Fréttablaðið - 08.03.2010, Side 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
DRAUMKENNT HÚS Haugen/Zohar arkitektar í Nor-
egi hönnuðu skemmtilegt hús sem líkist helst súkkulaði-
kossi frá Hershey. Það er gert úr endurunnu efni, er
notalegt, hlýtt og ævintýri líkast enda með eldstæði í
miðjunni. www.nextdoortomagic.com
„Þetta er nýr áskriftarklúbbur fyrir áhugafólk um handavinnu og hannyrðir sem er ætlað að mæta þörf fyrir íslenskt efni,“ segir Halla Bára um Saumaklúbb-inn sem hún er komin á kaf í. Hún kveðst reyndar ekki hafa prjónað lengi en allir handgerðir, fallegir hlutir höfði til hennar. „Ég hef gert púða og alls konar dót á heimilið,“ segir hún glaðlega. Félagar í Saumaklúbbmá
segir Halla Bára. „Uppistaðan er nýtt efni frá íslenskum hönnuðum en líka erlent efni í vandaðri þýð-ingu. Svo eru í hverri sendingu tvö spjöld með uppskriftum að klúbb-réttum sem ættu að falla í kram-ið. Fyrsti pakkinn okkar er farinn í prentsmiðju og á að verða tilbú-inn um miðjan mars. Hann verð-ur á hálfvirði, 845 krónur en síðer áskrifti
samstarfs, meðal annars prjóna-hönnuði, bæði íslenska og erlenda. Hún nefnir Malínu Örlygsdóttur og Ragnheiði Eiríksdóttur sem dæmi og tekur fram að tækni-leg ritstjórn uppskrifta sé í hönd-um Herborgar Sigtryggsdóttur vefnaðarkennara sem hafi miklareynslu og þekki
Vill fá líf inn á heimilin
Uppskriftir að prjónavörum og hannyrðum af ýmsu tagi verða í handhægri möppu sem áskrifendum
Saumaklúbbsins berast mánaðarlega, sumar eftir íslenska hönnuði. Ritstjóri er Halla Bára Gestsdóttir.
„Við reynum að hafa efnið þannig að gaman sé að handleika það,“ segir Halla Bára um Saumaklúbbinn sem hefur heimasíðuna
www.klubbhusid.is
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ím
i
MÁNUDAGUR
8. mars 2010 — 56. tölublað — 10. árgangur
Leyni
st þvo
ttavé
l
eða þ
urrka
ri frá
í þínu
m pa
kka
HALLA BÁRA GESTSDÓTTIR
Stofnar áskriftarklúbb
fyrir handavinnufólk
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
HÍBÝLI OG VIÐHALD
Gagnlegar ábendingar
um hönnun alrýma
Sérblað um híbýli og viðhald
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Fortíðarbragur á
ferðalögum
Ferðafélag Austur-
Skaftfellinga
verður
30 ára á
morgun.
TÍMAMÓT 14
híbýli og viðhaldMÁNUDAGUR 8. MARS 2010
Íslandsmet
Helga Margrét
Þorsteinsdóttir setti
glæsilegt Íslands-
met í fimmþraut
í Svíþjóð í gær.
ÍÞRÓTTIR 20
KVIKMYNDIR Karl Óskarsson var
útnefndur kvikmyndatökumað-
ur ársins á kvikmyndahátíðinni
Tékkneska
ljóninu sem
var haldin í
Prag á laug-
ardag. Verð-
launin hlaut
hann fyrir töku
á myndinni 3
sezony v pekle
(Þrjár árstíðir
í helvíti), sem
var frumsýnd
í Tékklandi fyrir jól. „Þetta er
frekar stór mynd á tékkneskan
mælikvarða. Hún var tilnefnd
til ellefu ljóna og fékk verðlaun
fyrir aðalleik, kvikmyndatöku og
hljóð,“ segir Karl.
Á kvikmyndahátíðinni voru
veitt verðlaun í þrettán flokkum
og þrír tilnefndir í hverjum. „Það
vakti athygli að útlendingur væri
á meðal tilnefndra og enn meiri
athygli að ég skyldi vinna.“ - ve
Kvikmyndahátíð í Prag:
Karl fékk Tékk-
neska ljónið
KARL ÓSKARSSON
Hlýnar í veðri Í dag ríkja
suðlægar áttir, 3-8 m/s NA-til en
annars 5-10 m/s. Sunnan- og
vestanlands má búast við skúrum
en annars staðar á landinu verður
heldur skýjað en úrkomulítið.
VEÐUR 4
7
4 4
6
5
Póker í
sjónvarpið
Pókerborð með tíu
myndbandsupptöku-
vélum hefur verið
flutt til landsins.
FÓLK 26
SJÁVARÚTVEGSMÁL „Ég tel að næsta
skref sé að hugleiða hvort ekki
sé rétt að setja fiskveiðistjórnun-
armálið næst í þjóðaratkvæða-
greiðslu,” segir Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra.
„Það deilumál hefur klofið þjóð-
ina í marga áratugi og ríkisstjórnin
hefur einsett sér að leiða þær deilur
til lykta. Það færi vel á því að mínu
mati, að niðurstaða sáttanefndar-
innar, sem nú er að störfum um
málið, yrði lögð fyrir þjóðina.“
Jóhanna telur mikilvægt að búið
sé að ryðja brautina fyrir þjóðar-
atkvæðagreiðslur almennt og það
sé það jákvæða við atkvæðagreiðsl-
una nú. „Ég býst við að þjóðarat-
kvæðagreiðslur verði fyrir vikið
algengari í framtíðinni og vonandi
næst samstaða um það á Alþingi
að setja lög um þennan rétt fólks.
Fólkið á að hafa þennan rétt en ekki
bara forsetinn. Það má hugleiða að
ef fólkið fær þennan rétt í lögum,
að forsetinn hefði hann þá ekki.“
Hlutverk sáttanefndar í sjáv-
arútvegi er að endurskoða ýmis
ákvæði í fiskveiðistjórnunarkerf-
inu og stuðla að sátt um eignarhald
og nýtingu auðlinda sjávar. Ekki
liggur fyrir hvenær nefndin mun
skila áliti sínu. - shá
Forsætisráðherra segir að næsta atkvæðagreiðsla geti orðið um fiskveiðistjórnun:
Þjóðaratkvæði um sjávarútveg
LAND OG STRAND Fiskiskipið Óskar Halldórsson, sem nú er notað sem flutningaskip, strandaði í Hafnarfjarðarhöfn um miðjan
dag í gær. Skipið festist í leðju en var dregið aftur á flot laust fyrir klukkan 20 í gærkvöldi. Samkvæmt Kristni Aadnegaard, yfir-
hagsögumanni í höfninni, virðist sem vélarbilun hafi orsakað óhappið, en rannsókn fer fram í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
STJÓRNMÁL Formenn stjórnarflokk-
anna telja að samningaviðræður
við Breta og Hollendinga um lausn
Icesave-málsins eigi að halda áfram
þar sem frá var horfið fyrir helgi.
Forystumenn stjórnarandstöðunnar
segja hins vegar að leggjast þurfi
yfir samningsmarkmiðin að nýju
í ljósi niðurstöðu þjóðaratkvæða-
greiðslunnar áður en viðræðurnar
geta haldið áfram.
„Það þarf að vera einhver sam-
hljómur hjá mönnum um það hvað
er ásættanlegt sem niðurstaða í
málinu ef til viðræðna kemur,“
segir Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins. „Það
er ekkert sjálfgefið, eftir þessa
þjóðaratkvæðagreiðslu, að menn
sjái hlutina með sömu augum.“
Birgitta Jónsdóttir, þingflokks-
formaður Hreyfingarinnar, tekur í
sama streng og segir samningsfor-
sendur gjörbreyttar. „Fyrir mér
gerir samninganefndin ekki eitt
eða neitt í mínu umboði fyrr en ég
er búin að ræða við þetta fólk. Ef
samninganefndin á að halda áfram
eins og ekkert hafi í skorist mun
ég segja mig frá þessu.“
Steingrímur J. Sigfússon reiknar
með því að kalla til formenn allra
flokka í dag til viðræðna um fram-
haldið. Einnig mun hann ræða við
formann íslensku samninganefnd-
arinnar um næstu skref. Þá verður
staðan að lokinni atkvæðagreiðslu
rædd á þingi í dag.
„Ég túlka orð stjórnarandstöð-
unnar ekki með þeim hætti að
samstaðan um frekari samninga-
viðræður sé brostin. Ég vil alla-
vega ekki gefa mér það fyrr en á
reynir,“ segir Steingrímur. „Við
byrjum að sjálfsögðu á því að
láta á það reyna hvort ekki verð-
ur haldið áfram þar sem frá var
horfið. Ég trúi því ekki að menn
ætli að hlaupa frá þessu núna því
ég sé ekki í grófum dráttum hvers
vegna það ætti að vera.“
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra er sama sinnis og segir
það nauðsynlegt „að taka sem
fyrst upp samningaviðræðurnar
þar sem frá var horfið“.
„Nei, ég íhugaði ekki afsögn á
neinum tímapunkti af alvöru,“
segir Jóhanna um orð Steingríms
í útvarpsþættinum Sprengisandi
í gær en hann sagðist hafa íhug-
að afsögn eftir að Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, vísaði
lögunum til þjóðarinnar í janúar.
„Auðvitað kom þetta til tals á milli
okkar Steingríms. En hann vill
taka slaginn eins og ég.“
- shá, sh / sjá síður 4 og 6
Óvíst um framhald viðræðna
Stjórnarandstaðan vill leggjast á ný yfir samningsmarkmið vegna Icesave í ljósi niðurstöðu þjóðaratkvæða-
greiðslunnar. Stjórnin vill halda áfram þar sem frá var horfið. Stefnt að því að funda um framhaldið í dag.
Takk fyrir mig
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir
skrifar um alþjóðlegan baráttu-
dag kvenna.
UMRÆÐAN 12