Fréttablaðið - 06.03.2010, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 6. mars 2010 7
Forstöðumaður gæðaúttekta
(Manager Audits)
Flugfélagið Atlanta óskar eftir umsóknum um starf
forstöðumanns gæðaúttekta.
Starfi ð felst í umsjón, framkvæmd og eftirfylgni gæða-
úttekta á sviðum fl ugreksturs, viðhalds, öryggis og
fl ugvernd ar, bæði hér á landi og erlendis, uppfærslu hand-
bóka, skjalavinnslu, kennslu og öðrum tilfallandi stöfum.
Hæfniskröfur:
Við leitum að atorkusömum og skipulögðum einstaklingi
með góða samskiptahæfi leika. Viðkomandi þarf að hafa
mjög gott vald á ensku í töluðu og rituðu máli ásamt því
að hafa góða tölvukunnáttu meðal annars á hugbúnaði til
gæðastjórnunar.
Fagmennska, frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og mikil
lipurð í mannlegum samskiptum eru skilyrði. Þekking á
helstu fl ugreglugerðum er skilyrði t.d. EU-OPS, JAR-FCL,
EASA Part-M, Part-145 og Part-66. Þekking og menntun á
sviði gæðastjórnunar er skilyrði. Menntun fl ugvirkja eða
atvinnufl ugmanns er æskileg. Háskólamenntun sem nýtist
í starfi er kostur.
Umsóknarfrestur er til 12. mars 2010.Öllum umsóknum
verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Umsóknir berist til:
Air Atlanta Icelandic,
b.t. Starfsmannadeildar
Hlíðasmára 3,
201 Kópavogur
eða á netfangið hr@airatlanta.com
Tískuvöruverslunin hjá Hrafnhildi leitar að
öfl ugum og hressum konum í hlutastörf.
Starfssvið:
Þjónusta, sala og ráðgjöf til viðskiptavina.
Hæfniskröfur og eiginleikar:
Afburða þjónustulund
Jákvæðni og hæfni í mannlegum
samskiptum
Góðir söluhæfi leikar
Áhugi á tísku, fólki og fatnaði
Heiðarleiki, snyrtimennska og metnaður
í starfi
Áhugasamar sendi ferilskrá, mynd og
kynningarbréf á hrafnhildur@hrafnhildur.is
fyrir laugardaginn 13. mars.
www.hjahrafnhildi.is
SÖLUMENN ÓSKAST TIL STARFA
Tal óskar eftir að ráða sölumenn til starfa
í söluveri frá kl. 17:00 til 22:00 á virkum dögum.
Góð laun og bónusar í boði
Þið sem hafið áhuga á skemmtilegri vinnu:
Vinsamlegast sendið okkur póst á hanness@tal.is