Fréttablaðið - 04.03.2010, Side 16
16 4. mars 2010 FIMMTUDAGUR
Himinháar skuldir Grikk-
lands bitna ekki bara á
þarlendum almenningi,
sem þarf að súpa seyðið
af hörðum sparnaðarað-
gerðum stjórnvalda. Íbúar
annarra evruríkja óttast að
efnahagsþrengingarnar í
Grikklandi hafi slæm áhrif
á verðgildi evrunnar.
Gríska stjórnin kynnti í gær hert-
ar aðhaldsaðgerðir sem hún vonast
til að dugi til þess að koma landinu
upp úr dýpstu efnahagskreppu sem
dunið hefur á þjóðinni um langt
skeið.
„Þessar aðgerðir eru nauðsyn-
legar til þess að landið okkar og
efnahagslífið lifi af, og til þess að
Grikkland losni út úr fárviðri spá-
kaupmanna,“ sagði George Pap-
andreou, forsætisráðherra vinstri-
stjórnarinnar á Grikklandi. Hann
tók við völdum í október síðast-
liðnum, þegar hægristjórn Kostas
Karamanlis hrökklaðist frá þegar
efnahagskreppan stefndi í að verða
nánast óviðráðanleg.
Fjáraustur
Orsakir grísku kreppunnar eru lík-
lega ekki flóknar, þótt deila megi
um vægi ólíkra þátta. Fjáraustur
úr ríkissjóði fyrir kosningarnar í
haust, þegar hægri stjórn Karaman-
lis barðist fyrir lífi sínu, reyndist
fjárhagnum ofviða á tímum alþjóð-
legrar fjármálakreppu með afar
takmörkuðum aðgangi að lánsfé.
Fyrir kreppuna hafði gríska stjórn-
in auk þess ekki farið beinlínis spar-
lega með fé, til dæmis þegar haldnir
voru glæsilegir Ólympíuleikar árið
2004.
Á síðasta ári voru ríkisskuldirn-
ar orðnar 125 prósent af landsfram-
leiðslu, en þá var líka komið í óefni
og nú er stefnt að því að draga úr
þeim eins hratt og kostur er.
Lausna leitað
Brýnasti vandinn sem gríska stjórn-
in stendur nú frammi fyrir er að
hún þarf peninga sem allra fyrst til
þess að greiða afborganir af skuld-
um sem eru að gjaldfalla, samtals 54
milljónir evra. Nærtækasta lausnin
þessa dagana er útgáfa ríkisskulda-
bréfa, sem stjórnin hefur frestað
þangað til Evrópusambandið hefur
lagt blessun sína yfir nýju aðhalds-
aðgerðirnar.
Lánakjörin skipta öllu máli í
þessu sambandi, en Papandreou
segir að án blessunar Evrópusam-
bandsins verði þau óviðráðanleg því
fjárfestum þætti þá of mikið skorta
upp á trúverðugleika grísks efna-
hagslífs.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
Gríska stjórnin útilokar nú ekki
að leita til Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins eftir fjárhagsaðstoð, þrátt fyrir
andstöðu annarra Evrópusam-
bandsríkja við að sú leið verði farin,
einkum vegna þess að það væri
óneitanlega álitshnekkir fyrir Evr-
ópusambandið ef eitt aðildarríkja
þess þyrfti að leita á náðir sjóðsins.
Gríska stjórnin hefur reyndar
þegar fengið Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn sér til ráðgjafar í þessum þreng-
ingum, og sjóðurinn fylgist grannt
með þróun efnahagsmála og öllum
aðgerðum stjórnarinnar.
Evrópusambandið
Fyrst og fremst stendur það þó
upp á Evrópusambandið að hjálpa
Grikkjum í gegnum erfiðleikana.
Sú aðstoð verður þó varla bein fjár-
hagsaðstoð.
Angela Merkel Þýskalandskansl-
ari hefur verið hörð í afstöðu sinni
gegn því að Grikkir fái beina fjár-
hagsaðstoð, hvort heldur fé sem
kæmi úr sameiginlegum sjóðum
Evrópusambandsins eða beint frá
Þýskalandi, eins og hugmyndir
höfðu verið uppi um innan Þýska-
lands.
„Slíkt er einfaldlega ekki leyfi-
legt, og meira er ekki um það að
segja,“ segir Merkel og vísar í lög
Evrópusambandsins sem beinlínis
banna beina fjárhagsaðstoð nema
ástandið sé orðið svo alvarlegt, að
önnur ráð geti ekki dugað. „Enginn
vafi leikur á því að Grikkland getur
borgað, og enn þá er engin fjár-
mögnunarþörf fyrir hendi,“ sagði
hún í síðasta mánuði.
Skilyrði sett
Evrópusambandið getur hins vegar
ekki leyft sér að láta eins og vandi
Grikkja komi hinum ríkjunum ekki
við. Verðgildi evrunnar er í húfi og
þar með lífsafkoma íbúa allra evru-
ríkjanna. Grikkland er sem stendur
veikasti hlekkurinn af þeim sextán
ríkjum sem tekið hafa upp sameig-
inlega mynt sambandsins.
Evrópusambandið hefur því grip-
ið til þess ráðs að setja Grikkjum
ströng skilyrði í efnahagsmálum. Á
fundi sínum í byrjun febrúar sendi
framkvæmdastjórn sambandsins
frá sér yfirlýsingu þar sem þess
er meðal annars krafist að Grikkir
komi fjárlagahalla sínum niður í 8,7
prósent á þessu ári, en á síðasta ári
var hann kominn upp í 12,7 prósent.
Þá er þess krafist að hann lækki í
áföngum þar til hann verði kominn
niður í tvö prósent árið 2013.
Til þess að ná þessu neyðist gríska
stjórnin til að grípa til strangra
aðhaldsaðgerða, draga hratt úr rík-
isútgjöldum og ná sér í meiri tekj-
ur, sem einkum koma með skatt-
lagningu.
Lissabonsáttmálinn
Evrópusambandið beitir þarna
nýju ákvæði í stofnsáttmála
sínum, sem tók gildi með Lissabon-
samningnum í byrjun desember.
Ákvæðið, sem er í 121. grein nýja
sáttmálans, gefur framkvæmda-
stjórn sambandsins heimild til
þess að hafa strangt eftirlit með
efnahagsmálum aðildarríkis ef
svo er komið að þróun efnahags-
mála í því ríki brýtur í bága við
almenn efnahagsmarkmið Evr-
ópusambandsins eða stefnir í voða
efnahags- og gjaldmiðilssamstarfi
aðildarríkjanna.
Aðhaldsaðgerðirnar sem Grikk-
ir kynntu í síðasta mánuði dugðu
hins vegar ekki til. Framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins bað um
meira og gríska stjórnin varð við
þeirri beiðni, enda á hún ekki ann-
arra kosta völ en að fylgja tilmæl-
unum frá Brussel. Að öðrum kosti
væri trúverðugleiki grísks efna-
hagslífs fyrir borð borinn og þar
með yrði niðurgreiðsla skulda mun
dýrari en ella.
Aðgerðir og órói
Almenningur í Grikklandi hefur
mótmælt aðhaldsaðgerðum stjórnar-
innar harðlega, enda bitna þær illa
á íbúum landsins og þykja ósann-
gjarnar. Verkföll hafa verið tíð síð-
ustu vikur og tugir þúsunda hafa
mætt á mótmælafundi í miðborg
Aþenu og fleiri borgum landsins.
Fyrri aðgerðirnar, sem Evrópu-
sambandið sagði ekki ganga langt,
fólust einkum í því að skattar á
eldsneyti yrðu hækkaðir, laun og
fríðindi opinberra starfsmanna
yrðu fryst og eftirlaunaaldur hækk-
aður.
Nýju aðgerðirnar, sem kynnt-
ar voru í gær, ganga enn lengra
á svipaðri braut: Laun opinberra
starfsmanna verða lækkuð, eftir-
laun fryst, söluskattur hækkaður
úr 19 prósentum í 21 prósent og
nýir skattar lagðir á munaðarvör-
ur á borð við áfengi, tóbak, glæsi-
bifreiðar, snekkjur, skartgripi og
leðurvörur, svo nokkuð sé nefnt.
Allt þetta bitnar á almenningi
og fullvíst þykir að ólgan í land-
inu haldi áfram með verkfallsað-
gerðum og jafnvel óeirðum.
Samstarf nauðsynlegt
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins kynnti síðan í gær ný
áform um að hafa betra aðhald á
efnahagsmálum allra aðildarríkj-
anna, ekki síst til að koma í veg
fyrir að ástand á borð við það sem
Grikkland glímir nú við geti komið
upp.
Hugmyndin er sú að viðvörun-
arljós fari að blikka fyrr í ferlinu,
áður en í óefni er komið.
„Fjármálakreppan hefur sýnt
okkur hve aðildarríkin eru háð
hvert öðru,“ segir Jose Manuel
Barroso, forseti framkvæmda-
stjórnarinnar. „Fjármálakreppa
í sumum aðildarríkjunum hefur
sýnt fram á að þau mistök sem gerð
eru í einu ríki geta haft afleiðing-
ar í öðrum ríkjum. Þetta er miklu
skýrara núna, að við þurfum að
vinna saman.“
FRÉTTASKÝRING: Kreppan í Grikklandi
FRÉTTASKÝRING
GUÐSTEINN BJARNASON
gudsteinn@frettabladid.is
Veikasti hlekkurinn í Evrópusambandinu
ELLILÍFEYRISÞEGAR MÓTMÆLA Ekki voru það ungmennin, sem í þetta skipti lentu í stympingum við lögregluna í Aþenu í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
Það flækir málin síðan enn frekar að Evrópusambandið hefur ekki getað treyst
þeim efnahagsupplýsingum sem koma frá grískum stjórnvöldum. Hvað eftir
annað hafa Grikkir orðið uppvísir að því að senda frá sér rangar upplýsingar,
sem fegra ástandið en gera það um leið illviðráðanlegra.
Grikkland fékk aðild að myntbandalagi Evrópusambandsins árið 2001 þrátt
fyrir viðvaranir um að efnahagur landsins réði varla við það. Árið 2004 kom í
ljós að Grikkir höfðu ekki sagt satt og rétt frá þegar þeir þóttust hafa sýnt fram
á að þeir stæðust þær kröfur Evrópusambandsins, sem gerðar eru til evruríkj-
anna. Endurmati á þeirri stöðu er ekki lokið, en flest bendir reyndar til þess að
Grikkland hafi í reynd staðist kröfurnar, naumlega að vísu.
Nú síðast í haust reyndi svo stjórnin að láta líta svo út sem fjárlagahallinn
væri ekki jafn mikill og raun varð á.
Á fundi sínum í febrúarbyrjun ákvað framkvæmdastjórnin því að grípa til
sérstakra þvingunaraðgerða gagnvart Grikklandi, til að tryggja að réttar upplýs-
ingar um efnahagsmál berist reglulega frá grískum stjórnvöldum, að viðlögð-
um háum sektum.
UPPVÍSIR AÐ ÓSANNSÖGLI
DekaCryl 7
Innimálning. 10 lítrar
4.990kr.Deka Meistaralakk 40 Akrýllakk. 1 líter
1.495kr.
MAKO pensill
50mm
490kr.
MAKO rúlla 25 cm
450kr.
MAKO málningarlímband
25mm - 50m
445kr.