Fréttablaðið - 04.03.2010, Síða 30
4. MARS 2010 FIMMTUDAGUR
Optical Studio – gleraugna-
verslunin í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar hefur algjöra sér-
stöðu sem verslun á flugvallar-
og fríhafnarsvæði en þar
eru öll algengustu gleraugu
afgreidd meðan beðið er.
Optical Studio FLE er fullbú-
in gleraugnaverslun með alla þá
þjónustu sem þekkist í bestu gler-
augnaverslunum stórborga heims-
ins. Sjónmælingar og kontaktlinsu-
mælingar eru framkvæmdar í
versluninni með nýjustu og full-
komnustu sjónmælingatækjum
sem þekkjast.
„Viðskiptavinurinn getur svo
sest niður og fengið sér kaffibolla
hér hjá okkur og gleraugun eru
tilbúin þegar hann klárar kaff-
ið,“ segir Kjartan Kristjánsson,
eigandi Optical Studio. Kjartan
ítrekar að andrúmsloftið í versl-
unarumhverfi flugstöðva sé mjög
sérstakt, tími viðskiptavinarins er
dýrmætur og því verður þjónust-
an við hann að vera hnökralaus og
fáguð. Starfsfólk Optical Studio er
lykillinn að góðu gengi verslunar-
innar.
„Þessi þjónusta stendur við-
skiptavininum hvergi til boða
annars staðar og í þau tíu ár sem
Optical Studio hefur verið í Leifs-
stöð hefur orðspor verslunarinn-
ar borist víða. Viðskiptamanna-
hópur okkar spannar í raun allt
litrófið, frá ráðherrum og efn-
uðustu athafnamönnum lands-
ins, heimsfrægum listamönnum á
borð við Sophiu Loren og Brad Pitt
til skólakrakka og barna. Ástæð-
an fyrir þessum breiða hópi er sú
að verið er að bjóða vöru í heims-
klassa á lægra verði en gengur
og gerist auk þess sem mikið er
lagt upp úr persónulegri og góðri
þjónustu. Við þjótum til dæmis
með gleraugun á hlaupahjóli á
eftir tímabundnum farþegum,
alla leið út í flugvélina ef því er
að skipta.“
Á heimasíðunni www.optical-
studio.is eru allir þættir verslun-
arinnar vel kynntir. Til að spara
tíma geta flugfarþegar nú pantað
í gegnum Netið ákveðnar vörur
sem þeir óska eftir að kaupa þegar
í flugstöðina er komið en á heima-
síðu verslunarinnar er að finna
myndir af úrvalinu. Viðskiptavin-
ir geta einnig farið áður í verslan-
ir Optical Studio í Smáralind eða
Keflavík til að undirbúa pöntun
sína á gleraugum.
Gleraugnatískan hefur sjaldan
verið áberandi í Hollywood nema
ef væri sólgleraugnatíska. Hins
vegar hefur borið á því undanfar-
ið að frægar stjörnur og fyrirsæt-
ur hafi sést með áberandi dökkar
umgjarðir, svokölluð persónuleika-
gleraugu.
Þar má nefna ólátabelginn Kelly
Osbourne sem nýlega hefur skipt
algerlega um stíl, er orðin ljós-
hærð og mjó, en þó alltaf aðeins
öðruvísi.
Sætabrauðsdrengurinn Justin
Timberlake hefur einnig skartað
áberandi gleraugum undanfarið
og tekur sig vel út. Verður nokkuð
gáfulegri fyrir vikið. - sg
Útlitið dökkt í Hollywood
Leikarinn Justin Timberlake skartar áber-
andi gleraugum með dökkri umgjörð.
Kelly Osbourne er krúttleg í leðurjakka
og með svarta umgjörð á nefinu.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 l Umsjónarmaður auglýsinga: Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is s. 512 5439
og Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is s. 512 5411
Einstakt í flugstöð
Burkni Birgisson sjónfræðingur að
sjónmæla viðskiptavin.
Kjartan, eigandi Optical Studio, á hlaupahjólinu góða sem gripið er til þegar þarf að afhenda gleraugu út við hlið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA