyrirtækið gera lítið úr
hefðbundnum íslenskum þjóðleg-
um afurðum. „Nokkrir karlmenn,
í lopapeysum þó, eru látnir fúlsa
við íslenskum þorramat eins og
um hvert annað ómeti sé að ræða,“
sagði Jón við setningu Búnaðar-
þings á laugardaginn.
Davíð segir það nánast heilaga
skyldu íslenskra grínista að gera
grín að íslensku samfélagi og
íslenskum hefðum en vill ekki
ganga svo langt að segja landbún-
aðarráðherrann húmorslausan.
„Nei, ég held að brandarinn hafi
farið eitthvað öfugt ofan í land-
búnaðarráðherrann, mín reynsla
er sú að stjórnmálamenn leyni oft
á sér en hann hefur örugglega bara
verið að reyna að skora ódýr stig
hjá markhópnum,“ segir Davíð.
Ari Eldjárn hjá grínhópnum
Mið-Íslandi á erfitt með að skilja
af hverju landbúnaðarráðherra sé
að tjá sig um svona. „En á landbún-
aðarráðherra ekki einmitt að vera
svona? Þýðir þetta ekki að tvær
stéttir eru að standa sig ansi vel;
grínistar að gera grín að íslensk-
um hefðum og svo landbúnað-
arráðherra sem er reiðubúinn
til að verja landbúnaðarvörur
með kjafti og klóm. Ég held að
ráðamenn megi bara taka land-
búnaðarráðherrann til fyrir-
myndar.“ - fgg
Skylda grínista að gera grín að Íslandi
Sjónvarpsrisinn Fox ákvað að gera
ekki prufuþátt eftir íslensku sjón-
varpsþáttaröðinni Næturvaktin.
Handrit eftir Adam Barr, hand-
ritshöfund Will & Grace, var til-
búið á teikniborðinu en Banda-
ríkjamenn verða að bíða enn um
sinn með að sjá sína eigin útgáfu
af þeim Georg, Ólafi Ragnari og
Daníel. „Við erum svolítið spæld-
ir að Fox skyldi ekki fara í prufu-
þáttinn en þetta „pilot-season“ er
mikið nálarauga og við komumst
ekki í gegn að þessu sinni,“ segir
Kjartan Þór Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri Saga Film, sem
framleiðir þættina.
Þetta „pilot-season“ sem Kjart-
an vísar til er ákveðið tímabil
hjá stóru amerísku sjónvarps-
stöðvunum. Þá berast hverri
stöð yfir þrjú þúsund hugmynd-
ir að nýjum sjónvarpsþáttum en
í kringum hundrað þeirra fara í
handritavinnslu. Þegar handritið
er tilbúið tekur við enn ein sían
því aðeins fimm til sjö af þessum
handritum verða að svokölluðum
„prufu-þáttum“ eða pilot. Og loks
eru það aðeins tveir til þrír slíkir
prufuþættir sem fá samning um
sjónvarpsþáttaröð hjá stöðinni.
Kjartan og félagar hjá Saga
Film eru þó ekki af baki dottnir
því nú ætla þeir að kynna Næt-
urvaktina fyrir kapalsjónvarps-
stöðvarnar í Ameríku.
„Þessi þættir henta í raun miklu
betur fyrir kapalinn og þetta er
miklu einfaldara ferli. Hjá kap-
alsjónvarpsstöðvunum er ekkert
sérstakt tímabil eins og hjá stóru
stöðvunum en að sama skapi þýðir
þetta líka minni peningar.“ -fgg
Fox hafnaði Næturvaktinni
EKKI TIL AMERÍKU Næturvaktin verður
ekki endurgerð hjá sjónvarpsstöðinni
Fox en nú á að kynna þættina fyrir
kapalsjónvarpsstöðvunum.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 10
1 Gísli S. Einarsson.
2 Ásbjörn Þorgilsson og Eva
Sigbjörnsdóttir.
3 Jón Gnarr.
LÁRÉTT 2. harla, 6. eftir hádegi, 8.
skordýr, 9. skammstöfun, 11. tveir
eins, 12. logi, 14. snjáldur, 16. hvað,
17. skítur, 18. klampi, 20. gjaldmiðill,
21. óheilindi.
LÓÐRÉTT 1. klöpp, 3. tveir eins, 4.
dagatal, 5. borg, 7. gagntaka, 10.
náinn, 13. dýrahljóð, 15. innyfla, 16.
guðshús, 19. á fæti.
LAUSN
MISSTEIG SIG HRAPALLEGA
Davíð Þór segir Jón Bjarna-
son hafa misstigið sig ansi
hressilega með ummælum
sínum. Ari Eldjárn á erfitt
með að skilja af hverju land-
búnaðarráðherra sé að tjá sig
um svona mál.
LÁRÉTT: 2. afar, 6. eh, 8. fló, 9. rek,
11. mm, 12. glæra, 14. trýni, 16. ha,
17. tað, 18. oki, 20. kr, 21. fals.
LÓÐRÉTT: 1. berg, 3. ff, 4. almanak,
5. róm, 7. heltaka, 10. kær, 13. rýt, 15.
iðra, 16. hof, 19. il.
Aðalbjörg Ósk Gunnarsdóttir, sem
var ungfrú Reykjavík 2008, gagn-
rýnir undirfatamyndband sem
þátttakendur í Ungfrú Reykja-
vík 2010 voru látnir taka þátt í
fyrir undirfataframleiðandann
La Senza. Hún segir undirfata-
sýninguna sjálfa hafa verið á gráu
svæði. „Ég var í pínulitlu sjokki og
þetta kom mér algjörlega í opna
skjöldu,“ segir Aðalbjörg Ósk en
Manúela Ósk Steinsson, fyrrver-
and Ungfrú Ísland, ræddi þetta
fyrst á bloggi sínu á laugardag-
inn. Manúela var harðorð í garð
skipuleggjanda keppninnar: „Ef
ég hefði átt að koma fram í svona
múnderingu á sínum tíma, þá hefði
ég sleppt því að keppa! … tilhugs-
unin um að spranga um sviðið eins
og erótískur dansari með afa minn
og ömmu í salnum – ehhh, ég held
ekki! Hvar er klassinn??“
Aðalbjörg segist ekki hafa vitað
hvort umrætt myndband, sem
hægt er að sjá á Youtube, væri
grín þegar það rann yfir skjáinn.
„Myndavélarnar beindu sjónum
sínum að brjóstunum og rössun-
um á stelpunum, þetta var mjög
óviðeigandi. Ef mér hefði verið
sagt að ég ætti að vera í g-streng
og láta gera eitthvert myndband
af mér í rólu þá hefði ég sagt nei
takk,“ segir Aðalbjörg og bætir því
við að henni finnist þetta í raun lít-
ilsvirða hefðina á bak við keppn-
ir á borð við þessa sem gangi út á
hina „elegant“ konu. „Ég veit eig-
inlega ekki hvert þessi keppni er
að stefna, verður þetta bara orðin
einhver drasl-titill eftir tíu ár?“
spyr Aðalbjörg.
Magdalena Dubik krýndi arf-
taka sinn á Hótel Íslandi á föstu-
dagskvöldið. Hún var sammála
því að undirfatasýningin hefði
verið með djarfara móti og var
ekki alveg viss um hvort hún sjálf
hefði látið sjá sig í þeim efnislitla
klæðnaði sem sumar stúlkurn-
ar klæddust. „Ég skil sjónarmið
þeirra Aðalbjargar og Manúelu,
undirfatasýningin var vissulega
öðruvísi en hún hefur hingað til
verið. Stundum hefur þessi sýn-
ing verið gagnrýnd fyrir að vera
of lítið sexí, þetta er hárfín lína og
vissulega voru þetta engin Hag-
kaups-undirföt. Mér fannst þetta
flott sýning en síðan er það bara
spurning hvort þetta eigi heima í
þessari keppni.“
Arnari Laufdal, sem hefur veg
og vanda af keppninni, fannst
sýningin ekki of gróf. „Mörgum
finnst það of gróft þegar kepp-
endur koma fram á bikiníi, mér
finnst bara fínt að fólk skuli hafa
skoðanir á þessu,“ segir Arnar.
freyrgigja@frettabladid.is
AÐALBJÖRG ÓSK GUNNARSDÓTTIR: HEFÐI EKKI TEKIÐ ÞÁTT Í ÞESSU
Fegurðardrottningar ósátt-
ar við undirfatasýningu
„Ég hef verið að horfa á Dog the
Bounty Hunter og Eastbound &
Down. Dog the Bounty Hunter
er ógeðslega steikt, amerískt og
fyndið raunveruleikasjónvarp
og Eastbound & Down eru
einhverjir bestu grínþættir sem
ég hef séð.“
Diddi Fel rappari.
Á GRÁU SVÆÐI?
Aðalbjörg Ósk Gunn-
arsdóttir og Manúela
Ósk eru sammála um
að undirfatasýningin í
Ungfrú Reykjavík hafi
ekki verið keppninni til
framdráttar. Magdalena
Dubik segir hana hafa
verið djarfari en undan-
farin ár; hún var ekki
viss um hvort hún hefði
tekið þátt í slíku á sínum
tíma. Arnar Laufdal, sem
skipuleggur fegurðar-
samkeppnirnar, segir að
sér hafi ekki þótt þetta
of gróft. Stúlkurnar voru
í undirfötum frá La Senza.
TILBOÐ Í VEITINGASAL
Súpa fi skur og kaffi 1290
GLÆNÝ ÝSA, FISKRÉTTIR
ÞORSKHNAKKAR, RAUÐMAGI
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki