Fréttablaðið - 05.03.2010, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
FÖSTUDAGUR
5. mars 2010 — 54. tölublað — 10. árgangur
HARALDUR JÓNASSON
Þróaði karlmannlega
kjötloku í Kópavogi
• matur • langur laugardagur
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS býður almenn-ingi að koma með gamla gripi til greiningar hjá sér-fræðingum á sunnudaginn. Dagskrá hefst klukkan 14 og lýkur 16. Aðeins næst að greina um 50 gripi á
þeim tíma og því nauðsynlegt að mæta tímanlega.
Staður Haraldar Jónassonar er við eldavélina. Hann er karlmennsk-an uppmáluð og smitast það yfir í matargerðina á ýmsan veg. Hann gefur út matarblaðið Stoppað í matargatið en þar er að finna upp-skriftir að hamborgurum, fajit-as, kjötbollum og chili svo dæmi séu tekin. Uppskriftirnar koma flestar úr safni Haraldar sjálfs en auk þess fær hann til liðs við
sig gestakokka. „Þá lauma ég meðmýkri uppskriftum in ámé
Karlmannleg kjötlokaHaraldur Jónasson byrjaði ungur að árum að fikta við matargerð. Snemma uppgötvaði hann líka Hlölla
og Nonna en þar sem hann ólst upp í úthverfi og átti ekki alltaf heimangengt þróaði hann eigin útgáfu.
Haraldur segir hægt að útbúa lokuna með snittubrauði en að enn karlmannlegra sé að taka brauðhleif og skera hann í tvennt.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Nautakjöt (til dæmis lund eða ribeye)Gott brauð
Laukur
Sveppir
Sýrður rjómi/majonesSúrar gúrkur
Chiliduft/hotsauce
lokan. Kjötsneiðunum er síðan raðað á vax-pappír en uppröðunin á að miðast við lagið á brauðinu. Þeim er svo öllum skellt í einu á pönnu með smá
er skúbbað yfir í brauð ásamt steiktu grænmeti. Laukur og sveppir eru alltaf klassískir, hugaðir skella papriku ð
KÓPAVOGSKJÖTLOKAFyrir sanna karlmenn
framlengt út marsHinn árvissi 4ra rétta „Allt í steik“ seðill gleður bragðlaukana. Skyldumæting fyrir alla sem unna góðum mat á góðu verði.
Tilvalið fyrirárshátíðina!
KRYDDLEGIN KLAUSTURSBLEIKJAmeð rússneskri pönnuköku, dillrjóma og piparrótarsósuRJÓMALÖGUÐ HUMARSÚPAmeð Madeira og grilluðum humarhölum
FISKUR DAGSINSferskasti hverju sinni, útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar (4.990 kr.)BEIKONVAFINN OG FYLLTUR FASANImeð polentu og kóngasveppasósu (5.590 kr.)
RIB EYEmeð kartöfluturni, Bearnaisesósu og steinseljurótarmauki (6 590 k )
1
2
3
VELDU MILLI FJÖGURRA AÐALRÉTTA
Góð tækifærisgjöf!
föstudagurFYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 5. mars 2010
EKKI RÍKISSTYRKT EGÓFLIPP
Dagur Kári um The Good Heart, stóra eplið og lopahúfur
Fréttablaðið er með 212% meiri
lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað,
höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í nóvember 2009 – janúar 2010.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
73,8%
23,7%
Stígamót 20 ára
Hafa tekið á móti
tæplega 5.400
þolendum kynferðis-
ofbeldis.
TÍMAMÓT 20
Ánægjulegt samstarf
Hollywood-leikarinn
Paul Dano naut þess
að vinna með Degi
Kára Péturssyni.
FÓLK 34
ERLING JÓHANNESSON
Átti að verða andlit
Icesave í Hollandi
Var vongóður um háan tékka
FÓLK 34
ÁFRAM AK! Ríflega tuttugu nemendur á lokaönn í Lögregluskólanum æfðu sig í gær í umferðarstjórnun á gatnamótum Nóatúns
og Laugavegar. Nemarnir munu útskrifast nú í apríl og þurfa að öðlast reynslu af alls kyns lögreglustörfum áður. Skólastjórinn
Arnar Guðmundsson segir umferðarstjórnunina þó síst flóknasta þátt undirbúningsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
UMHVERFISMÁL Í öðrum áfanga
rammaáætlunar um nýtingu
vatnsafls og jarðvarma eru
yfir 80 virkjanakostir skoðaðir.
Verkefnastjórn skilar af sér
skýrslu í dag.
Alls eru fjörutíu vatnsafls-
kostir og 44 jarðvarmakostir
teknir fyrir. Þeim er raðað upp
eftir hagkvæmni og einnig eftir
verðmæti hvað varðar náttúru
og menningu. Áætluð orku-
geta allra vatnsaflskostanna er
17.500 gígavattstundir á ári og
jarðvarmakostanna um 30.000
gígavattstundir á ári. Sam-
kvæmt mati Orkustofnunar er
orkugeta þekktra háhitasvæða
talin 4.000 gígavatt stundir
umfram það.
Ekki er um lokaskýrslu að
ræða og gefst frestur til and-
mæla. Frumvarp um ramma-
áætlun er inni í þingflokki
Vinstri grænna, en ekki eru
allir á eitt sáttir um hvernig
vinnan fram undan á að vera.
- kóp / sjá síðu 10
Rammaáætlun:
Yfir 80 virkjana-
kostir eru undir
SKIPULAGSMÁL Gangi allt eftir geta framkvæmdir
vegna samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri hafist í
sumar. Hún mun standa við Hótel Loftleiðir. Mögu-
leiki verður á tengingu á milli húsanna í framtíðinni.
Gert er ráð fyrir að húsið verði um 3.000 fermetr-
ar, minna en áætlað var á tímabili, og geti nýst hvort
sem flugvöllurinn verður áfram í Vatnsmýrinni eða
ekki. Verkið verður unnið í áföngum og mun kostnað-
ur við fyrsta áfanga vera á bilinu 1,3 til 1,4 milljarðar.
Reiknað er með að um 80 til 90 heilsársstörf skapist á
framkvæmdatímanum sem verður um tólf mánuðir.
Verði tillögurnar samþykktar verður hægt að aug-
lýsa nýtt deiliskipulag á svæðinu. Ingvar Sverrisson,
aðstoðarmaður samgönguráðherra, segir vonir standa
til að framkvæmdir geti hafist í sumar.
Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssam-
bands lífeyrissjóða, segir lífeyrissjóðina vera í samn-
ingum við Flugstoðir, sem munu standa að fram-
kvæmdum. „Það mun ekki standa á okkur hvað varðar
fjármögnun svo fremi sem semjist um ásættanleg
kjör.“ Reiknað er með að endurgreiða kostnaðinn með
250 til 300 króna innritunargjaldi á hvern miða. - kóp
Á milli 80 og 90 störf verða til meðan framkvæmdin stendur:
Samgöngumiðstöð af stað í sumar
Asahláka verður sunnan- og
vestanlands í dag og talsverður
vindur. Norðaustanlands verður
hægari vindur og úrkomulítið.
VEÐUR 4
6
5 5
5
6
DAGUR KÁRI PÉTURSSON
Ekkert falskara en sykur-
sætur happy ending
Föstudagur
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU
Árlegi héraðsbresturinn
Að sjá á eftir árslaunum venju-
legs útrásarvíkings til að hér geti
allar listgreinar borið ávöxt er svo
smátt að við skulum láta eins og
það hafi ekki átt sér stað, skrifar
Pétur Gunnarsson.
UMRÆÐAN 18
STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðardótt-
ir forsætisráðherra ætlar ekki að
taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni um Icesave á morgun.
„Mér finnst þetta markleysa og
finnst mjög dapurlegt að fyrsta
þjóðaratkvæðagreiðslan frá
stofnun lýðveldisins verði um lög
sem þegar eru orðin orðin úrelt.
Í ljósi þess sé ég engan tilgang
í að taka þátt í þessari atkvæða-
greiðslu,“ sagði Jóhanna í sam-
tali við Fréttablaðið í gærkvöldi.
„Enginn talar lengur fyrir sam-
þykkt þessara laga, málið hefur
breyst það mikið á síðustu vikum
og við erum nú þegar með í hendi
hagstæðari lausn sem nemur sjö-
tíu milljörðum króna í greiðslu-
byrði.“
Í gærkvöldi taldi Jóhanna ekk-
ert benda til að nýir samningar
tækjust fyrir þjóðaratkvæða-
greiðslu en kvaðst vona að hægt
verði að taka upp þráðinn í við-
ræðunum við Breta og Hollend-
inga eftir helgi. Hún ítrekaði að
lausn verði að fást sem fyrst. „Ég
óttast að töfin geti farið að kosta
okkur meira en ávinningurinn
af nýjum samningi. ASÍ segir að
þetta mál hafi nú þegar seinkað
endurreisninni um hálft ár með
þeim kostnaði sem því fylgir.“
Jóhanna segist hafa orðið vör
við ýmsan misskilning varðandi
atkvæðagreiðsluna á morgun.
„Sumir virðast halda að málið
hverfi ef lögin verða felld en það
er mikill misskilningur. Það er
líka misskilningur að málið fari
beint fyrir dómstóla. Þjóðirn-
ar þrjár verða að standa sam-
eiginlega að slíku en Bretar og
Hollendingar hafa alltaf hafnað
þeirri leið.“
Jóhanna bendir á að felli þjóð-
in lögin sem kosið verður um á
morgun taki lögin frá í ágúst
gildi. Við þau verði þó ekki búið.
„Bretar og Hollendingar féllust
ekki á þau á sínum tíma og því
tómt mál að tala um að við byrj-
um með hreint borð. Þá er ekki
einu sinni gefið að þessi sjö-
tíu milljarða króna hagstæðari
greiðslubyrði verði í hendi.“
Formenn stjórnarandstöðu-
flokkanna hvetja fólk til að mæta
á kjörstað og greiða atkvæði gegn
lögunum.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknar-
flokksins, telur að samningsstaða
Íslands styrkist ef lögin verða
felld. Þá fari samningaviðræður
fram við hreint borð.
- bþs /sjá síðu 4
Jóhanna ætlar að sitja heima
Forsætisráðherra ætlar að hundsa þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave-lögin. Hún vonar að samningavið-
ræður haldi áfram eftir helgi. Töf á lausn Icesave-málsins geti kostað meira en vinnst með nýjum samningi.
Sex sigurleikir í röð
Grindvíkingar unnu granna
sína í Keflavík í
körfunni í gær.
ÍÞRÓTTIR 30