Fréttablaðið - 08.03.2010, Blaðsíða 15
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
DRAUMKENNT HÚS Haugen/Zohar arkitektar í Nor-
egi hönnuðu skemmtilegt hús sem líkist helst súkkulaði-
kossi frá Hershey. Það er gert úr endurunnu efni, er
notalegt, hlýtt og ævintýri líkast enda með eldstæði í
miðjunni. www.nextdoortomagic.com
„Þetta er nýr áskriftarklúbbur
fyrir áhugafólk um handavinnu
og hannyrðir sem er ætlað að
mæta þörf fyrir íslenskt efni,“
segir Halla Bára um Saumaklúbb-
inn sem hún er komin á kaf í. Hún
kveðst reyndar ekki hafa prjónað
lengi en allir handgerðir, fallegir
hlutir höfði til hennar. „Ég hef gert
púða og alls konar dót á heimilið,“
segir hún glaðlega.
Félagar í Saumaklúbbnum fá
mánaðarlega sendingu sem inni-
heldur fjórtán til sextán upp-
skriftaspjöld og efnisflokkarn-
ir eru prjónað, heklað, saumað,
föndrað, til heimilisins og eldað.
„Þetta er mjög veglegur pakki í
flottu pappaumslagi með teygju,“
segir Halla Bára. „Uppistaðan er
nýtt efni frá íslenskum hönnuðum
en líka erlent efni í vandaðri þýð-
ingu. Svo eru í hverri sendingu tvö
spjöld með uppskriftum að klúbb-
réttum sem ættu að falla í kram-
ið. Fyrsti pakkinn okkar er farinn
í prentsmiðju og á að verða tilbú-
inn um miðjan mars. Hann verð-
ur á hálfvirði, 845 krónur, en síðan
er áskriftin 1.690 á mánuði með
sendingarkostnaði.“
Maðurinn bak við Saumaklúbb-
inn er Kristinn Arnarson. Hann
á Klúbbhúsið og hugmyndina að
stofnun klúbbsins, upplýsir Halla
Bára. Hennar hlutverk hefur
verið að byggja upp klúbbinn frá
grunni og viða að sér góðu fólki til
samstarfs, meðal annars prjóna-
hönnuði, bæði íslenska og erlenda.
Hún nefnir Malínu Örlygsdóttur
og Ragnheiði Eiríksdóttur sem
dæmi og tekur fram að tækni-
leg ritstjórn uppskrifta sé í hönd-
um Herborgar Sigtryggsdóttur
vefnaðarkennara sem hafi mikla
reynslu og þekkingu. Klúbburinn
er líka í samstarfi við Ístex sem
felst í því að í hverri sendingu er
unnið með eina gamla uppskrift
sem er endurhönnuð í takt við
tísku dagsins í dag. „Við reynum
að hafa efnið þannig að gaman sé
að handleika það og það sé fólki
hvatning til að gera fallega hluti.
Það er svo jákvætt að fá líf inn á
heimilin.“ gun@frettabladid.is
Vill fá líf inn á heimilin
Uppskriftir að prjónavörum og hannyrðum af ýmsu tagi verða í handhægri möppu sem áskrifendum
Saumaklúbbsins berast mánaðarlega, sumar eftir íslenska hönnuði. Ritstjóri er Halla Bára Gestsdóttir.
„Við reynum að hafa efnið þannig að gaman sé að handleika það,“ segir Halla Bára um Saumaklúbbinn sem hefur heimasíðuna
www.klubbhusid.is FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu
Takmarkað magn af IQ-Care heilsudýnum
og Proflex stillanlegum rúmum
á sértilboði frá framleiðanda
Proflex 2x80x200 með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu
kr. 339.900 - verð áður kr. 429.000
Proflex 2x90x200 með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu
kr. 349.900 - verð áður 459.000
Listh
Fermingartilboð
sjá
www.svefn.is
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…